blaðið - 21.09.2006, Síða 23
blaðið
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2006 31
„Ég vissi alltaf að ég hefði meiri áhuga á að skrifa og ég verð líka að fá
ao ráða hlutunum sjálfur. Það r
er mjög sterkt í mér. Eg er náttúrlega al-
veg minn eigin herra og ég efast um að ég gæti skrifað bók með öðrum.“
Bragi Ólafsson
Bragi Olafsson endurnýjar kynnin af tónlistinni
Rykið dustað af bassanum
Sykurmolarnir á Ieiksvið Bragi Ólafsson hefur lengi gengið með þá hug-
mynd í maganum að skrifa leikrit um hljómsveitarlífiö sem yrði byggt á reynslu
hans með Sykurmolunum.
Bragi Ólafsson gerði garð-
inn frægan sem bassa-
leikari Sykurmolanna
á sínum tíma. Eftir að
hljómsveitin lagði upp
laupana síðla árs 1992 lagði Bragi
hljóðfærið á hilluna og sneri sér
heill og óskiptur að ritstörfum. í til-
efni af endurkomu Sykurmolanna
mun Bragi hins vegar taka upp
bassann á ný og rifja upp gamla
takta.
„Ég er ekki enn þá kominn með
hljóðfærið í hendurnar en þegar ég
hugsa um lögin bá hlakka ég bara
til að spila þau. Eg held að þetta sé
svipað og að læra að keyra bíl. Það
gleymist ekkert. Það er nóg að setj-
ast einu sinni upp í og þá rifjast
þetta upp,“ segir Bragi og bætir við
að hann finni ekki lengur hjá sér
þörf fyrir að spila og semja tónlist.
Gæti ekki skrifað bók með öðrum
„Ég fann að það gekk ekki saman
að vera að vinna í þessu hvoru
tveggja þannig að ég varð í raun og
veru að velja á milli. Ég vissi alltaf
að ég hefði meiri áhuga á að skrifa
og ég verð líka að fá að ráða hlut-
unum sjálfur. Það er mjög sterkt í
mér. Ég er náttúrlega alveg minn
eigin herra og ég efast um að ég gæti
skrifað bók með öðrum,“ segir Bragi
og bætir við að þetta hafi ágerst eftir
að hafa unnið einn í nokkur ár. En
skyldi hann þá ekki vera erfiðari í
samstarfi núna?
„Það skiptir kannski ekki máli
núna vegna þess að við göngum inn
í eitthvað sem er fyrirfram tilbúið.
Ég yrði örugglega erfiðari í sam-
starfi ef við færum að semja ný lög
en það stendur ekki til.“
Líkið lífgað við
Bragi segir að það hafi aldrei
staðið til að Sykurmolarnir kæmu
saman á ný.
„Það hefur ekki verið stemning
fyrir því enda erum við ekki mjög
hrifin af svona endurkomum þegar
það er verið að lífga við einhver lík
segir Bragi en bendir á að nú sé til-
efnið sérstakt.
„Þetta er bæði gert til að halda upp
á afmæli Ammælis og til að hjálpa
Smekkleysu sem mætti standa
betur fjárhagslega. Þetta er í raun
svipað því þegar við gáfum út póst-
kort í tengslum við leiðtogafundinn
1986. Við notuðum peningana sem
við græddum á því í útgáfu smáskíf-
unnar Ammælis. Núna erum við að
nota Sykurmolana til að fjármagna
Smckkleysu," segir Bragi.
Hljómsveitarlífið inn-
blástur að leikriti
Bragi segir að Sykurmolatíma-
bilið hafi einkennst af mikilli
keyrslu á stuttum tíma. „Þetta var
ofsalega skemmtilegt en ég held að
maður hafi á vissan hátt yfirkeyrt
sig á öllum þessum ferðalögum.
Þetta var ofsalega mikil vinna og
bið. Þegar maður er í stúdíói eða
að ferðast þá er afskaplega mikill
tími sem fer til einskis en þetta er
samt mjög andlega krefjandi. Ég
held að ég myndi aldrei geta farið
í svona rúnt aftur,“ segir Bragi sem
segist þó hafa lært margt á þessu.
Hann hefur meira að segja gælt
við þá hugmynd að skrifa leikrit
um hljómsveit sem yrði byggt á
þeirri reynslu sem hann öðlaðist á
þessum árum.
„Hljómsveit sem starfar saman er
í raun mjög spennandi samskipta-
form. Þessi hugmynd er alltaf að
þróast og ég mun skelfa hina Sykur-
molana með því að skrifa um hana
einhvern tima. Þeir eiga það yfir
höfði sér,“ segir Bragi.
Nú á dögum þykir ekki mikið
tiltökumál að íslenskir tónlistar-
menn reyni fyrir sér erlendis og
tekur Bragi undir að árangur Syk-
urmolanna og síðar Bjarkar hafi
haft einhver áhrif þar á,
„Tengslin sem Sykurmolarnir
mynduðu við fyrirtæki og fólk úti
nýttust mjög mörgum og nýtast
enn. Björk er að vinna með mikið
til sama fólkinu og Sykurmolarnir
unnu með á sínum tíma,“ segir
Bragi Ólafsson að lokum.
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll hefur verið
frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Islandi
Miklar og góðar breytingar
hafa orðið í gleraugnasölu
á Islandi frá því 17. september
1996 þegar Gleraugnaverslunin
Sjónarhóll opnaði. Sjónarhóll
hefur frá upphafi lagt áherslu á
að vera með vandaða vöru en
bjóða engu að síður hagstæðasta
verðið. Þetta var og er markmið
Sjónarhóls og teljum við okkur
hafa náð góðum árangri á sl. 10
árum.
Ástæða þess að Gleraugna-
verslunin Sjónarhóll var sett á
laggirnar var óheyrilega hátt verð
gleraugna á Islandi fram til ársins
1996. Á þessum tíma borgaði
sig fyrir einstakling að takast á
hendur ferð til útlanda, kaupa
þar gleraugu, og borga ferðina
með mismuninum. Ut frá þessu
vaknaði hugmyndin að gera
eitthvað í þessu. Fundin var leið
og Gleraugnaverslun Sjónarhóls
var opnuð 17. september 1996
og byrjaði hún sem póstverslun.
I verðkönnun sem gerð var 10
dögum eftir að Sjónarhóll opnaði
var verðmunur í sumum tilvikum
allt að 74%. Eitthvað hefur dregið
saman í verði sem betur fer en í
léttri verðkönnun sem starfsfólk
Sjónarhóls gerði um daginn
kom í Ijós að enn er boðið upp
á mjög mismunandi gæði og þá
sérstaklega hvað glerin varðar
og skoðuðum við því eingöngu
sambærilega vöru og við bjóðum
sjálf. I þessari könnun var
verðmunurinn að jafnaði frá
9.000 til hátt í 20.000,- kr.
Verslunin Sjónarhóll heldur upp á tíu ára afmæli um þessar mundir. Mynd Frikki
Við bjóðum nánast öll gler
frá BBGR í Frakklandi og
umgjarðir frá viðurkenndum
framleiðendum víða um heim en
helstu framleiðslulönd umgjarða
Sjónarhóls eru Frakkland, Italía
og Japan. Reglulegar kynningar
eru í versluninni tvisvar á ári þar
sem við fáum til okkar hönnuði
og sérfræðinga að utan sem
aðstoða viðskiptavini okkar og
ráðleggja.
Fyrir S árum fluttum við alla
smíði heim og hefur svo verið
allar götur síðan.
Versluninni er reglulega hrósað
fyrir mikið úrval, gott verð, góða
þjónustu og hlýlegt umhverfi.
Kunnum við viðskiptavinum
okkar bestu þakkir fyrir það.
Varðandi orðróm um
draugagang á Sjónarhól þá er
ekki laust við að við höfum
orðið vör við hann og höfum
við það fyrir satt að sést hafi til
eldri konu á Sjónarhól í nokkur
skipti, verkfæri hafa horfið um
stund en fundist aftur á sama
stað og dæmi eru um að gler
hafi horfið. Gaman er að segja
frá að einn góðviðrisdag sumarið
2005 stóðu þrír af starfsmönnum
Sjónarhóls út við glugga, þar
sem verið var að laga hann.
Fyrir utan stóð bíll í gangi. Þar
sem þau standa þarna opnast
bílstjórahurð bílsins hægt og
síðan fara rúðuþurkurnar í gang
og voru skildar eftir í gangi, en
Warðandi orðróm
* um draugagang ó
Sjónarhól þó er ekki
laust við að við höfum
orðið vör við hann og
höfum við það fyrir
satt að sést hafi til
eldri konu ó Sjónarhól í
nokkur skipti, verkfæri
hafa horfið um stund
en fundist aftur ó sama
stað og dæmi eru um
að gler hafi horfið.
hvergi sást til manna ferða. Öll
þrjú sáu þau þetta gerast og
ekki er laust við að farið hafi um
mannskapinn við þennan atburð.
Eigendur fyrirtækisins
eru Björg Marteinsdóttir
sjálfsvarnarkennari og Ólafur
Einarsson rafeindaiðnfræðingur
og framkvæmdastjóri.
Sjóntækjafræðingur Sjónarhóls
er Egill Ingólfsson.Alls eru 6
starfsmenn á Sjónarhól.