blaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 27
blaðið
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 3 5
Merivale elskaði Leigh ákaflega en honum fannst
eins og eftir skilnaðinn væri hann að hugga
hana eftir dauða manns sem hefði verið henni
mjög náinn. Hún bjó með Jack Merivale síðustu
árin sem hún lifði og sagði við hann einn dag-
inn: „Ég er ekki hrædd við að deyja en þú lætur
ekki loka mig inni, er það?"
hvarflaði ekki að henni að veik-
indi hennar hefðu hreinlega verið
Olivier um megn. Sjálf var hún
sannfærð um að hún hefði aldrei
yfirgefið eiginmann sinn heldur
staðið með honum í gegnum alla
erfiðleika.
Berklaveikin tók sig upp og hún
fór að hósta blóði en neitaði að fara
á sjúkrahús. Merivale kom að henni
eitt kvöldið látinni. Hún var 53
ára. Leikarinn Douglas Fairbanks
yngri sagði Laurence Olivier frá láti
hennar. Hann þagði lengi, andvarp-
aði síðan djúpt og sagði: „Vesalings,
kæra, litla Vivien.“
kolbrun@bladid.net
sinn og vini að segja sér hvað hún
hefði gert svo hún gæti beðið fólk
afsökunar. Vinur hennar John Gi-
elgud sagði: „Hún skrifaði þessu
fólki síðan bréf, sendi því blóm og
heimsótti það þegar henni batnaði
og baðst afsökunar. Gerði allt sem
hún gat til að sýna að hún hefði ekki
meint þetta. Það hlýtur að hafa verið
skelfilegt fyrir hana að vita af því að
þessi skuggi grúfði yfir henni.“
Sár skilnaður
Samlíf þeirra hjóna var orðið 01-
ivier óbærilegt. Vivien varð barns-
hafandi og hjónin gerðu sér vonir
um að allt myndi færast til betri
vegar en hún missti fóstrið. Olivier
kynntist ungri leikkonu, Joan Plow-
right, sem var gift en þau tóku upp
ástarsamband og skildu loks við
maka sína til að giftast hvort öðru.
Vivien tók skilnaðinn afar nærri
sér og leitaði huggunar hjá vini
sínum, leikara að nafni Jack Meri-
vale. Hann var ástfanginn af henni
og henni þótti afar vænt um hann
en hún talaði stöðugt um Olivier.
Hún sagði einum vini sínum að
hún hefði frekar viljað eiga stutt líf
með Olivier en langa ævi án hans.
Merivale elskaði Leigh ákaflega
en honum fannst eins og eftir skiln-
aðinn væri hann að hugga hana
eftir dauða manns sem hefði verið
henni mjög náinn. Hún bjó með
Jack Merivale síðustu árin sem hún
lifði og sagði við hann einn daginn:
„Ég er ekki hrædd við að deyja en þú
lætur ekki loka mig inni, er það?”
Hún hafði enn mynd af Olivier á
náttborði sínu og í skúffu voru tvö
bréf sem hann hafði skrifað henni
og letrið var orðið máð vegna þess
að hún las þau svo oft. Hún álasaði
ekki Olivier heldur kenndi Joan
Plowright um að hafa tekið hann
frá sér og fyrirgaf henni aldrei. Það
Weight-Loss Formula
INCREASE ENERGY
BURN CALORIESa
Fæst í öllum apótekum Lyf & heilsu
Við hlustum!