blaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006
blaðið
INNLENT
KEFLAVÍK
Sjómaður slasaðist
Sjómaður slasaðist þegar hann fékk högg
á höfuðið þegar verið var að hífa voð. Slaki
kom á blökk og við það fór hún í höfuð
mannsins. Maðurinn gekk þó sjálfurfrá
borði og leitaði sér lækningar.
UMFERÐARBROT
FERÐAÞJÓNUSTA
Tíu teknir á Akureyri
Tíu ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri á einum degi
en sá sem ók hraðast var á 130 kílómetra hraða.
Lögregian brýnir fyrir ökumönnum að sýna stillingu
í hraðakstri, sérstaklega í Ijósi undangenginna at-
burða þar sem nokkuð hefur verið um banaslys.
Stefnir í metár
Útlit er fyrir að þetta ár verði metár fyrir ferðaþjónustuna. Gisti-
nóttum hefur fjölgað mikið og erlendum ferðamönnum einnig. Að
mati Greiningardeildar Glitnis hefur lágt gengi krónunnar komið sér
vel fyrir ferðaþjónustuna auk þess sem aukið framboð með tíðari
flugferðum hefur sín áhrif.
ÞU SPARAR
REYKJAVlK
Rönning
Borgartúni 24
Sími 562 4011
REYÐARFJÖRDUR
Rönning
Nesbraut 9
Sími 470 2020
REYKJANESBÆR
Rönning
Hafnargötu 52
Simi 420 7200
RONNING
Opnunarb'mi: mánudaga - föstudaga kl. 09.00 -18.00 • Laugardaga ki. 11.00 -16.00
Tiltxiðin gilda á meðan birgðir endast.
VIRKILEGUR SPARNAÐUR!
Gorenje
veggháfur
stál
Við eigum næsta leik
Reykvíkingar - muniö prófkjör Samfylkingarinnar.
Veljum vel á S-listann!
Mörður Árnason
4.-6. sæti
www.mordur.is
Opið óllurn stuöníngsmönnurn
kosíð 11. nóvember í Þróttarheimilinu, Laugaraiil,
Auglýslngasfmlnn er
510 3744
alla þriðjudaga
María Valgeirsson, verslunar- og veit-
ingamaður. Hætt að flytja inn pólskar
pylsur: Segist þó gjarnan vilja halda því
áfram enda Islendingar sólgnir i þær
Tollurinn krefst hærri tolla en voru lagðir á innfluttan mat:
Vill stærri bita af
pólskum pylsum
■ Sendi bankreikning upp á tvær milljónir ■ Innflytjandinn ósáttur og kærir
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Tollayfirvöld hafa krafið verslunar-
mann í Hafnarfirði um tvær millj-
ónir króna í bakreikning vegna
innflutnings á pólskum pylsum
árið 2004. Verslunarmaðurinn, sem
er fyrir löngu búinn að selja allar
pylsurnar, segir mistökin liggja
hjá tollayfirvöldum enda hafi þau
ekki gert neinar athugasemdir við
tollnúmerið.
Fékk rangar upplýsingar
„Þetta er mjög ósanngjarnt. Ég
gerði engin mistök og fylgdi öllum
þeim leiðbeiningum sem ég fékk
frá hinu opinbera,“ segir María Val-
geirsson, sem rekur Pólsku búðina
við Reykjavíkurveg og veitingastað
við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði.
,,Ég borgaði fyrir tollkvótann og allir
pappírar voru réttir af minni hálfu.
Það var bara röng manneskja sem af-
greiddi þetta hjá tollayfirvöldum."
María hóf fyrir tveimur árum
innflutning á pólskum pylsum sem
hún seldi síðan í verslun sinni við
góðar undirtektir Islendinga. Alls
flutti hún inn tvö tonn af pylsum í
fjórum sendingum á rétt rúmu ári.
Við undirbúning á innflutn-
ingnum leitaði María aðstoðar
hjá landbúnaðarráðuneytinu sem
meðal annars ráðlagði henni hvaða
tollnúmer bæri að setja á pylsurnar.
I fyrstu gekk allt snurðulaust
fyrir sig og það var ekki fyrr en í
fjórðu sendingu sem tollayfirvöld
gerðu athugasemdir við innflutn-
inginn. Kom þá í ljós að tollnúmerið
var rangt og pylsurnar höfðu borið
of lágan toll.
I kjölfarið óskuðu tollayfirvöld
eftir öllum upplýsingum frá Maríu
um fyrri innflutning og sendu
henni síðan bakreikning í sumar
vegna vangreiddra tollgjalda upp á
tæpar tvær milljónir.
Alltaf ífríi
María segist vera afar ósátt við
framgöngu tollayfirvalda enda
hafi þau ekki gert neinar athuga-
semdir við þrjár fyrri sendingar.
„Tollurinn á Keflavíkurflugvelli
hefði undir venjulegum kringum-
stæðum átt að gera athugasemdir
við tollnúmerið strax í fyrstu send-
ingu. I stað þess var ég ekki stoppuð
fyrr en í fjórðu sendingu."
María segir að henni hafi gengið
illa að fá upplýsingar frá tollayf-
irvöldum í Hafnarfirði þar sem
starfsmaður embættisins sem sér
um hennar mál sé alltaf í fríi. Hún
segist þó ekki ætla að lúta úrskurð-
inum og borga gjöldin. „Þetta eru
ekki mín mistök og ég ætla ekki að
borga þetta.“
Þegar Blaðið reyndi að nálgast
upplýsingar um málið hjá Tollstjór-
anum í Hafnarfirði fengust þær
upplýsingar að umræddur starfs-
maður væri í fríi.
Hjá tollstjóranum í Reykjavík
fengust hins vegar þær upplýs-
ingar að tollayfirvöld geti gert
kröfu allt að sex ár aftur í tímann
sé tollaupplýsingum um ákveðna
vöru ábótavant. Ábyrgð á réttum
upplýsingum hvílir algerlega á inn-
flytjanda og aðeins hægt að tryggja
sig gegn mistökum með því að
biðja tollvörð um að skoða vöruna
sérstaklega.
Ukraínumenn minntust byltingarafmæli Bolsévíka:
Róstur á byltingarafmæli
Mikill viðbúnaður var í
Kænugarði í gær en þá minntust
Úkraínumenn byltingar bolsévíka
árið 1917. Um þúsund kommúnistar,
flestir ellilífeyrisþegar, söfnuðust
saman í miðborg Kíev og héldu á
fána Sovétríkjanna og myndum af
Lenín og Stalín.
Á sama tíma söfnuðust nokkruð
hundruð þjóðernissinnar saman í
miðborginni og brenndu myndir
af sömu mönnum og minntust
Við mynd af Stalín Þjóðernissinnar
hittust í miöborg Kænugarðs ígær.
hungursneyðarinnar miklu árin
1932 til 1933. í henni féllu um
tíu milljónir manna og er orsök
hennar rakin til samyrkjuvæð-
ingar Jósefs Stalíns á landbúnaðar-
kerfi Sovétríkjanna. Nokkrir þjóð-
ernissinnar voru handteknir eftir
að þeir köstuðu reyksprengjum að
göngu kommúnista.
Þrátt fyrir mikla spennu og við-
búnað kom ekki til meiriháttar
átaka.