blaðið - 12.10.2006, Qupperneq 29
blaöiö
heilsa
heilsa@bladid.net
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 37
Gos i gleri
Gott er að velja glerflöskur tíl að drekka ur i stað áldósa. I gosi sem
kemur úr áldósum er sex sinnum meira af áli en i sama drykk sem
kemur úr glerflöskunni. Það eru alltaf einhver efni sem fara í drykkinn
af yfirborði iláts úr áli og plasti og þvi best að velja að drekka úr gleri.
xxxxxc
Egill hefur lagt stund á ýmsar
gerðir bardagalista og kennir
fjölbreytt námskeið íþeirri list í
Heilsuakademíunni í Egilshöll.
r,- 11. \
VWa^ V „
Egill Örn Egilsson er meistari í Scientific Fighting
Kennir takta Bruce Lee
Egill Örn Egilsson kennir
námskeið í Scientific Fight-
ing, Scifi-brennslu, Kali og
brasilísku Jiu-Jitsu í Heilsu-
akademíunni í Egilshöll en Egill
er stofnandi Scientific Fighting á
fslandi.
Nöfnin á námskeiðunum vekja
forvitni hjá blaðamanni og hann
spyr: Hvað er Scientific Fighting?
„Þetta kemur upphaflega frá Bruce
Lee en hann var mikið í Scientif-
ic Streetfighting. Þar er ekki um
neinn ákveðinn stíl að ræða eða að-
ferð heldur snýst þetta um að velja
hagkvæmustu leiðina sem völ er á
hverju sinni. Scientific Fighting er
sjálfsvörn. Við göngum út frá því að
við erum með tvær hendur og tvo
fætur og íþróttin snýst um að nýta
það sem þú hefur til þess að verja
þig. Það er mikil lógík í þessu og
snýst um að nota það sem þú hefur
á sem hagkvæmastan máta. Þar sem
ekki er um keppnisíþrótt að ræða þá
þarf ekki að fylgja neinum reglum,
það eru engar hömlur. Maður þarf
að læra standandi viðureign, í ná-
vígi og liggjandi á jörðinni. Það sem
mér finnst mikilvægt að hafa í huga
er að þú ert kannski að verja þig
gegn andstæðingi sem berst ekki
eftir neinum reglum eða innan ein-
hvers kerfis og getur verið óútreikn-
anlegur. Þess vegna sker Scientific
Fighting sig úr hvað varðar aðrar
sjálfsvarnaríþróttir eins og karate
og júdó þar sem ekki þarf að læra
fullt af reglum eða fylgja fyrirfram
ákveðnum hreyfingum,” segir Egill.
Hvernig fer kennslan fram? „Við
æfum í bardögum, með hlífum, því
eina leiðin til þess að læra að synda
er að stökkva út í djúpu laugina.
Þannig að allir fá að sannreyna æf-
ingarnar og aðferðirnar,“ segir hann.
„Þetta er ekki hættulegt en þetta
er bardagaíþrótt," segir Egill þegar
hann er spurður um slysahættu í
íþróttinni. En koma ekki stundum
til hans nemendur sem vilja læra að-
ferðina til þess að lumbra á einhverj-
um? „Ég hef stundum fengið til mín
„tarfa” eins og ég kalla þá sem vilja
slást. Besta ráðið við slíkum mönn-
um er að setja þá í bardaga gegn
minnsta stráknum á svæðinu, oftar
en ekki þolir egó tarfanna ekki þá
niðurlægingu að láta snúa sig niður
þannig að þeir mæta yfirleitt ekki
aftur,” segir Egill.
Egill er einnig með námskeið í
Scifi-brennslu sem eru brennsluæf-
ingar í bardagalistaformi þar sem
tveir og tveir æfa saman. „Þetta er
í fyrsta skipti sem svona tímar eru
kenndir á Islandi og þeir eru mjög
vinsælir. Tíminn fer þannig fram
að það eru settar upp stöðvar með
sparkspjöldum, fókuspúðum sem
eru festir á hendurnar, boxpúðum
og gerðar ýmsar bardagaæfingar.
Þetta er mikil brennsla en ég myndi
segja að þetta væri skemmtilegri
leið en hlaup á hlaupabrettinu,“ seg-
ir Egill.
Egill kennir líka Kali sem er fil-
ippseysk hernaðarlist þar sem barist
er með prikum. Þetta eru taktæfing-
ar og góð leið til að æfa bæði líkama
og huga að sögn Egils.
Egill hefur lengi verið að æfa ýms-
ar gerðir bardagalistar, hann byrj-
aði í karate og fór síðan yfir í hnefa-
leika n ára gamall. „Mamma segir
að ég hafi fæðst sparkandi,” segir
hann en Egill hefur ferðast mikið til
að kynna sér hinar ýmsu gerðir bar-
dagalistar eins og Scientific Fight-
ing. Á næstunni byrjar námskeið í
brasilísku Jiu-Jitsu sem er glímuað-
ferð sem byggir á notkun vogarafls í
stað styrks. Það ættu því allir áhuga-
samir um bardagaíþróttir og glímu-
brögð að finna eitthvað við sitt hæfi
í höllinni hans Egils.
Lárpera Þessi bragðgóði ávöxt-
ur hentar vel íalls kyns salöt og
meðlæti.
Bragðgott
að hausti
Lárpera (avókadó) er bragð-
góður ávöxtur sem er fullur af
steinefnum, vítamínum og nátt-
úrlegum fituefnum. Til eru þrjár
tegundir af lárperum: Venjuleg
lárpera með steini, hanastélslár-
pera og krókódílalárpera.
Lárperur henta meðal annars í
alls kyns salöt og meðlæti. Hér
að neðan er uppskrift að ein-
földu lárperusalati sem á vel við
á hlýjum sumardegi.
Hráefni:
Vz lárpera (avókadó)
1/2 pressaður lime-ávöxtur
1 teskeið af ólífuolíu
3 kirsuberjatómatar
Sletta af tabaskósósu
2 teskeiðar af hreinni jógúrt
2 ristaðar brauðsneiðar
Aðferð:
Afhýðið lárperuna og skerið
hana í strimla. Setjið hráefnið í
skál og blandið varlega saman.
Berið fram með brauðsneiðinni.
Þriggja daga hreinsun
Það getur verið hollt að hreinsa
líkamann öðru hverju sérstaklega
ef þú þjáist af stressi og þreytu. Það
þarf ekki að fasta í marga daga til
þess að líkaminn hreinsist
en þessi aðferð gefur aukna
orku og vellíðan.
Dagur 1. Hreinsaðu kerfið
Drekktu mikið af vatni
eða ferskum ávaxtasafa
og slepptu kaffi og
alkóhóli. Byrjaðu daginn
á léttum morgunverði,
í hádeginu er gott að
fá sér pasta (spelt eða
heilhveiti) og í kvöldmat er
sniðugt að fá sér salat eða fisk.
Eftir kvöldmatinn skaltu fara í hress-
andi langa gönguferð.
Dagur2.
Nú skaltu drekka eins mikið vatn
og þú getur og sleppa ávaxtasaf-
anum. Ferskir ávextir eru á mat-
seðli dagsins í morgunmat, grænt
salat í hádeginu og gufusoðinn
fiskur í kvöldmat.
Nú er gott að fara í eins og einn
jógatíma, til að koma meltingunni í
gang og hreinsa eiturefni úr líkam-
anum. Teygjur eru mjög góðar
til þess að losa líkamann við
' ý.1 eiturefni sem safnast fyrir.
Dagur 3.
'ítötjjk. í dag á að drekka
mikið af vatni og borða
eins mikið af ferskum
ávöxtum og þú getur
í.þig látið. Ekki reyna
mikið á þig þar sem orkan
er ekki hundrað prósent.
Eftir þessa þriggja daga hreins-
un þá ættir þú að vera full/ur orku,
svöng/svangur en með hreinan
huga.
Bragðgóð kex
TlLVALIN SEM NESTf í SKÓLANN OG VINNUNA
Pakkað í umbúðir sem gerir það sérlega hentugt
SEM NESTI í SKÓLANN OG VINNUNA
Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum
Dreifing:Yggdrasill ehf
SUÐURHRAUN 1 2b
Garðabæ i j