blaðið - 25.08.2006, Síða 19

blaðið - 25.08.2006, Síða 19
M «M» og engu öðru líkt, lifandi heimild um það sem er að gerast í kringum okkur. Frá upphafi hefur Morgunblaðið verið að breytast og mun gera það áfram, á hverjum einasta degi. Morgunblaðið kynnir breyttar áherslur og útlit Útgáfa Morgunblaðsins hefur verið endurskipulögð til þess að gera blaðið aðgengilegra og notendavænna fyrir lesendur. Heildarsvipur blaðsins hefur verið samræmdur og blaðið fær téttara yfirbragð. í bland við dýpri umfjöllun á ýmsum sviðum verður meira af styttra, aðgengilegra efni sem höfðar til breiðari hóps. Framsetning blaðsins verður myndrænni og munu útdrættir, samantektir og skýringarmyndir hraða yfirferð og dýpka skilning. Hluti blaðsins sem heitir Daglegt líf verður með mismunandi áherslum á hverjum degi, heimilið á mánudögum, börn og fjölskylda á þriðjudögum, heilsa og likamsækt á miðvikudögum, ferðlög og neytendur á fimmtudögum, matur og vín á föstudögum ásamt ítarlegum helgarinngangi, tíska og hönnun á laugardögum og vikuspegill á sunnudögum. Sérblöð Morgunblaðsins hafa fengið andlits- lyftingu og efnistökin breytast lítillega en tímaritin þrjú, M-ið, Lifun og Tímarit Morgunblaðins, færast inn í Daglegt líf. I tilefni af breytingunum er blaðið frítt á lausasölustöðum í dag. Tryggðu þér eintak og kynntu þér ferskara blað. Breytt blað - á hverjum degi

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.