blaðið - 21.09.2006, Page 8

blaðið - 21.09.2006, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 blaðiö Við opnum í þessari viku nýjar og glæsilegar LUSH verslanir á LAUGAVEGI OG KRINGLUNNI. Okkur vantar hörkuduglegt starfsfóik strax. • Ertu ábyrgðarfull • Ábyrg og reyklaus? • Getur þú unnið sjálfstætt? • Hefur þú skipulagshæfileika? • Hefur þú reynslu af afgreiðslustörfum? • Hefur þú áhuga á ilmkjarnaolíumeðferðum? • Þekkirðu tU náttúruvaranna frá Lush? Ef þú hefur það sem til þarf sendu okkur þá umsókn á upplysingar@Iush. is eða skUaðu inn umsókn í verslun okkar í Kringlunni, 1. hæð. Umsóknarfrestur er tU 24.sept Lush framleiðir og selur ferskar og náttúrulegar snyrtivörur i rúmlega 400 sérverslunum um allan heim. Lush forðast í lengstu lög að nota gerviefni við framleiðsluna og er alfarið á móti tUraunum á dýrum. Lush hefur starfað á íslandi í 4 ár Stud vwufyur fyrír bdkrð Læknar mæla með þessum haldara Verð kr. 3.990 Opnunartím Mán-fös 11 Lau 11-14 Uuíuruk? Hamraborg7 Kópavogi Sími 544 4088 www.ynja.is Útsölustaðir: Esar Húsavík- Dalakjör Búðardal UTAN UR HEIMI Áframhaldandi óeirðir Mótmælendur og lögregla tókust öðru sinni á í Búda- pest á þriðjudagskvöldið. Um tíu þúsund manns tóku þátt í mótmælagöngu þar sem krafist var afsagnar Gyurcsany forsætisráðherra vegna ummæla hans um að hafa logið að þjóðinni í kosningabaráttunni. Frestuðu lendingu Atlantis Lendingu bandarísku geimskutlunnar Atlantis var frestað um sólarhring eftir að óþekktir hlutir sáust á sveimi í nánd við skutluna. Skutlan átti upphaflega að lenda í gær. Líklegt má telja að ísklumpur hafi brotnað af ferjunni. Fötluð börn og ungmenni: Enginn vill taka ábyrgð á fötluðum ■ Alvarlegt ástand ■ Ný skýrsla veldur vonbrigðum ■ Foreldrar hrekjast af vinnumarkaði Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net .Ástandið er mjög alvarlegt og foreldrar vita ekki lengur hvað þeir eiga að gera í stöðunni,“ segir Jarþrúður Þórhallsdóttir, foreldra- ráðgjafi hjá ráðgjafarmiðstöðinni Sjónarhóli. Hún segir fjölmarga foreldra fatlaðra barna hafa leitað til sín að undanförnu þar sem þeir fá ekki dagvistun fyrir börnin eftir að skólatíma lýkur. „í þessari stöðu verður yfirleitt annað foreldrið að minnka við sig vinnu og jafnvel hætta. Þannig er það bara og heldur áfram þangað til barnið fer í búsetu og flytur að heiman.“ Töluverður fjöldi fatlaðra barna og ungmenna á aldrinum 10 til 20 ára fær hvergi inni eftir að skóla- tíma lýkur á daginn þar sem ekki næst samstaða milli ríkis og sveit- arfélaga um kostnaðarskiptingu og ábyrgð á málaflokknum. Ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára fengu inni í Miðbergi í Breiðholti þangað til síðasta vor en þá ákvað ríkið einhliða að hætta umsjón með þeirri aðstöðu og vísa ábyrgðinni yfir á sveitarfélögin. Reykjavíkur- borg hefur enn ekki tekið afstöðu til málsins en í samtali við Blaðið í gær sagðist Sigríður Jónsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavík- urborgar, vonast til þess að lausn fyndist á málinu fyrir helgi. Þá hefur deila um kostnaðarskipt- ingu milli ríkis og sveitarfélaga ,,Á standið er mjög alvarlegt“ Jarþrúður Þórhallsdóttir foreldraráðgjafi hjá Sjónarhóli einnig valdið því að um 400 fötluð börn á aldrinum 10 til 16 ára fá enga dagsvistun eftir skóla. Félags- málaráðherra skipaði sérstakan starfshóp til að fjalla um málið í síðastliðnum marsmánuði og skil- aði hann frá sér skýrslu um síðustu mánaðamót. Þar kemur fram vilji allra aðila til að leysa málið en að öðru leyti eru menn ekki sammála um lausnir og kostnað. Jarþrúður segir skýrsluna hafa valdið gríðarlegum vonbrigðum þar sem margir foreldrar höfðu bundið miklar vonir við hana. „Það var mikið áfall fyrir foreldra að málið skyldi enn vera fast þrátt fyrir þessa góðu úttekt.“ Jarþrúður bendir á að heppilegra væri að málefni fatlaðra væru flutt alfarið á hendur sveitarfélaganna og væru þannig aðeins á einni hendi. „Þá væri ekki hægt að henda bolt- anum svona á milli og menn gætu komist að niðurstöðu." Sigurður Öli Kolbeinsson.hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélög bjóða upp á dagvistun fyrir fötluð börn í 1. til 4. bekk. Það sé hins vegar val sveitarfélaganna að bjóða upp á slíka þjónustu en al- Fötluð ungmenni: Fá hvergi inni eftir að skóla lýkur ■ Stofnanir vfsa hver á aðra ■ Kostar 60 þúsund á hvert ungmenni Um >0 ttoW4 •Mmmm íi hmrai lnai I lclfinu * ikdialimi l#fci»r þar ma hmrki uM4( rr . iriMi. ul >6 uka fc.- •» ur Mln, barnanna «. orflm, fanUru Nu.„ þMnml. hmf.r n4 ■ Blaðið laugardaginn 16. september ■nHM|M Vdfcrfl.mfl Rrf mennt tilheyri málaflokkurinn rík- inu. „Það stendur skýrt í lögum að málefni fatlaðra séu í höndum rík- isins. Þar er líka getið um þjónustu sem ríkið á að veita, til dæmis dag- vistunarstofnanir. Sveitarfélögin telja því að það sé engin lagaskylda á þeim að bjóða þessa þjónustu fyrir krakka í 5. bekk og upp úr.“ Sigurður bendir á að sveitarfé- lögin hafi engu að síður boðist til að koma upp dagsvistun fyrir eldri börn gegn því að ríkið greiði helm- ing af heildarkostnaði. Þar greinir hins vegar aðila á og er kostnaðar- mat ríkisins töluvert lægra en það sem sveitarfélögin áætla. „Ríkið við- urkennir ekki okkar útreikninga og mat þess er um 60% lægra en okkar. Það sem ríkið vill borga er því að- eins dropi í hafið.“ Oryrkjar mótmæla skeröingu: Stefnir í umfangsmikil réttarhöld Fundað var víða í gær vegna fyrirhugaðra skerðinga fjórtán líf- eyrissjóða á lífeyri til öryrkja. Efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis tók málið til umfjöllunar, stjórn lífeyrissjóðsins Gildis fjallaði um málið og þá var rætt um það á mið- stjórnarfundi Alþýðusambands ís- lands (ASÍ). öryrkjabandalag Islands (ÖBl) hefur gagnrýnt skerðingarnar harð- lega og segir þær beinast gegn þeim sem minnst hafa í þjóðfélaginu. Hefur bandalagið lýst því yfir að það muni höfða mál á hendur sjóð- unum ef þeir falli ekki frá ákvörðun sinni eða fresti henni ótímabundið. Samkvæmt upplýsingum frá lífeyrissjóðnum Gildi verður ekki verður fallið frá skerðingunum að svo stöddu. Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, sagði í samtali við Blaðið í gær að málið yrði þó áfram til umfjöllunar. „Stjórnin hefur ekki breytt fyrri ákvörðun en mun hlusta á allar rök- semdir í málinu.“ Grétar Þorsteinsson, forSeti ASÍ, sagði að á fundi miðstjóniarinnar hafi menn skipst á skoðunum um málið en bendir á að allar ákvarð- anir liggi hjá lífeyrissjóðunum. Lofar 1im- fangsmiklum réttarhöldum Sigurstelnn Másson formaúur ÖBl, Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, segir ljóst að haldist ákvörðun lífeyrissjóðanna óbreytt verði höfðað mál. „Ef lífeyrissjóðirnir ætla að keyra þetta mál í gegn þá förum við klárlega í mál eins fljótt og mögulegt er.”

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.