blaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 blaðið Mannréttindadómstóll Evrópu þarf aö skoða tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur: Jónína Ben farin með tölvupóstana til Brussel ■ Mannvonskan í algleymingi, segir Jónína Benediktsdóttir ■ Ég lagði allt undir, segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður ■ Gríðarleg vonbrigði, segir lögmaður Jónínu Jónína Benediktsdóttir Ég er bjartsýn á sigur fyrir mína hönd og íslensks samfélags. Kjartan Gunnarsson Mælti með vini sínum Jóni Steinari sem lögmanni fyrir Jón Gerald „Ég er mjög stolt af mínum skrifum og sé ekki eftir neinu varðandi birtingu tölvupóstanna. I hjarta sínu veit Jónína Benedikts- dóttir hvernig við hlífðum henni í okkar umfjöllun. Við forðuðumst að birta viðkvæmar persónuupp- lýsingar um málsaðila því okkur fannst það ekki smekklegt,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, blaða- maður. Hún hlaut titilinn Rann- sóknarblaðamaður ársins 2005 fyrir fréttaflutning um aðdraganda baugsmálsins þar sem birt var upp úr tölvupóstum Jónínu Benedikts- dóttur, íþróttafræðings, og Styrmis Gunnarssonar, ristjóra Morgun- blaðsins. Rúmt er síðan Fréttablaðið birti hina umdeildu tölvupósta í þeim tilgangi að vekja athygli á víðtæku samráði í undirbúningi málaferlana gegn forsvarmönnum Baugs Group. Jónína fékk sett lög- bann á birtingu og umfjöllun um tölvupósta hennar í tengslum við málið á þeim forsendum að verið væri að hnýsast í einkamál. Fyrsta júní 2006 voru 365 prentmiðlar og Kári sýknaðir í Hæstarétti af ákæru Jónínu. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að umræddir tölvupóstar væru gögn sem ættu er- indi við almenning og því hafi verið óhjákvæmilegt að ganga svo nærri einkalífi Jónínu. Stærsta fréttaskúbb samtímans Jón Magnússon, lögmaður og verjandi Fréttablaðsins og Kára, segist ekki hafa verið í nokkrum vafa um niðurstöðu Hæsta- réttar og að HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍK B u m 1 Jón Asgeír Jóhannesson Hefur sagt tölvupóstana sýna að launráð hafi verið framin. Hæstiréttur tókaðsérþað <* hlutverk að finna varnir í málinu Hróbjartur Jónatansson lögmaður A Réttur almenn- ings til að fá upplýsingar var viðurkenndur V ~ jfHl Arna Schram P WSÍÍm tormaöur Blaðamanna- félags Islands frw, f m 'm. ' » ■ Égermjög stoitafmínum skrifumogsé ekki eftir neinu Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður „Niðurstaða Hæstaréttar um birt- ingu tölvupóstanna er skelfileg og mannvonskan þar í algleymingi," segir Jónína. „Fyrir það fyrsta er skelfilegt að Baugsmenn skyldu sjá hag sinn í því að brjótast inn í tölvu- kerfi mitt og stela gögnum. Engir aðrir en þeir hafa slíkan ásetning og því koma ekki aðrir til greina. 1 mínum huga er ekki nokkur vafi á því að þessir menn eru sekir.“ Fölsuð gögn Aðspurð leggur Jónína á það ríka áherslu að átt hafi verið við tölu- pósta sína. „Tölvupóstarnir voru þvældir fram og til baka og þeim sem ekki hentuðu eigendum fjölmiðilsins var eytt,“ bætir Jónína við. Sigríður Dögg segir útilokað að slíkt hafi átt sér stað og ef eitthvað er þá hafi verið forðast að birta mjög viðkvæmar upplýsingar. Enn frekar hafi Styrmir staðfest að tólvupóst- arnir hafi verið ófalsaðir. „Ég lagði framtíð mína í blaða- mennsku undir í þessu máli því mér fannst svo mikilvægt að þessar upp- lýsingar yrðu birtar. Trúverðugleiki minn og framtíð mín sem blaða- manns valt á því hvernig ég ynni úr þessum gögnum,“ segir Sigríður Dögg. Gríðarleg vonbrigði Hróbjartur Jónatanson, lögmaður og sækjandi fyrir hönd Jónínu, tekur undir orð Jónínu og segir niðurstöðu Hæstaréttar í mál- inu að vera ranga að öllu leyti. „Ég er gríðarlega ósáttur með nið- urstöðu Hæstaréttar í þessu máli. Það er mín einlæg sannfæring að birting tölvupóstanna hafi verið skírt brot á friðhelgi einkalífs þess fólks sem þarna átti í hlut,“ segir Hróbjartur. „Sannanlega voru þessir tölvupóstar teknir ófrjálsri hendi og þeir birtir í óþökk eiganda. Að mínu mati eru trúnaðarsamskipti manna vernduð bæði í Stjórnarskrá Islands og mannréttingalögum Evrópu.“ Jón er ósammála Hróbjarti að öllu leyti og telur niðurstöðu Hæsta- réttar einu raunhæfu niðurstöðu málsins. m j Þettaereitt ® stærsta frétta- skúbb i íslenskum r fjölmiðlum m Jón Magnússon lögmaður birting tölvupóstanna hafi verið mikilvæg. „Þetta er eitt stærsta fréttaskúbb sem komið hefur fram í íslenskum fjölmiðlum. í mínum huga var það enginn spurning, ef dómur hefði fallið öðruvísi, að íslensk blaða- mannastétt hefði þurft að fara með málið lengra,,, segir fón. Jón Gerald Sullenberger Þessi niðurstaða Hæstaréttar er hræðileg. Mannvonskan í algleymingi Jónína Benediktsdóttir, íþrótta- fræðingur, segir niðurstöðu Hæsta- réttar lykta af pólitík og hafi ekkert með sig sem persónu að gera né einkalíf sitt. Jóhannes Jónsson Hefursagt að tölvupóstarnir sanni að unnið hafi verið gegn sér og sínum. Jón Steinar Gunnlaugsson Mætti á fund ritsjóra Mor- gunablaðsins og Kjartans smálsins. B. GR. FRIÐHELGIEINKALIFS OG FJÖLSKYLDU Sérhver maður á rétt til friðhelgí einkalífs síns, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. Stjórnarskrá lýðveldisins Islands 71. GR. ALLIR SKULU NJÓTA FRIÐHELGIEINKALÍFS, HEIMILIS OG FJÖLSKYLDU. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns. FRÉTTAÚTTEKT TÖL VUPÓSTSMÁUÐ EFTIR TRAUSTA HAFSTEINSSON

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.