blaðið - 22.11.2006, Side 30
42 MIÐVIKUl
[22. NÓVEMBER 2006
blaðið
Vilhjálmur
Burberry London fyrir herra
Nýr herrailmur frá Burberry sem er fágður og flottur.
Ferskir skógartónar blandaðir kanillaufum og angan
af púrtvíni, leðri og svörtum pipar gera ilminn sterk-
an en engu að síðurferskan og léttan.
Hressandi andlitskrem
Morning After Rescue gel frá Nickel er eitthvað sem allir karlmenn ættu að
eiga. Kremið hressir húðina við og heldur henni góðri þá morgna sem erfitt
er að vakna. Gelið endurvekur eiginlegan húðljóma og viðheldur mýkt húð-
arinnar og teygjanleika og heldur henni stinnri og hraustlegri.
Pólitíska hornið..
vinstri, hægri SNÚ!
íslenska \
þjóðin hefur mL
oft verið
uppnefnd
sófaþjóð.
Viðfyrstu J|
sýn virðist
þjóðarsálin
annaðhvort f Æk
vera MBKmmmw
og kúguð í
sér til að standa í stappi við op-
inbera geirann eða of snobbuð
og sérhlífin. Að minnsta kosti er
það efni til vangaveltna hvers
vegna það er illmögulegt að
hreyfa við íslenskum og þus-
andi sófakartöflum svo að þær
veltist fram af sófabrúninni til
þess að láta til sín taka í átaka-
málum.
Finnst íslendingum hallærislegt
að mótmæla? Eða finnst þeim
þeir ekki nógu upplýstir til að
taka þátt í argaþras-
inu?
Ég er hrædd
um að lang-
tímaþráseta
Islendinga í
sófanum sé
hvoru tveggja
um að kenna. Sér-
fræðingar og stjórnmálamenn
kaffæra hinn venjulega mann
með súrrealískum línu— og súlu-
ritum og vitna títt í rannsóknir
sem þeir einir hafa lesið. Pá
grunar mig að það þyki ekki fínt
að mótmæla og fólk upplifi sig
hálfhallærislegt að vera orðið
það valdalítið að húka með illa
málað skilti fyrir utan eitthvert
sendiráð í þessarri mannfæð.
Tími ertil kominn að sófakartöfl-
urnar átti sig á því hversu marg-
breytilegum aðferðum er hægt
að beita til að sýna andstöðu.
Langflestar aðgerðir á íslandi
fara friðsamlega fram þótt
einstaklingar hafi uppi ólíkar
skoðanir um það hvernig best
er að koma markmiðum sínum
áframfæri. « _
Gott dæmi \
um það eru • - Jl*ji /
mæli þau
son efndi
til nýverið og bók Andra Snæs
Magnasonar, Draumalandið.
Engar sófakartöflur þar á ferð.
Upp úr sófanum!
Kristjana Guðbrandsdóttir
?D Fáklæddur
og brosandi í Xína
Jón Gunnlaugur Viggósson, Herra ísland
2005, heldur til Kína til að taka þátt í keppn-
inni Herra heimur í mars á næsta ári. Jón tók
við titlinum af Ólafi Geir Jónssyni sem hlaut
hann upphaflega í gegnum símakosningu en
var sviptur honum.
Honum finnst nokkrir keppendur sigur-
stranglegir en vill ekki nefna nein nöfn. „Ég
hef samt ekkert hitt strákana í eigin persónu
en séð myndir af þeim þannig að það er erfitt
að segja til um úrslitin. En af myndunum að
dæma hef ég séð þrjá eða fjóra sem mér finnst
sigurstranglegir. Svo snýst þetta auðvitað
ekki bara um útlitið heldur líka karakt
erinn.“
Jón Gunnlaugur segir árið hafa verið
frábært. „Það kom auðvitað flatt upp
á mig þegar ég hlaut titilinn. En þetta
hefur verið mjög gaman og svo er ótrú-
lega spennandi að vera á leið út í heim í
stóru keppnina en ég verð í Kína í ein
hverjar þrjár vikur og er mjög
spenntur fyrir því. “
Hvernig var að fá titilinn
svona upp í hendurnar?
„Auðvitað fagnaði ég því að
fá að vera einn af þeim fáu
sem hafa orðið Herra ísland
en það má segja að þetta
hafi verið bæði leiðinlegt og
skemmtilegt vegna þess
hvernig þetta fór þegar Óli
Geir var sviþtur titlinum. En
annars get ég ekkert sagt
um það hvort það hafi verið
sanngjarnt að svipta hann
titlinum en það fór svona.“
Hvað segir þú um þá gagnrýni sem fegurð-
arsamkeppnirfá gjarnan, er þetta bara
hégómi?
„Þetta er fyrst og fremst ágætis reynsla því
maður lærir að koma fram. Ég gagnrýndi
þessa keppni sjálfur áður en ég tók þátt og
svo allt í einu var éc| orðinn kepþandi og
seinna meir Herra Island. Þetta er auðvitað
ekki fyrir alla og þeir sem vilja ekki taka þátt
í þessu gera það ekkert. Það er líka fínt að
ekki séu allir á sömu skoðun því þá væri
þetta nú ekki skemmtilegt líf.“
Er ekkert óþægilegt að spóka sig um á
sviðinu í nærfatnaði einum klæða?
„Jú, það var það, en eins og ég segi er
þetta ágætis lífsreynsla að vera fyrir
framan alþjóð á boxernum og brosa.
Svo verð ég aftur á boxernum í Kína
brosandi þannig að þetta er bara stuð. “
Er mikil öfundsýki á meðal
keppendanna?
„Nei, mérfannst það ekki.
Það voru allir rosagóðir
vinir en svo þegar kepþn-
isdagurinn rennur upp
þá hugsar auðvitað
hver um sjálfan sig og
allir reyna að komast
sem lengst en svo eru
alltaf einhverjir inni á
milli sem hafa engan
áhuga á þessu og
eru að gagnrýna aðra
kepþendur en það
er bara eitthvað sem
maður verður að tak-
ast á við.“
Myndarlegur með fallega framkomu
Annað kvöld verður kosinn Herra
Island 2006 á Broadway en sprot-
inn verður nú afhentur í ellefta
skiptið. Jón Gunnlaugur Vig-
gósson, Herra ísland 2005, krýnir
arftaka sinn.
Að þessu sinni verða það ekki
vera áhorfendur sem kjósa sig-
urvegara kvöldsins þar sem það
gekk ekki eins vel og vænta mátti
á síðasta ári. Áhorfendur geta
engu að síður haft áhrif á val dóm-
nefndar.
„í fyrra var fyrsta og eina skiptið
sem símakosning réð úrslitum,"
segir Elín Gestsdóttir, framkvæmda-
stjóri keppninnar „I fyrra vorum
við að prófa simakosningu en það
gekk bara alls ekki nógu vel. Eins
og flestir vita þá sviptum við þann
sem var kosinn titlinum þannig að
það er bara best að láta fagfólk sjá
um valið til þess að forðast slíkar
uppákomur. Annars hef ég ekkert
talað við þann sem vann í fyrra þó
að hann hafi nú látið hafa ýmislegt
eftir sér í blöðunum. Ólafur Geir tók
sviptinguna nú nokkuð nærri sér
og ég held að hann geri það ennþá.
En hún er engum að kenna nema
honum sjálfum.“
Að sögn Elínar verður vinningshaf-
inn að vera myndarlegur ásamt
því að hafa fallegt fas og fram-
komu. „Svo þarf hann ekki síður
að vera heilsteypt persóna og
góð fyrirmynd sem fulltrúi keppn-
innar hvert sem hann fer. Við
vitum að það er mikið af ungum
krökkum sem líta mikið upp til
þeirra sem taka þátt í þessum
keppnum og það þarf að bera
allan þann pakka á bakinu að
vera góð fyrirmynd."
Hver verður herra
Island?
Annel Helgi
Birgir
Tomas
Kristinn Darn
| Einar
Reynir Páii
Orn
Rúnar Sigurður
Boili Thor
Steinar
Guðmundur
Orn
Egill
Simon
Sigurbjbrn
■ Igor Bjarni ■■ jón Þormar
Gunnar Ingi pQ I Hannes Kristinn
\
Porbergur
II
ÍSLANDS
NAUT
KVK í vetur
Pinnahælar í snjónum
Það er helber misskiln-
ingur að konur geti ekki
verið smart án þess að
vera í háum hælum. Það er
bæði hættulegt og frekar
hallærislegt að arka um
snjóþunga jörð í skóm
sem eru alls ekki til
þess fallnir. Lágbotna
skór eða stígvél með litlum breiðari
hæl henta miklu betur.
Stór belti
Stór breið belti geta verið
flott séu þau höfð á
réttum stað en indíána
mjaðmabeltin á mjög
lágum gallabuxum eru
algjörlega úti í kuldanum. Nú er
flottara að hafa breið leðurbelti i
mittið og nota við pils og kjóla.
það er misskilningur að það sé
smart að klæðast hlýrabolnum
einum klæða við til dæmis lágar
gallabuxur. Þetta getur sloppið á
sumrin ef buxurnar eru flottar og
ekki of lágar en á veturnar er þetta
ekki að gera sig. Konum verður
kalt og húðin
verður blá.
Stutt gallapils
Ekki flott og búið að
ofnota þessa flík.
Fyrir tveimur árum
voru allar stelpur í
stuttum gallabuxum,
leggins og flatbotna
skóm, það er orðið þreytt.
Leggið gallapilsunum og
fáið ykkur pils sem ná
niður að hnjám og eru há
í mittið. Miklu kvenlegra
og klassískara.
Hlýrabolir
Hlýrabolir eru flottir en
Hlý föt
Það er asnalegt að hristast
í kuldanum vegna þess að
klæðnaðurinn er af skornum
skammti. Verið frekar í þykkum
og góðum sokkabuxum en nælon
og þykkum og hlýjum peysum en
stuttum bolum.
Legghlifar
Voru inn og svo út en eru núna
inn aftur. Legghlífar geta nef- J A
nilega verið virkilega smart
séu þær notaðar
með réttum
flíkum. Svo
eru þær
líka svo
hlýjar og
góðar
og halda
hita á
kroppnum.
%
L
JA