blaðið - 05.10.2006, Síða 22
30 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006
blaöiö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hvenær gefur þú
okkur fimmu?
„Vonandi á fimm-tudaginn"
Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó
Mikið hefur verið deilt um leið 5 sem í daglegu tali er kölluðfimman en
menn spyrja sig hvenær hennar sé að vænta á ný.
HEYRST HEFUR...
A X iklar hræringar eru hjá bóka-
J.VJLforlögum landsins um þessar
mundir. Ekki er langt síðan það
spurðist út að Kristján B. Jónas-
son, þróunarstjóri hjá Eddu, væri
á förum frá forlaginu og i vikunni
bárust þær fréttir að Þór Steinars-
son, framkvæmdastjóri grasrótar-
útgáfunnar
Nýhils,
hefði hætt
störfum.
Hvorugur
hefur viljað
tjá sig um
ástæður
þess að þeir
ákveða að hverfa af vettvangi og
báðir segja óráðið hvað taki við hjá
þeim. Líklegt má teljast að önnur
útgáfufyrirtæki beri víur sínar í þá
félaga enda báðir miklir reynslu-
boltar með víðtæka þekkingu á
bókmenntum og útgáfumálum. Þá
gætu þeir jafnvel sameinað krafta
sina og sett á laggirnar nýtt forlag
til höfuðs risunum sem fyrir eru á
markaðnum.
Gömul tímaritanöfn ganga nú í
endurnýjun lífdaga eitt af öðru
og nýverið hóf
Eimreiðin göngu
sína á ný. Fyrir
utan nafnið á þó
gamla Eimreiðin
lítið skylt við þá
nýju sem fjallar
einkum um mál-
efni framhalds-
skólanema á breiðum grundvelli. Þá
hefja Reynir Traustason og félagar
senn útgáfu tímaritsins Isafoldar
sem hefur verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem tímaritið ísafold
kemur út en blað undir því nafni
var gefið út hér á landi frá þjóðhátíð-
arárinu 1874 fram til 1924. Líklega
verða þó efnistök í hinni nýju ísa-
fold nokkuð önnur en í forveranum
enda hefur tíðarandinn breyst.
Hver veit nema fleiri gömul
og góð tímaritanöfn verði
endurvakin í kjölfarið. Ef til vill rís
Fjölnir úr öskustónni í annað sinn
eða Ármann á Alþingi. Þá er aldrei
að vita nema einhverjum detti í hug
að hrinda af stokkunum nýjum
tímaritum á borð við Heimskringlu,
Klausturpóstinn og Ný félagsrit.
Von er á plötu með hljómsveitinni
Múm sem á verða hljóðritanir
sem hún tók upp fyrir þátt breska
útvarpsmannsins John Peel árið
2002. Fjögur lög verða á plötunni
sem verður pakkað í handgerðar
umbúðir samkvæmt heimasíðu
sveitarinnar. Nýja platan ætti að
koma í verslanir í desember. John
Peel var frægur útvarpsmaður í
heimalandi sinu sem hafði óvenju-
næmt eyra
fyrir ungum
og efnilegum
tónlistar-
mönnum og
átti stóran
þátt í því
að koma mörgum frægum þeirra
á framfæri. Af þeim tónlistar-
mönnum og hljómsveitum sem
komu fram í þáttum Peels má nefna
David Bowie, Elton John, Pixies og
The Clash.
Múm-liðar eru með fleiri járn
í eldinum því að þeir eru
um þessar mundir að ljúka vinnu
að plötu með nýju efni sem gert
er ráð fyrir að líti dagsins ljós á
vormánuðum.
Ég á milljónir aðdáenda
um allan heim
- og ég get sannað það!
Hinn heimsþekkti
Budweiser Budvar
er seldur til 52 landa
víðs vegar um heiminn
Vinsældir hans eru
ekki síst að þakka
þeirri staðreynd
að hann er bruggaður
á einum stað og eingöngu
úr bestu fáanlegu hráefnum
Hann er alltaf, alls staðar
Blað allra fram-
haldsskólanema
Margrét Þorgeirsdóttir tók ný-
verið við starfi ritstjóra Eimreiðar-
innar sem þrátt fyrir gamalkunn-
ugt nafn er glænýtt blað og er ætlað
framhaldsskólanemendum um
land allt. Margrét er sjálf nemi í Fjöl-
brautskólanum í Ármúla og hefur
lítillega fengist við blaðamennsku
þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur
tekið þátt í uppbyggingu Eimreiðar-
innar frá upphafi og var auk þess
ritstjóri skólablaðsins Króniku í
fyrra.
Margrét segir að nýja starfið legg-
ist mjög vel í sig og sé spennandi.
„Það er auðvitað mjög erfitt að
taka við þessu því að þessu fylgir
mikil ábyrgð en verður vonandi
mjög skemmtilegt líka og maður
lærir mikið á þessu. Mér finnst
mjög gaman að skrifa og enn þá
skemmtilegra að fá að ráða hvað er
í blaðinu," segir Margrét og hlær.
Fjölbreytt efnistök
í Eimreiðinni er fjallað um mál-
efni framhaldsskólanema um land
allt og áhersla lögð á fjölbreytt
efnistök.
„Þarna er til dæmis grein um
hvemig stúdentsprófið gagnast þér
í öðrum löndum þar sem það virð-
ist vera nauðsynlegt til að lifa af hér
á landi. Þá er farið yfir það sem er
að gerast í öðrum skólum. Um dag- /
inn fórum við til dæmis og tókum
púlsinn á krökkum í MR og Iðnskól-
anum. Það er fyrir þá sem nenna
ekki að lesa lengri greinarnar alveg
strax. Það grípur kannski ekki allt
alla en þetta eru mjög sniðugar
og skemmtilegar greinar,“ segir
Margrét.
Tengiliðir um land allt
Teitur Atlason, fráfarandi rit-
stjóri Eimreiðarinnar, fór hringinn
um landið í september og kynnti
blaðið fyrir framhaldsskólanemum
og skólastjórnendum. Markmiðið
er að blaðið komi sér upp tengi-
liðum um land allt sem vinni efni
í það. „Því lengur sem við gefum
blaðið út þeim mun fleiri ganga
til liðs við okkur og hjálpa okkur
að gefa þetta út,“ segir Margrét og
bætir við að þeir sem hafi áhuga
geti haft samband við sig.
einar.jonsson@bladid.net
LÉTTÖL
UPPÁHALDSBJÓR MARGRA KYNSLÓÐA
Ekki rjúpa..súpa