blaðið


blaðið - 21.09.2006, Qupperneq 21

blaðið - 21.09.2006, Qupperneq 21
blaöió FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 29 Háværari Heimdall Unga fólkið þarf að skerpa áherslurnar í pólitíkinni Heiðrun Lind Marteinsdóttir f dag gefst ungu sjálfstæðisfólki í Reykjavík tækifæri til þess að velja nýjan formann og nýja stjórn Heimdallar. Ég tilkynnti fyrir nokkru síðan um frambóð mitt til formanns Heimdallar. Hafa ellefu skeleggir Heimdellingar gengið til liðs við mig og bjóða þeir sig fram til stjórnar Heimdallar. f samein- ingu höfum við virkjað með okkur mörg hundruð Heimdellinga og nokkur hundruð unga Reykvík- inga til viðbótar sem hafa ákveðið að ganga í Heimdall. Hefur kosningabaráttan verið einstaklega skemmtileg. Ekki hvað síst fyrir það hversu góðan með- byr við höfum fundið og hversu vel Heimdellingar hafa tekið fram- boði okkar. Á kosningaskrifstofu okkar í Aðalstræti 6 hafa komið fjölmargir stuðningsmenn og vel- unnarar framboðsins og unnið mikið og óeigingjarnt starf. Við sem bjóðum okkur fram saman höfum gert það undir þeim formerkjum að meiri kraft, elju og sýnileika þurfi í Heimdall. f Heim- dalli er stór hluti félagsmanna ungliðahreyfingar Sjálfstæðis- flokksins. Þessa félagsmenn þarf að virkja og i svo stóru félagi þarf að heyrast. Heimdallur hefur fengi verið far- vegur hugsjóna. Hann hefur verið skemmtilegur og áhugaverður vett- vangur ungs fólks sem finna vill hugsjónum sínum um frelsi ein- staklingsins farveg. Nýlega hefur hins vegar Heimdallur hljóðnað, dregið hefur úr þeim krafti og þeirri grósku sem einkennt hefur og einkenna á Heimdall. Það er meðal annars af þeirri ástæðu sem ég ákvað að bjóða mig fram til formanns Heimdallar. Við sem bjóðum okkur fram saman til stjórnar Heinfilallar höfum öll metnað til þess að Heimdallur skipi þann sess í þjóðmáiaumræð- unni sem hann á skilið og verði opinn og frjór vettvangur skoðana enn á ný. Rétt er að minna á að aðalfundur Heimdallar verður haldinn í Val- höll, Háaleitisbraut i, í dag og hefst klukkan 15.00. Nánari upplýsingar um okkur sem bjóðum okkur fram til stjórnar Heimdailar má nálgast á www.dallurinn.is. Höfundur er á síðasta ári magistersnáms í lögfræði. SNIÁAUGLÝSINGAR 5103735 blaðiðn SMAAUQLYSmGAR&BLAÐlOJVET 21. - 24. september 1/1 ferskur kjúklingur 468 kr. 30% afsl Úrb. Bringur án skinns 1.686 kr. 30% afsl. Kjúklingalæri/leggir magnbakki 484 kr. 30% afsl 4 hamborgarar m. brauði 459 kr. 20% afsl. Londonlamb úr framparti 1.239 kr. 20% afsl. Grillaður kjúklingur, franskar og 2 I. Coke Kindakæfa 200 gr. 225 kr. 20% afsl Lqttu kjötiðnaðarmenn okkar ráðleqqja þér! UR KJOTBORÐI

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.