blaðið


blaðið - 05.10.2006, Qupperneq 28

blaðið - 05.10.2006, Qupperneq 28
3 6 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 vísindi neytendur@bladid.net Læknar herma eftir geimförum blaöið Apar fila ekki teknó Vísindamenn hafa komist aö þvi aö apar kjósa fremur þögnina en að hlusta á tónlist. Ef aparnir geta valið um hvort þeir hlusti á þýskt teknó annars vegar eða rússneskar vögguvísur hins vegar kjósa þeir fremur vögguvisurnar. Ástæðuna telja visindamennirnir vera þá að vögguvis- urnar veki upp betri tilfinningar en teknóið. J* é é * Mj. Tilraunamús með kortlagðann heila Músarheilinn kortlagður Vísindamennnafa nú kortlagt músarheilann ítarlega sem þeir vona að muni marka tímamót og veita innsýn í það hvernig mannsheilinn virkar. Kortið veitir miklar upplýsingar á erfðafræði- legum þáttum heilans, en ekkert þessu líkt hefur verið gert áður. Kortið gefur ekki einungis upp- lýsingar um genauppbyggingu heilans heldur segir einnig til um hvar genin er að finna. Kortið veitir vfsindamönnum skilvirkari skilning átengslum milli gena og líffærafræði. Kortið mun að öllum líkindum leggja grunn að mörgum rannsóknum sem leita svara við grundvallarspurningum um heilann. Skurðaðgerð í þyngdarleysi Ivikunni framkvæmdu læknar fyrstu skurðaðgerðina í þyngdar- leysi, sem er skref í áttina til þess að geta framkvæmt skurðaðgerð- ir úti í geimnum. Aðgerðin er liður í verkefni sem unnið er af Evr- ópsku geimrannsóknarstofnuninni sem miðar að því að þróa vélmenni sem getur framkvæmt aðgerðir í geimnum. Læknarnir fjarlægðu um borð í breyttri flugvéí fituæxli úr handlegg sjálfboðaliða í aðgerð sem tók um þrjár klukkustundir. Ástæð- an fyrir því að þessi aðgerð varð fyrir valinu er sú að hún er einföld og ekki sársaukafull fyrir sjúklinginn sem var staðdeyfður á meðan á henni stóð. Á meðan á aðgerðinni stóð tók flugvélin dýfur eins og rússíbani til að líkja eftir þyngdarleysi og fór hún um 30 dýfur á meðan á fluginu stóð. Það eru ýmis vandkvæði sem fylgja því að framkvæma aðgerð í þyngd- arleysi þar sem í þyngdarleysi fara hlutir á flug, til dæmis blóð, innri líf- færi og tæki og tól sem notuð eru við skurðaðgerðir. Læknarnir sem fram- kvæmdu aðgerðina hafa áður gert aðgerð á rottu við sömu aðstæður, en þá var um að ræða slagæð í hala dýrs- ins. Sjálfboðaliðinn sem lagðist und- ir hnífinn er vanur teygjustökkvari og því vanur miklum sviptingum í þyngdarafli. Sjúklingurinn oglækna- lið sem samanstendur af sex lækn- um undirbjuggu sig með svipuðum aðferðum og geimfarar nota til að undirbúa sig fyrir geimferðir. Læknarnir voru bundnir niður meðan á aðgerðinni stóð. Vinsœldirnar tengjast verðinu Haust tilboð 1.790.000 Kr. .. .en verðið tengist engan veginn markaðinum. Opel Astra hefur skapað sór sérstöðu hvað þetta varðar. Endurhugsaður frá grunni og drekkhlaðinn aukabúnaði heldur hann sessi sínum sem einn mest seldi bfll Evrópu á meðan verðið er á við ódýrustu blla á götunni. Komdu til okkar, keyrðu hann og kollvarpaðu hugmyndum þínum um Astra.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.