blaðið - 25.08.2006, Síða 16

blaðið - 25.08.2006, Síða 16
blaðiö Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Slgurður G. Guðjónsson Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson Vinavíg í felum Prófkjör stjórnmálaflokkanna eru framundan. Þar munu samherjar herja hver á annan og margir bíða ósigra. Það er svo sem allt í lagi. Hitt er annað, að baráttan fyrir þingsætunum mun kosta mikla peninga, peninga sem frambjóðendurnir eiga ekki sjálfir, heldur snapa upp hér og þar. Og í sjálfu sér getur það verið í lagi, en þó ekki, þar sem stjórnmálamenn hafa slegið skjaldborg um sjálfa sig og peningana. ÓHkt stjórnmálamönnum í alvöru ríkjum þurfa þeir íslensku ekki að segja hverjir gefa þeim peninga, hvorki einstaka stjórnmálamenn né stjórn- málaflokkar. Þetta er sérstaða sem íslenskir stjórnmálamenn hafa búið til fyrir sjálfa sig og sem aðrir komast ekki upp með. Vegna þessa háttalags munu kjósendur aldrei fá að vita hvaða fyrirtæki og hvaða einstaklingar munu kosta framadrauma væntanlegra þingmanna og þess vegna verður ómögulegt að benda á ef þau sem ná kjöri munu í störfum sínum launa greiðann. Líklegast er kerfið einsog það er, einmitt vegna þess að ekki þykir heppilegt að fjölmiðlar eða aðrir geti leitað samsvörunar milli gefendanna og þess hvaða afstöðu þingmenn taka í málum sem snerta gef- endurna og hagsmuni þeirra. Með því að fela tekjur flokka og gjafir og styrki til flokka og stjórnmálamanna er verið að strá efasemdum, efasemdum sem samtakamáttur stjórnmálamanna ver með krafti. Svo langt er gengið í hagsmunavörslunni að því er haldið fram af krafti að það styrki lýðræðið að mega þegja yfir því hverjir borga styrkina og gefa gjaf- irnar. 1 öðrum löndum dettur fólki bara ekki í hug að bera aðra eins þvælu á borð. Kjósendur eiga ekki að láta þetta viðgangast, heldur krefjast þess að vitað verði hvaðan peningarnir sem kosta stjórnmálamenn og stjórnmála- flokka koma. Meðan svo er ekki verða kjósendur að efast um starf stjórn- málamanna og stjórnmálaflokka; meðan svo er verða kjósendur líka að gera ráð fyrir því að ástæðan fyrir því að þeir gefi ekki upp hver borgar kostnað- inn sé sú að það henti engan veginn að gefa það upp; það gæti ekki skaðað lýðræðið en það gæti skaðað gefendur og þiggjendur. Á næstu vikum munu samherjar takast á um hin eftirsóttu þingsæti. Miklu verður til fórnað, bæði af peningum og krafti. Við munum heyra ótal afsakanir og skýringar á fjáraustrinum og allir þeir stjórnmálamenn sem eiga eftir að tjá sig um eigin baráttu munu fullyrða fullum fetum að gjafirnar muni ekki hafa hin minnstu áhrif, engu breyta í huga stjórnmála- manna. Samt mun ekki koma til greina að skýra frá hverjir gefa. Margir þeir sem sækjast eftir endurkjöri á kostnað huldumanna hafa talað fyrir lagasetningu á annað fólk, til dæmis á fjölmiðla. Þá þarf að eign- arhaldið að vera gegnsætt og tryggja frelsi fjölmiðlafólks, en á sama tíma þiggja stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar peninga undir borðið, pen- inga sem hvergi kemur fram hver gefur og hver þiggur. Sigurjón M. Egilsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur ffcÝT' Fullelduðu kjúklingabitarnir frá Matfugli á grillið, í ofninn eða á pönnuna. Með hverjum bakka fylgir Léttsósa frá Salathúsinu. - Á grillið I örfáar mínútur og maturinn er til! 16 I ÁLIT FÖSTUDAGUFt 25. ÁGÖST 2006 blaöió Halldór Baldursson teiknari er ífríi. Því eru endurbirtar teikningar hans. ÓT(ri..Vft>EWI Glörtfe?. ALyÝÐKti HbVUk get urmzistí Ærute xs> sera/r otfKtfK \ LíFEVfeiSSj^ - o Tilhugalíf í beinni útsendingu? Fyrr í vikunni átti sér stað í fjöl- miðlum dálítið sérstök umræða um samstarf stjórnarandstöðuflokk- anna. Fram hafði komið að Stein- grímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefðu í sumar átt viðræður um aukið samstarf milli flokka sinna og höfðu ýmsir áhuga á að vita hvort í því fælust einhver áform um kosningabandalag fyrir næstu kosningar. Farið undan í flæmingi Síðastliðinn mánudag mættu svo formennirnir tveir í umræður á NFS þar sem stjórnandinn spurði um þessi áform. Segja má að þau hafi bæði slegið úr og í þegar þeim var stillt upp við vegg með þeim hætti. Bæði tóku auðvitað fram, eins og vænta má af stjórnarandstæðingum, að markmið þeirra væri að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum. Einnig vísuðu þau bæði - með aug- ljósri velþóknun - til kosningabanda- lags vinstri flokkanna í Noregi, sem fleytti þeim inn í ríkisstjórn á siðasta ári. Á hinn bóginn lögðu bæði kapp á að tóna niður umræður um sam- töl sín í sumar og áform um frekara samstarf, án þess þó að útiloka það. Bæði gerðu hins vegar mikið úr þvi að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur væru að splæsa sig fastar saman, sem er svipaður söngur og heyrðist fyrr í sumar, þegar stjórn- arandstæðingar - einkum Samfylk- ingarmenn - töldu það stórpólitisk tíðindi að sjálfstæðismenn skyldu ekki nýta tímabundinn forystu- vanda framsóknarmanna til að slíta stjórnarsamstarfinu og knýja fram kosningar. Á vinstri væng stjórn- málanna virðist það nefnilega ekki vera siður að standa með samstarfs- mönnum sinum þegar illa stendur á hjá þeim. Samkeppni - ekki samvinna Nú er ekkert óeðlilegt við það að forystumenn flokka í stjórnarand- stöðu ræði saman og eigi samstarf um hitt og þetta. Það hefur áður verið gert bæði hérlendis og erlendis með misjöfnum árangri. Skemmst er að minnast þess að fyrir upphaf haustþings 2004 blésu forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna þriggja til mikils blaðamannafundar til að kynna áform sín um samstarf og samvinnu á Alþingi. Uppskeran varð þó heldur rýr, því þessi mikla samstaða skilaði sér bara í einu sameiginlegu þingmáli. Ekki varð vart við samstöðuna að öðru leyti, enda einkenndust þingstörfin eins og venjulega af samkeppni þing- manna þessara flokka um að vekja athygli á sjálfum sér. Á síðasta þingi var samstaðan litlu meiri, nema hvað stjórnarandstaðan stóð saman um málþóf í tveimur málum, vatna- lagafrumvarpi og frumvarpi til breyttra laga um RÚV. Flokkarnir gátu með öðrum orðum sameinast um að koma í veg fyrir að þessi mál fengju afgreiðslu en samstaðan náði hins vegar ekki til efnisþátta þeirra - ekki frekar en í flestum öðrum stærri málum þingsins. Það er raunar eins og Samfýlk- ingin hafi mestan áhuga á samstarfi við hina stjórnarandstöðuflokk- anna þegar verst stendur á hjá henni sjálfri. Það skýrir kannski þau við- brögð talsmanna hennar nú, að úti- loka ekkert í þessu sambandi. Þegar útlitið er bjartara og niðurstöður kannana hagfelldar, er Samfylk- ingin hins vegar tregari til að tengja sig minni flokkunum. Þannig var það fyrir síðustu alþingiskosningar þegar Vinstri grænir reyndu árangurslaust að fá Ingibjörgu Sólrúnu til að lýsa yfir vilja til myndunar vinstri stjórnar og sama var uppi á teningnum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor þegar Samfylkingin vildi bjóða fram í eigin nafni sem víðast til að sýna styrk sinn. í báðum tilvikum gáfu kannanir til kynna yfirvof- andi stórsigur Samfylkingarinnar, en þegar upp var staðið varð eftir- tekjan mun rýrari. Hugsanlega er myndin breytt í dag þegar Vinstri grænir virðast vera að sigla upp að hliðinni á Samfylkingunni í hverri könnuninni á fætur annarri. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Klippt & skorið Samkeppniseftirlitið hefur hvatt til aðgerða til þess að auka samkeppni banka um viðskiptamenn og meðal annars lagt til að stimpilgjöldin verði felld niður. Árni M. Mat- hiesen, fjármálaráðherra, sagði hins vegar í gær, að ótímabært væri að afnema gjöldin, því það gæti ónýtt við- leitni ríkisstjórnarinnar til þess að hamla gegn þenslu. Menn ráða hversu alvarlega þeir taka þær mótbárur. En það er vert að minnast þess að neistinn, sem kveikti byltinguna i Bandaríkj- unum á 18. öld var einmitt lagasetning bresku nýlenduherranna um stimpilgjöld. R áðstefna stjarnfræðinga hefur verið að grisja sólkerfið undanfarna daga og komist að þeirri niðurstöðu að Plútó sé ekki reikistjarna. Á móti kemur að smástirnin Ceres og Xena hafa verið forfrömuð og teljast nú dvergreikistjörnur líkt og Plútó. Áhrif þessa á daglegt líf manna geta orðið gffurleg og hið sama á við um fjölmiðla. Gera má ráð fyrir að stjörnuspekingar um allan heim leggi nú nótt við nýtan dag við að leiðrétta spár sínar og hundruð milljóna fylgj- enda þeirra þurfa svo að endurskoða breytni sína. Fræðimenn telja víst að við það, að reiki- stjörnunum fækki úr níu í átta, muni áreiðan- leiki stjörnuspánna skerðast verulega. Klippari les á vef Náttúruverndarsam- taka íslands (www.natturuverndar- samtok.is) fremur ámátlegt svar við greinarskrifum hins hægrigræna llluga Gunn- arssonar um náttúruvernd og náttúrunýt- ingu. En í lok greinarinnar spilar hinn nafnlausi höfundur nánast út; „.. .verða þróunarríki aö rjúfa tengsl hagvaxtar og aukn- inguí útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda. Sjálbær [svo!] þróun felur I sér að iðnriki dragi verulega úr útstreymi gróðurhúsaloft- tegunda og að leið fátækra rikja til bjargálna verði önnur ensú sem hinar rlku þjóðir heims hafafarið. “Jamm, þetta lið í vanþroska heiminum getur bara ornað sér við sólaryl og vindorku meðan það reynir að uppgötva nýjar leiðir til auðlegðar! andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.