blaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 17
blaóiö
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 17
Merkilegar
vegmerkingar
Vegna umræðna um merkingar
vegna vegagerðar vil ég minna á
að vegagerð er flokksmál sem er al-
menningi óviðkomandi. Fólk sem
er að flækjast erindisleysu (jafnvel
kvenfólk) út um allar trissur getur
sjálfu sér um kennt ef það fer sér að
voða þar sem vegagerðarmenn eru
að störfum. Dæmi: Eg var að flækjast
erindisleysu austur nýju Hringbraut-
ina og ætlaði að beygja til vinstri
upp Njarðargötu. Þegar ég átti eftir
30 metra í beygjuna kemur í ljós að
lokað er inn á Njarðargötu, held ég
spölkorn áfram og beygi til vinstri
upp að Umferðarmiðstöð og þaðan í
átt að gömlu Hringbrautinni og ætla
til vinstri þaðan inn á Njarðargötu.
Engar merkingar voru sem gáfu til
kynna að þetta væri ekki hægt, t.d.
að vinstri beygja bæri bönnuð inn
á Hringbraut eða þvílíkt.Þarna var
dimmt nokkuð og þegar ég tek beygj-
una til vinstri inn á Hringbrautina
keyri ég beint á skilti sem kemur
eins og skrattinn úr sauðarleggnum.
Vegagerð er
flokksmál og
almenningi
óviðkomandi.
Umrœðan
Kristján Sig. Kristjánssson
Baugsmenn greiða laun starfsmanna
&
Vegna síendurtekinna árása á
mig í útvarpi Sögu vil ég benda
fólki á eftirfarandi:
Fyrirtækið 365 undir stjórnar-
formennsku Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar greiðir starfsfólki á útvarpi
Sögu laun. Áróður stöðvarinnar í
þágu Baugs í Baugsmálinu er því
greiddur af ákærðu í málinu. Hér er
því ekki um hlutlæga útvarpsstöð
að ræða heldur áróðursstöð í þessu
máli.
Ég hef undir höndum tölvupóst
frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni til
Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarps-
stjóra Sögu, um hvernig hún eigi að
fjalla um hann og fjölskyldu hans
í Baugsmálinu. Hjálmar Blöndal,
fjölmiðlatengill Jóns Ásgeirs, réð Jó-
hann Hauksson til starfa og Jóhann
Hauksson sendir sína launareikn-
inga til 365 miðla. Um þetta vitnar
Jóhann Hauksson gjarnan sjálfur.
365 hf. er á hlutabréfamarkaði í
Kauphöll íslands án þess að tengsl
þess við útvarp Sögu séu þar skráð!
Ein hægri hönd Baugsmanna
hefur að kvöldlagi dreift tölvu-
póstum sem hann segir ranglega
að séu frá mér. Þetta gerir hann
til þess að villa um fyrir dómsvald-
inu. Lögmaður 365, Jón Magnússon,
hefur fengið einn slíkan bunka inn
um lúguna heima hjá sér. Ég hvet
þá, sem hafa fengið þessar send-
ingar inn um lúguna hjá sér, til að
Á það að
líðast að
útvarpsstöð
sigli undir
fölsku
flaggi?
Umrœðan
Jónína Benediktsdóttir
hafa samband við mig, svo að ég
geti bent þeim á, hvaða blekking-
arleikur er stundaður af þessum
sendiboða Jóns Ásgeirs.
Hvar er útvarpsréttarnefnd? Á
það að líðast, að útvarpsstöð sigli
undir fölsku flaggi til þess eins að
bera í bætifláka fyrir sakborninga
í Baugsmálinu, af því að enginn
treystir lengur Baugsmiðlunum í
þessu máli? Hvar er stjórn Árvak-
urs? Á það að líðast, að handbendi
Baugsveldisins ritstýri öðru dag-
blaði Árvakurs til þess að bera
blak af Baugsliðinu? Hvar er eftirlit
Kauphallarinnar með skráðum fyr-
irtækjum þar?
Sama er hvar borið er niður að því
er þessa menn varðar, sem kenna sig
við Baug, alls staðar er leitast við að
baða sig í öðru ljósi en því, sem birtir
mönnum sannleikann.
Ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla íslands:
Ný staða íslands í utanríkismálum:
Tengsl við önnur Evrópulönd
Ráðstefnan verður haldin í fundarsal Þjóðminjasafns föstudaginn 24. nóvember frá 12:30 til 17:30.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tekið er við skráningum á www.hi.is/ams
Svona fer fyrir flækingum, sem ekki
geta setið á borunni heima, það sást
best á því að fjöldi flökkufífla ætlaði
sömu leið og ég eða ók vestur gömlu
Hringbrautina og var strand.
Fyrir 30 árum vann ég við vega-
gerð á svokölluðum „tipp“. Það er
fólgið í því að segja malarflutninga-
bílunum hvar þeir eigi að sturta
hlassinu og tína svo úr grófasta
grjótið, síðan kom hefillinn og slétt-
aði úr. Oft voru ferðamenn sem biðu
eftir að hefillinn sléttaði binginn svo
fært yrði yfir.Það var órofa samstaða
vinnuflokksins allt frá verkstjóra
niður í „tippara" að ferðafólk þetta
væri undantekningarlaust fffl, sem
væri á flækingi, þó nóg væri að gera
á bæjunum í heyskap og landburður
af fiski í „húsunum", urðu kröftugar
umræður um þennan óþjóðarlýð
í kaffiskúrnum. Nú nú, fyrir fáum
árum var ég á ferð í Önundarfirði og
ek inn á greiðfæran veg. Vegurinn
var sléttur og ekkert benti til að hann
væri lokaður eða sérstaldega fáfarinn,
hvað þá hættulegur. Ég ek á um 70
km hraða og skyndilega er vegurinn
þvert í sundur, ég snarhemla en næ
ekki að stöðva og lendi ofan í skurð-
inum og upp úr hinum megin.
Bíllinn varð töluvert skemmdur
en rétt ökufær, munaði þar mestu
um ABS-hemlana. Ég talaði við lög-
reglu vegna „slyssins" og fóru þeir
með umdæmisstjóra Vegagerðar-
innar til að skoða aðstæður. Ég taldi
nú ýmislegt hafa breyst á 30 árum í
viðhorfi Vegagerðarinnar og hafði
símsamband við umdæmisstjórann.
í úttekt, sem hann gerði á mér, kom
fram að ég væri rakið fífl, amlóði og
flækingur og væri ekki við öðru að
búast en að svoleiðis förufífl færu
sér að voða.Þegar lesin eru lög um
vegagerð kemur glögglega fram að
umdæmisstjórinn var ekki að gera
annað en að lýsa anda þeirra laga.
Má ég geta þess að lokum að bóta-
krafa mín olli óstöðvandi hlátri á að-
alskrifstofu Vegagerðarinnar.
DAGSKRÁ:
Opnun
- Valgerður Sverrisdóttir. utanríkisráðherra
Inngangur
Samningaferlið um þátttöku
íslands í Evrópusamrunanum
- Einar Benediktsson. fv. sendiherra
Magn og umfang
lagabreytinga vegna EES
- Róbert R. Spanó, dósent við lagadeild HÍ
Kostír og gallar nánarí tengsla við ESB
Frá sjónarhóli hagfræði:
Landbúnaður og ESB - álitaefni við aðild
- Ágúst Einarsson. prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ
Sjálfstæð peningamálastefna og fákeppni
- Gylfi Zoega. prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ
Evrópuvæðing íslenska vinnumarkaðarins
- Lilja Mósesdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst
Evra eða ekki evra
- Tryggvi Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ
Frá sjónarhóli stjórnmála- og sagnfræði:
íslenskir stjórnmálamenn og aðild að
ESB: Sérstaða eða sérviska
- Baldur Þórhallsson, prófessor við félagsvísindadeild Hl
Missa íslendingar sjálfstæðið
við inngöngu í ESB?
- Guðmundur Hálfdánarson. prófessor við hugvísindadeild HÍ
Hvalreki eða skipbrot? Örlög íslensks
sjávarútvegs í ESB
- Úlfar Hauksson, aðjúnkt við félagsvísindadeild HÍ
Eftir ..bandarísku öldina:" Hlutverk
annarra Evrópuþjóða í íslenskum
utanríkis- og öryggismálum
- Valur Ingimundarson, prófessor við hugvísindadeild HÍ
Reynsla af fullrí aðild að ESB
Svíþjóð
- Harry Flam, prófessor við Stokkhólmsháskóla
Finnland
- Markus Lahtinen, prófessor við Háskólann ÍTampere
Pallborðsumræður
Marel
- Hörður Arnarson, forstjóri
Alþýðusamband íslands
- HalldórGrönvold. aðstoðarframkvæmdastjóri
Bændasamtök íslands
- Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri
Greiningardeild Landsbankans
- Bjöm Rúnar Guðmundsson. sérfræðingur
HB Grandi
- Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri
HFundarstjóri og
stjórnandi pallborðs:
Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Athugið: Takmarkað sætaframboð! Tekið er við skráningum á www.hi.is/ams
Höfundur er rafverktaki.