blaðið - 05.10.2006, Síða 21

blaðið - 05.10.2006, Síða 21
blaöið FIMMTUDAGUR S. OKTÓBER 2006 29 „Ég er gríðarlega ósáttur með niðurstöðu Hæstaréttar í þessu máli. Það er mín einlæg sann- færing að birting tölvupóstanna hafi verið skírt brot á friðhelgi einkalífs þess fólks sem þarna átti I hlut, “ segir Hróbjartur. „Sannanlega voru þessir tölvu- póstar teknir ófrjálsri hendi og þeir birtir i óþökk eiganda. Að minu mati eru trúnaðarsam- skipti manna vernduð bæði í Stjórnarskrá íslands og mann- réttingalögum Evrópu." „Ég var aldrei í nokkrum vafa um hvernig dómur félli í þessu máli,“ segir Jón. Birtingin réttlætanleg Arna Schram, formaður Blaða- mannafélags Islands, telur birtingu tölvupóstanna réttlætanlega og með niðurstöðunni hafi síður en svo verið dregið úr ábyrgð fjölmiðla. „Við fögnum endanlegri niður- stöðu Hæstaréttar þar sem réttur almennings til að fá upplýsingar var viðurkenndur og um leið réttur fjöl- miðla til að miðla þeim,“ segir Arna. „1 fjölmiðlaumfjöllun takast iðulega á réttur almennings gegn einkalífi fólk og í sumum tilvikum er réttur almennings sterkari. Dómur Hæsta- réttar undirstrikar það,“ segir hún. „Birting fréttar er algjörlega á ábyrgð fjölmiðla og dómurinn dregur ekki úr þeirri ábyrgð. Hvort að tölvu- póstarnir hafi verið fengnir með ófrjálsri hendi er óvíst og fékkst ekki sannað fyrir dómi,“ bætir Arna við. Mikilvæg umfjöllun Sigríður Dögg tekur undir með Örnu og segir ljóst að ákvörðun fyrir birtingu tölvupóstanna var byggð á mikilvægi þess að almenningur fengi vitneskju um innihald þeirra og það hafi verið mikilvægara en einkahagsmunir gerenda. „Niðurstaða dómstóla var mjög mikilvæg því með henni fékkst við- urkenning fyrir birtingunni og með hvaða hætti var tekið á málinu,“ segir Sigríður Dögg. Ólögleg gögn Jón Gerald Sullenberger, athafna- maður, er ósammála því tölvupóstarnir séu stolin gögn og áttar sig ekki á því hvernig einkatölvu- póstar Jónínu komi almenningi við. „Þessi niðurstaða Hæstaréttar er hræðileg. Þó að Jónína hafi verið að biðja menn um aðstoð hefur ekkert með hagsmuni almennings að gera og því skil ég ekki niðustöðu dóms- ins,“ segir Jón Gerald. „Það er vitað að tölvupóstarnir voru fengnir ólög- lega. Að Hæstiréttur skuli síðan fara fram á að stolnum gögnum sé skilað aftur til þeirra sem nýttu sér stolin gögn er með ólíkindum.“ Hæstiréttur varnaraðili Hróbjartur undrast á hvaða for- sendum lögbannskröfu var vísað frá Hæstarétti enda hafi varnaraðilar ekki sjálfir lagt fram athugasemdir við hana. „Vörnin gekk ekki út á mótmæli gegn lögbannskröfunni heldur að ekki væri farið inn á einkalíf Jónínu. Hæstiréttur tekur upp með sjálfum sér að finna annmarka á lögbanns- beiðninni, eitthvað sem varnaraðilar höfðu ekki gert. Hæstiréttur tók að sér það hlutverk að finna varnir í mál- inu sem ekki voru hafðar uppi.“ Málið fer lengra Hróbjartur segir að nýlega hafi málinu verið skotið til mannréttinda- dómstóls Evrópu en það hafi verið gert fyrir nokkrum vikum. „Búið er að skjóta málinu til mann- réttindadómstólsins og þá kemur í ljós hvort brotið hafi verið gegn áttundu grein mannréttindasattmál- ans um friðhelgi einkalífsins," segir Hróbjartur. „Af sambærilegum málum úti er ljóst að rétturinn er upptekinn af friðhelgi einkalífsins og vernd bréfa- skrift. Þess eru ótvíræð dæmi og því verður málstaka þar forvitnileg." Jón segist ekki átta sig á því á hvaða forsendum málið fari fyrir mannréttindadómstólinn enda hafi Hæstiréttur tekið á persónulegum sjónarmiðum í dómi sínum. „Eftir sýknudóminn lýstu sækj- endur því yfir að þeir ætluðu að fara með málið fyrir mannréttinda- dómstól Evrópu en ég sé ekki alveg á hvaða forsendum ætti að gera það,“ segir Jón. „Á íslandi eru ákvæði um tjáningafrelsi mun víðari en ákvæði mannréttindalaga Evrópu.“ Jónína sigurviss Hróbj arturveltirþvífyrirsér hvaða þýðingu niðurstaða Hæstaréttar í málinu muni hafa í framtíðinni. „Það var öllum ljóst að notaðir voru tölvupóstar í eigu Jónínu og ótrúlegt að hinum stefndu hafi ekki verið refsað né dæmdar miskabætur í mál- inu,“ segir Hróbjartur. „Hæstiréttur lagði blessun sína yfir notkun einka- gagna og því eðlilegt að spyrja hvort næst verði heimilt að hlera einkasam- töl til birtingar í fjölmiðlum.,, Aðspurð segist Jónína bíða spennt eftir fyrirtöku málsins hjá mannrétt- indadómstól Evrópu og er sannfærð um að þar fái málið farsæl málalok. „ Af eigin skinni veit ég að þetta eru ekki eðlileg málalok. Málið er núna hjá mannréttindadómstóli Evrópu og það verður gaman að sjá niður- stöðuna þar. Ég er bjartsýn á sigur fyrir mína hönd og íslensks samfé- lags,“ segir Jónína. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, vildi ekkert tjá sig um málið. Framhald á morgun Góoæri Sumir rugla saman þenslu og góöæri. En góöæri er ekki vertíð og hagfræðilögmálin eru ekki algild. Við hjá SPV trúum því að samtímis sé hægt að slá á þenslu og viðhalda góðæri. Góðæri er góð tíð sem birtist meðal annars i því að almenningur geti viðhaldið verðmætum sínum og aukið við þau. Hvort sem það er heilsan, heimilið, sumarbústaðurinn, bíllinn eða tölvan og allt sem henni fylgir. Rýrnun verðmæta er engum í hag. Komdu i SPV í dag. $ Við lánum svo þú getir aukið verðmæti eigna þinna $ Það er góð hagfræði. 0 Góðæri er góð tíð. Framlengjum góðærið saman. Komdu til okkar í SPV SPARISJÓÐURINN Vertu með SPV og ánægðustu viðskiptavinunum Borgartúni 18 - Siðumula 1 - Hraunbæ 119 - www.spv.is Þjónustuver, simi 575 4100 - Skiptiborð. sími 575 4000

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.