blaðið - 21.09.2006, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006
blaöiö
HVAÐ MANSTU?
1. Viö hvað starfaði Leo Fender? ?" r —-"1 —- fi
3. Hvað var Haraldur hárfagri kallaður af tískulöggum 9. aldar?
4. Hver lék bassaleikarann Sid Vicious í myndinni Sid and Nancy?
5. í hvaða ríki er lægsta fæðingartíðni heims?
gjfcSQESRK
Svör:
,-h c œ c
.a. E
CO »0 ro •
S o '
= E *
íéB
r- E r- 3 C3-
c= Z3 £= 05 ■ ,
D W □ > I
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur KAUP 70,01 SALA 70,35
Sterllngspund 131,78 132,42 11
Dönsk króna 11,887 11,957 m wm mwm
Norsk króna 10,699 10,731 aa
Sænsk króna 9,617 9,673 ■5
Evra 88,69 88,94 BÉ
Taíland:
Nýr ráðherra
eftir 14 daga
Sonthi Boonyaratglin, hershöfð-
inginn sem stóð fyrir valdaráninu
í Taílandi á þriðjudaginn, segir að
nýr forsæt-
isráðherra
verði skipaður
innan tveggja
vikna. Hers-
höfðinginn
sagði á blaða-
mannafundi
að kosningar
yrðu haldnar
í Iandinu innan árs, þegar búið
væri að semja nýja stjórnarskrá.
Skriðdrekar keyrðu inn í Bangkok,
höfðuborg landsins, á þriðjudag-
inn og var herlögum lýst yfir í
kjölfarið.
Thaksin Shinawatra, forsætis-
ráðherra landsins, kom til London
í gær, en hann hefur verið staddur
í New York undanfarna daga og
sótt allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna. Hann lýsti strax yfir
neyðarástandi í landinu og rak
hershöfðingjann eftir að fréttir
bárust afvaldaráninu. Thaksin
hefur verið mjög umdeildur í
heimalandinu, en stjórnarkreppa
hefur ríkt í landinu frá því að
stjórnarandstaðan sniðgekk þing-
kosningar fyrr á árinu.
blaóiön
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Tæplega sex hundruð tilkynningar um barnaklám á síðasta ári:
Fleiri teknir
með barnaklám
■ íslenskum síðum lokað ■ Unglingsstúlkur með ósiðlegar myndir
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Á síðasta ári fengum við 589 ábend-
ingar um barnklám á Netinu,“ segir
Hrönn Þormóðsdóttir, verkefna-
stjóri Barnaheilla, en hægt er að
tilkynna á heimasíðu þeirra um
barnaklám. Að sögn Hrannar eru
þetta aðeins tilkynningar sem ber-
ast þeim en svo fær lögreglan einnig
ábendingar og því má búast við að
þær séu talsvert fleiri. Dæmi eru
um að íslenskum síðum sem hýstu
ósiðlegt efni hafi verið lokað en
ekki var um eiginlegt barnaklám að
ræða í þeim tilvikum.
„Við höfum tekið eftir því að það
er alltaf að verða hærra hlutfall af
tilkynningum sem er raunverulegt
barnaklám," segir Hrönn en af þeim
589 tilkynningum sem bárust voru
um 30 prósent barnaklám. Hinar
tilkynningarnar eru efni sem fólki
býður við en er ekki ólöglegt.
Hún segir það alvarlegt áhyggju-
efni að tölurnar skulu vera að
hækka og bendir á að erlendir koll-
egar hennar hafi tekið eftir sömu
þróun úti í heimi.
Samkvæmt Hrönn hefur Barna-
heill haft samband við þá sem hýsa
síður á íslandi vegna ósiðlegra
heimasíðna en þá var ekki um barna-
klám að ræða. í einu tilfelli voru
brandarar um barnamisnotkun á
heimasiðu og segir Hrönn að þeir
sem hýstu hana hafi brugðist vel og
ræddu við þann sem hélt henni úti.
„Það hefur komið fyrir að ungar
stúlkur hafi sjálfar sett ósiðlegar
myndir af sér á heimasíðuna sína,“
segir Hrönn og bætir við að það sé
óhugnanleg þróun sem foreldrar
verði að sporna við.
Búið er að skerpa nokkuð á lögum
um tölvuglæpi af þessari tegund en
að sögn Ránar Ingvarsdóttur, lög-
fræðings hjá Barnaheillum, var það
stórt skref í rétta þegar breytingar á
hegningarlögum voru samþykktar
í byrjun júní síðastliðins. Það þýðir
að það ætti að vera auðveldara að
fást við slík mál.
Rán bendir einnig á að Netið sé
afar hraður miðill og lögin verði að
halda í við aukna kunnáttu glæpa-
manna af þessum toga. Hún seg-
ist vilja sjá refsirammann nýttan
betur við glæpum sem þessum en
hámarksrefsing er tvö ár ef brot er
stórfellt. Upp á siðkastið hafa brota-
menn hlotið fjögurra mánaða fang-
elsi og þar af tveir í skilorði. Hún
segist vonast til þess að þessi laga-
breyting verði til þess að brúa þá
gjá sem myndast hefur milli laga og
tækni.
Á þriðjudaginn voru gerðar hús-
leitir í fjórum umdæmum eftir
ábendingu Interpol vegna gruns um
barnaklám hér á landi. Tveir menn
voru handteknir í Reykjavík og einn
á Isafirði. Þeim hefur öllum verið
sleppt. Lögreglan er að rannsaka
tölvurnar en þær eru allnokkrar. í
Kópavogi var lagt hald á sex tölvur
á einu heimili og voru þær í eigu
nokkurra manna. Enn sem komið
er ekki uppi grunur um alþjóðlegan
barnaklámshring.
Bragðgóð kex
TlLVALIN SEM NESTI f SKÓLANN OG VINNUNA
■c':
Pakkað í umbúðir sem gerir það sérlega hentugt
SEM NESTI í SKÓLANN OG VINNUNA
Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum
V
Dreihng:Yggdrasill EHF
SUÐURHRAUN 12b
Garðabæ
J
Frjálsir demókratar í Japan:
Abe verður næsti
forsætisráðherra
Frjálslyndir demókratar í Japan
kusu í gær Shinzo Abe til að taka
við formennsku í flokknum af Koiz-
umi forsætisráðherra.
Þingið mun staðfesta skipun
Abe í embætti forsætisráðherra á
þriðjudaginn. Abe naut stuðnings
Koizumis í kjörinu, en Abe hlaut
464 atkvæði af 703. Abe á 52 ára af-
mæli í dag og verður yngsti maður-
inn til að taka við embætti forsæt-
isráðherra í Japan. Hann er sonur
fyrrverandi utanríkisráðherra
landsins og barnabarn fyrrum
forsætisráðherra.
Abe vill endurskoða stjórnarskrá
landsins, halda efnahagsumbótum
Næsti forstætisráðherra Shinzo
Abe eryngsti maðurinn til að taka
við embættinu.
áfram og efla samskipti landsins
við helstu nágrannarlkin.