blaðið - 25.08.2006, Síða 38
38
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 blaðÍA
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hvernig myndir þú mýkja ásýnd
friðargæsluliða?
„Fá bara chippendales í þetta."
Heiðar snyrtir
f Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við Valgerði Sverrisdóttur
utanríkisráðherra þar sem hún lýsti yfir vilja til þess að mýkja
ásýnd friðargæslunnar
Smáborgarinn
MOÐIR OG BARN
Smáborgarinn er móðgaður.
Hann hefur einatt lagt sig fram
um að reynast börnum sínum
góð fyrirmynd og vera hjálplegur
við barnauppeldi. Alla sína lífstíð
hefur Smáborgarinn alist upp við
ríka kvennréttindabaráttu og er
henni fylgjandi. Náttúran hefur
komið því þannig fyrir að konur
ganga með börn og þurfa margar
hverjar að hafa fyrir hlutunum
á meðgöngunni. Þegar barnið
kemur í heiminn er rík og sjálf-
sögð krafa um að feður taki sem
mestan þátt í uppeldi barna og
hefur það stóraukist á heimilum
í dag. Smáborgarinn verður þó
að minnast á tvö atriði sem í
Enn og aftur má spyrja
hvort fræðslurit um
barnauppeldi sé ekki
ætlað Smáborgaranum
heldur aðeins móður
barna hans
ykkar augum virðast kannski
smávægileg, en hann getur ekki
látið hverfa úr huga sínum. Til að
undirbúa foreldra á meðgöngu
og fyrstu árum barnauppeldis
er til ágæt fræðslubók um þessi
mál, hún heitir MÓÐIR OG BARN.
Spyrja má hvort sú fræðslubók
um barnauppeldi sé ekki ætluð
Smáborgaranum heldur einöngu
móður barna hans. Nýverið var
hringt heim til Smáborgarans
að kvöldlagi og rakleiðis beðið
um eiginkonuna í símann. Þar
var verið að bjóða áskrift að
nýju tímariti um barnauppeldi og
annað sem því viðkemur. Enn og
aftur má spyrja hvort fræðslurit
um barnauppeldi sé ekki ætlað
Smáborgaranum heldur aðeins
móður barna hans. Nú er það
reyndar svo að Smáborgarinn er
fyrir löngu búinn að sætta sig við
að sum tímarit eru aðeins skrifuð
af konum og fyrir konur þar sem
ekki er einu sinni reynt að hafa
fyrir því að bæta við auka (n) eða
(ur) fyrir aftan. Einnig gerir hann
sér grein fyrir því að eiginkonan
er líklegri til að kaupa áskrift að
tímar'rti um barnauppeldi og því
sé þessi aðferð notuð. Smáborg-
arinn er samt pínu móðgaður.
Matarmiklar minningar
„Ég held ég verði að segja matur,“
segir Nanna og hlær, aðspurð um
ástríðu sína. Hún er landsmönnum
að góðu kunn fyrir öflugt starf sitt í
þágu matargerðarlistarinnar en hún
hefur gefið út margar glæsilegar mat-
reiðslubækur og starfað um árabil
sem blaðamaður á Gestgjafanum.
„Ég myndi segja að þessi mikli
áhugi væri meðfæddur. Fyrir nokkr-
um árum áttaði ég mig á því að allar
mínar minningar tengjast mat á ein-
hvern hátt. Atriði sem eru mér minn-
isstæð úr bókum sem ég man eftir að
hafa lesið sem barn tengjast t.d. flest
mat og matargerð. Líklega hefur það
líka hjálpað til að ég er alin upp í
sveit og þar tók maður virkan þátt í
öllu framleiðsluferlinu sem tengdist
matvælunum.“
Nanna bakar og eldar jöfnum
höndum og segist hafa jafn mikið
gaman af hvoru tveggja þó að á ár-
um áður hafi hún tekið baksturinn
fram yfir eldamennskuna. Hún seg-
ist leggja mikla áherslu á að festast
ekki í tilbúnum hefðum. „Ég reyni
að vera dugleg að breyta til. T.d. er
aldrei það sama í jólamatinn hjá fjöl-
skyldunni enda er fátt leiðinlegra en
að hanga í einhverjum heilögum rétt-
um sem gerir jólin ónýt ef illa tekst
til við matargerðina."
Flest eigum við okkur einhverja
veikleika í eldamennskunni. Berna-
ise-sósan veldur mörgumhugarangri
og margir svitna þegar þeir heyra
minnst á matarlím. Nanna segist
lengi framan af hafa átt í mestu vand-
ræðum með að laga uppstú. „Þetta er
SU DOKU talnaþraut
2 8 3 7 4 6 5 1 9
7 4 9 1 8 5 2 3 6
5 6 1 9 2 3 4 7 8
3 2 7 4 5 9 6 8 1
6 9 5 2 1 8 7 4 3
4 1 8 3 6 7 9 2 5
8 7 4 5 9 1 3 6 2
9 3 6 8 7 2 1 5 4
1 5 2 6 3 4 8 9 7
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir (hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóörétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
9 1 7 6
2 7 9
3 6
7 9 5 6 2
1 7 4
4 8 1
3 5 7 1 6
4 8
1 4 5
reyndar eitt af því einfaldasta sem
hægt er að fást við í eldamennskunni
en börnin mín voru lengi hörð á því
að ég gæti lagað almennilegt uppstú.
Fyrir nokkrum árum datt ég niður
á prýðilega aðferð til að elda uppstú
sem hefur gagnast mér vel og börnin
hættu að kvarta."
Nanna ætlar að söðla um á næst-
unni og hætta á Gestgjafanum eftir
margra ára farsælt starf. Hún hefur
þó engar áhyggjur af því að henni
takist ekki að fá útrás fyrir ástríð-
una. „Það opnast alltaf einhverjir
möguleikar og ég er nú þegar komin
í ýmis verkefni sem tengjast þessu
stóra áhugamáli,“ segir Nanna að lok-
um bjartsýn á framtíðina.
hilma@bladid.net
eftir Jim Unger
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
10-29
Hvert er stórslys ársins?
HEYRST HEFUR...
Ossur Skarphéðinsson,
ofurbloggari, er iðinn við
kolann og í nýjustu
færslunni (ossur.hexia.
net) skrifar hann
um hinn afskipta og
óhlýðna þingmann
Framsóknarflokksins,
Kristin H. Gunnarsson, sem
gjarnan er nefndur sleggjan
fyrir einhverjar sakir, flestum
gleymdar. Talar Össur vin
sinn Kristin mjög upp og
telur flokksforystu fram-
sóknarmanna fara illa með
góðan dreng með því að treysta
honum ekki til nefndarfor-
mennsku á vettvangi þingsins.
Kristinn kom úr Alþýðubanda-
laginu í Framsókn og segja
sumir að það sé ástæðan fyrir
því að hann aðlagist flokknum
ekki betur en raun ber vitni.
En ef Kiddi er svona frábær, af
hverju býður Össur honum
ekki vist i Samfylkingunni?
Rætt hefur verið um það að
hún þurfi að styrkja framvarða-
sveit sína í Nórðvesturkjör-
dæmi...
Forseti borgarstjórnar, Björn
Ingi Hrafnsson, þótti koma
ár sinni vel fyrir borð í meiri-
blutasamningum við
J sjálfstæðismenn í
| borginni. Á vef Katta-
\z\jU vinafélagsins (www.
I Æk kattholt.is) má glögg-
lega sjá að Björn Ingi
er að á ölium vígstöðvum, því
hann kom þangað til að taka
að sér „litla kisustelpu", eins og
formaður Kattavinafélagsins,
Sigríður Heiðberg, kemst að
orði um leið og hún fagnar því
að kattavinur skuli sitja í borg-
arstjórninni...
Stundum hafa stjórnarþing-
menn gagnrýnt stjórnar-
andstöðuna fyrir að eyða tíma
þings og ráðherra meðl
eilífum fyrirspurnum |
um efni, sem þeir
gætu allt eins slegið
upp á Google eða í
símaskránni ef því er
að skipta. Sigurjón Þórðar-
son, þingmaður frjálslyndra,
hafði þetta í huga þegar hann
vildi forvitnast um það hvað
ráðherrastólaleikur framsókn-
armanna snemmsumars hefði
kostað ríkissjóð. Leitaði hann
því sjálfur svara hjá upplýsinga-
þjónustu Alþingis og ítrekaði
spurninguna svo við skriffinna
fjármálaráðuneytisins án þess
að fá nokkur svör. En Sigurjón
bíður og bíður enn, bíður og
vonar að þau komi nú senn...
\T okkur spenna <
lN muni eerast í b
i er um hvað
i gerast í baráttunni
um efsta sæti sjálfstæðismanna
'mmmgm í Suðvesturkjör-
dæmi, Kraganum
™ wJH svonefnda, en það er
fleira að gerast í kjör-
! dæminu. Þingmönn-
um þess mun fjölga
um einn eftir næstu kosningar
og í hinu sterka íhaldsvígi Sel-
tjarnarnesi heyrast raddir um
að þá gefist einstakt tækifæri
fyrir bæjarfélagið til þess að
tryggja sér þingsæti. Nefna
menn helst hinn unga og sig-
ursæla bæjarstjóra Seltirninga,
Jónmund Guðmarsson í því
samhengi...
andres.magnusson@bladid.net