blaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 26
38 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006
blaöiö
heimili
heimili@bladid.net
Burt meö hárin
Margir gæludýraeigendur kannast við hár á öllum húsgögn-
um sem getur verið heldur subbulegt. Besta leiðin til að
fjarlægja þau af húsgögnum er að nota votan svamp og
þurrka af húsgögnunum.
Svartur og lokkandi Hérmá sjá
frekar heföbundinn lampa með
svörtum fjöðrum eftir Jess Shaw
en hún kallar hann Blackbird Tree.
Ljós og listaverk
Breski hönnuðurinn Jess Shaw
hefur vakið mikla athygli fyrir
falleg Ijós sín en hún er senni-
lega þekktust fyrir Ijósið Ský
(e. Cloud). Skýið er fallegt hvort
sem það er kveikt á því eða ekki.
Reyndar eiga Ijós Jess Shaw það
sameiginlegt að þau er listaverk
frekar en Ijós. Ljósin eru nútíma-
leg en óvenjuleg og birtan af
þeim er einstök. Sumir segja þau
vera meistaraverk en burtséð frá
því þá er Ijóst að þau vekja umtal
hvar sem þau sjást. Fleiri Ijós
eftir Jess Shaw má sjá á www.
jessshaw.com
Listaverk Skýjaljósið erþekkt
Ijós sem hefur hlotiö mikla athygli
enda nokkurs konar listaverk.
Fjölskyldueldhús Guðrún Thelma,
Guðbjörg María og Viktor Björn í
eldhúsinu. „ '
Myndlr/Fnkki
Guðbjörg María og Jón Valgeir kusu að reisa húsið sitt sjálf
SMAAUGLÝSINGAR
blaöiöH
SMAAUGIYSINQAR@BLAD1D.NET
Myndu byggja aftur
Það er ekki furða að nýbygg-
ingar rísi um alla borg því
margt ungt fólk kýs frek-
ar að byggja heldur en að
búa í gömlu. Guðbjörg María Gunn-
arsdóttir og Jón Valgeir Björnsson
kusu þá leiðina þegar þau ákváðu að
Geymslu-
og dekkjahillur
í bílskúrinn,
geymsluna,
heimiliö og
fyrirtækið
Þessar hillur geta allir
sett saman. Skrúfufrltt
og smellt saman.
kr.8.091.-
viöbótareining kr.5.834.-
ehf.
ithyl3-3a-110Reykjavfk
Sími53 53 600 - Fax 5673609
www.isold.is
stækka við sig. Enda segir Guðbjörg
að það hafi verið töluvert ódýrara
auk þess sem skemmtilegt sé að fá
að ráða hönnun hússins.
„Við fluttum inn í húsið í maí á
þessu ári en það hafði tekið okkur
um eitt og hálft ár að byggja það.
Við fengum lóðina í nóvember 2004
en byrjuðum ekki að byggja alveg
strax," segir Guðbjörg og bætir við
að það sé yndislegt að búa í nýja hús-
inu en nóg sé að gera.
Tímafrekt
Guðbjörg og Jón fengu Baldur
Jónsson verktaka sem gerði húsið
fokhelt og auk þess voru aðrir góðir
menn sem hjálpuðu til, strákarnir
hjá Raflax, Finnur Larssen og
Kristján Ásgeirsson. Guðbjörg segir
að maðurinn hennar hafi líka gert
eins mikið og hann gat.
„Ég myndi ekki segja að það væri
erfitt að byggja hús en þetta tekur
allt sinn tíma. Maðurinn minn sá
reyndar mest um þetta en það var
mikið um alls kyns snatt og útrétt-
ingar og hann missti því töluvert úr
vinnu. Þetta er tímafrekara en við
bjuggust við og það þarf endalaust
að hringja út um allan bæ til að
redda hinu og þessu og ýta á eftir
öðru.“
Margt sem við myndum gera betur
Samt sem áður segir Guðbjörg að
þau myndu hiklaust byggja aftur ef
svo stæði á en þá myndu þau fara
öðruvísi að.
„Það er ýmislegt sem maður rekur
sig á í byggingarferlinu sem maður
myndi geta gert betur. Til dæmis
myndi maðurinn minn taka sér
frí í nokkra mánuði og vinna með
smiðnum því ég held að það myndi
koma betur út fjárhagslega. Það er
ýmislegt fleira sem maður rekur
sig á og sem dæmi má nefna tengl-
ana. Við erum með tiltölulega mörg
Ódýrara Guöbjörg Maria Gunnarsdóttir og Jón Valgeir Björnsson ákváðu að
byggja hús í stað þess að kaupa gamalt enda varþað ódýrara
ljós en við hefðum ekki þurft svona
mörg ljós í loftið og það sjáum við
núna.“
Dýrara en við bjuggumst við
Guðbjörg segir að það hafi hentað
þeim mjög vel að byggja hús því þau
voru með mjög ákveðnar hugmynd-
ir um hvernig húsið ætti að líta út.
„Með því að byggja ráðum við öllu
sjálf og það var það sem við vildum.
Auk þess var þetta miklu ódýrara
en að kaupa einbýlishús. Þrátt fyrir
það kostaði húsið meira en við bjugg-
umst við í fyrstu. Við gerðum kostn-
aðaráætlun en það er alltaf eitthvað
meira sem bætist við. Við héldum
okkur við áætlunina en það komu
ýmsir kostnaðarliðir í ljós sem við
bjuggumst ekki við. Upphaflega
vissum við nokkurn veginn hvernig
við vildum hafa húsið. Ég teiknaði
það upp og við veltum þessu mikið
fyrir okkur. Við keyrðum líka um
ný hverfi og fengum teikningar af
húsum til að skoða. Húsið sjálft er
kassi þannig að það eru ekki marg-
Himinlifandi Guðrún Thelma er
himinlifandi meö nýja herbergið.
ir möguleikar sem þetta býður upp
á, sérstaklega ef maður vill hafa
glugga í öllum herbergjum. En við
erum ótrúlega sátt við hönnunina
og ánægð með húsið."
svanhvit@bladid.net