blaðið - 08.11.2006, Page 27
blaöiA
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 3 5
Misheppnuð ninja
„Ég hef alltaf haft unun af því að
búa til hluti, hvort sem það er með
því að sauma, hanna, mála, teikna
eða taka ljósmyndir,” segir Berglind
Laxdal sem opnaði sýningu í Gallerí
Gel á Hverfisgötu um helgina. Berg-
lind er lærður fatahönnuður og lif-
fræðingur.
„Líffræðin var eiginlega bara At ^
svona ofurjarðbundinn út- W..
úrdúr sem ég náði að kæfa '
niður eftir útskrift,” segir
Berglind og hlær.
„Sýningin er um mis-
heppnaða ninjastelpu
sem er smá skopstæl-
ing á sjálfri mér. Bróðir minn kall-
ar mig alltaf ninju þegar ég geri
eitthvað af mér, hendi einhverju
niður, brýt eitthvað; einskonar öfug-
mæli og grín á milli okkar, mun fal-
legra en að kalla mann réttu nafni
BRUSSA.
Það á ekkert að taka þetta neitt há-
tíðlega, þetta var fyrst og fremst
*" "-'"i'1 gert sem skemmtun fyrir
sjálfa mig og sem betur fer
virðast aðrir hafa húmor
fyrir þessu líka. Myndirnar
eru allar þannig að hægt er að
halda áfram að mála þær með
svo til gerðum paint by num-
bers-kassa sem hægt er að fá með
myndum, og svo fylgja leiðbeining-
ar, litir, penslar og túss.
Ég reyndi að sjá skondnu hliðarn-
ar á sem flestu og sæki innblástur
í beisikkin, teiknimyndir, kvik-
myndir, lestur bókmennta og teikni-
myndasagna. Bækur Bills Watter-
son Calvin and Hobbes eru í miklu
uppáhaldi hjá mér. Maður þarf bara
að lesa nokkra sketsa og þá er mað-
ur kominn í gott skap. Svo skoða ég
mikið af illustration-bókum og þar
á meðal eru Hokkrir í uppáhaldi svo
sem Klaus Haapaniemi, Cheval Noir,
Molly Molloy og Irene Jacobs...”
I '
Berglind Laxdal er
misheppnuð ninja
Ég þarf að
passa í kvöld
Gísli Hrafn Atlason mannfræðingur
heldur erindi á morgun klukkan
12:15 á vegum Rannsóknastofu
I kvenna- og kynjafræðum við
Háskóla íslands. Erindið ber yfir-
skriftina Ég þarf að „passa" I kvöld
- vinnan og fjölskyldan. Þar gerir
Gísli grein fyrir niðurstöðum úr
rannsóknum sem unnar hafa verið
á samræmingu fjölskylduábyrgðar
og atvinnu. Á íslandi er atvinnuþátt-
taka ein sú mesta í Evrópu og mikil
breyting hefur orðið á viðhorfi ís-
lendinga til heimililsábyrgðar með
tilliti til kynja á undanförnum árum.
Fyrirlesturinn er haldinn í Norræna
húsinu og eru allir velkomnir.
Frá sál til sálar
Út er komin hjá Hinu íslenska
bókmenntafélagi bókin Frá sál til
sálar. Ævi og störf Guðmundar
Finnbogasonar sálfræðings eftir
Jörgen Pind. í bókinni er sér-
staklega vikið að sálfræðilegum
hugmyndum Guðmundar og þá
ekki síst kenningunni um sam-
úðarskilninginn sem oft hefur
verið misskilin, en er vafalítið ein
frumlegasta kenning íslensks sál-
fræðings og bók Guðmundar Den
sympatiske Forstaaelse er sígilt rit
í sögu norrænnarsálfræði. Bókin
rekur einnig merkilegt framlag Guð-
mundar til íslenskra menntamála
en hann var aðalhöfundur laga
um alþýðufræðslu sem samþykkt
voru á Alþingi árið 1907 og marka
upphaf skólaskyldu á (slandi. í upp-
eldisritum sínum lagði Guðmundur
megináherslu á að menntunin yrði
að fylgja „þróunarlögum barnssál-
arinnar". Með því kvað við nýjan
tón í umræðum um menntamál hér
á landi.
(bókinni dregur Jörgen upp
minnisstæða mynd af bláfátækum
sveitapilti sem braust til æðstu
mennta og tókst það ætlunarverk
sitt að setjast á bekk með merkum
sálfræðingum á fyrri helmingi
tuttugustu aldar þótt hann mætti
stundum litlum skilningi meðal
landa sinna.
adoPha ADOI
UOpHARM*
GRÚNER TP
ABOPhaRMA IN KAPSfU’
adoPharma
APFELESSI6
H.USKAPSEIN
mSc:
QS°?j
aðoPharma
adoPharma
■ aboPharma
adoPharma
ÐETA
CAROTIN
ISOFLAVOI
LECITHIN
500 mg Soþ-Ledthir
ZINK-ÐIOTII
KAPSELN
AWISCHOCKEN
KAPSELN
aboPharma
aboPhapma
rKRAUTERl
HUSTEN
TROPFEN 5T
ADOPHAÉMA aöoPHARAAA
adoPharma
adoPhara
VITAMIN E
FORTE
adoPharma
r mit ~
Vitomin
V mit ’
\ Vitomin
Bfi £s W*U(«9*ww***"
aíoPharma
* adoPharaaa
aboPharma
I 1
SALBEI- “FKNOBUUCH +1
BONBONS Misfel + WeiBdorn
1 mtt Vitomin C
Æ \ /
W LACHSOL
OMEGA-3-FET1SÁUREN
mitViiomlnE
SALMON OIL CAPSULES
OME6A 3 FATTY ACIDS
wWtVitominE
120 Kopj^
Copsules
Fjölskylda af (jörefnum
- m.a. vitamín með ávaxtabragði
20% kynningarafsláttur
2. nóvember til 9. nóvember
HAWOGCS-CHAI
Fæst í: Árbæjarapótekl, Garðsapótek, Lyfjavali Álftamýri, Lyfjavali Hæðasmára,
Lyfjavall Mjódd, Lyfjaver og Rimaapóteki.