blaðið - 25.08.2006, Blaðsíða 21

blaðið - 25.08.2006, Blaðsíða 21
blaðið FÖSTUDAGUR25.ÁGÚST2006 21 ...nrftjiáBBfiyKl’.' Fiskar á Islandi Á islantíi eru sex tegundir af ferskvatnsfiskum: lax, urriði og bleikja, hornsili og áll auk regnbogasilungs sem var upphaflega fluttur hingað til lands til fískeldis. Mokveiddu bleikjur Hlynurog Hannes lönduðu 67 bleikjum á ein- um og hálfum degi. Mynd/HlynurJensson Hreindýraflautur virka vel á veiðislóð Hreindýraleiðsögumenn og veiði- menn hafa notað í fyrsta sinn hér á landi sérstakar kanadískar hreindýra- flautur við veiðar í haust með góðum árangri. Búið er að þróa flauturnar í áraraðir í Kanada og hljóðin sem framkallast líkjast hljóðum frá hrein- kú. „Ég var við veiðar við annan mann á Fljótsdalsheiðinni í síðustu viku og var búinn að eltast við nokkr- ar hjarðir í fáeina tíma án árangurs. Rétt í lokin þegar ég ætlaði að hætta náði ég einu tækifæri þegar fjögur dýr hlupu ffamhjá mér á 8o metra færi. Hreindýraflautan var brúkuð og dýrin námu staðar samstundis, skotið reið af og dýrið mitt féll í fyrsta skoti. Við náðum líka að kalla til okk- ar kálfa með góðum árangri en þegar þeir nálguðust okkur kom hreinkýr með kálf og dró þá báða með sér. Það er greinilegt að þessar flautur virka vel og menn ættu að vera óhræddir við að prófa þær,” sagði Stefán Gunn- laugsson veiðimaður. Róbert Schmidt Mokveiddu í Hraunsfirði Hlynur Jensson og Hannes Gúst- afsson veiddu vel í Hraunsfirði um helgina en þeir lönduðu 67 bleikjum eftir eins og hálfs dags veiði á flugu. Bleikjurnar sem voru mjög fallegar og nýgengnar voru flestar frá 1 til 2,5 pund en ein náði 3 pundum að þyngd. „Þetta var mjög skemmtileg og fjörug veiði. Vatnið er fullt af fiski og bleikjan greinilega nýgengin, velti sér við yfirborðið og undi sér vel. Menn voru að kasta hjá okkur en það fékk enginn neitt nema við Hannes,” sagði Hlynur í samtali við Blaðið og hló. „Við notuðum mest tvær flugur en ætli það sé ekki best að geyma það leyndarmál fyrir síg. Menn reyndu allar gerðir af flugum og líka spón en það gerðist ekkert. Þannig að þetta var sýnd veiði en ekki gefin,” sagði Hlynur að lokum. Dræm lundaveiði í Skagafirði LundaveiSimenn í Skagafirði háfuðu ekki mikið af lunda þetta sumarið vegna „ótíðar”. „Aðstæður hafa einfaldlega ekki verið hagstæðar í sumar vegna þoku, logns og kulda. Við slikar aðstæður er erfitt að háfa lund- ann. Ég komst í einn veiðitúr út í Drangey þann 10. júlí og það snjóaði á okkur veiðimennina. Náðum ekki nema 300 fuglum í það skipti,” sagði Magnús Hinriksson, veiðimaður á Sauð- árkróki. „Félagar mínir náðu á milli eitt til tvöþúsund fuglum í einni ferð í Drangey en venjulega hefur veiðin verið miklu meiri. I fyrra veiddum við dálítið af lunda á Austurlandi og þar var fuglinn mun feitari en hér.” Skagfirð- ingar hafa lengi nytjað lundann og sækja gjarnan í Drangey og Málmey. Lundaveiðitímabilið hófst 1. júlí síðastliðinn og lauk þann 15. ágúst. Talsvert af lunda hefur verið selt frá (slandi til Færeyja en þar hvarf sand- sílið hér um árið og þá fækkaði lundanum. Menn hafa örlitlar áhyggjur af ætisleysinu fyrir norðan þrátt fyrir að lundanum hafi ekki fækkað svo neinu nemi enn sem komið er. Veiðimaður með feng sinn Magnús Hinriksson veiðimaður með lundakippu á herð- unum í Málmey. * ' . Mynd/Róbert-Schmidt Klaus Frímor ’^ÍjS flugukastkennari verður með kastkennslu seinnihluta mánaðarins. Klaus kennir bæði á einhendu og tvíhendu. Hann er sérfræðingur í kasttækni með skotlínu sem hentar fslendingum f roki og lengdarköstum. Áhugasamir eru beönir aö hafa samband í sima 588 6500 (Benni) eöa e-mail benni&utivistogveidi. Ís í SUMAR: i 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19 Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.