blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 9

blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 9
Postulínið segir sögu Kína í Gallerí Kína í Ármúla 42 er hægt að lesa sögu Kína úr postulín- inu sem þar er selt og ekki síður úr myndskreytingum postulínsmun- anna. Allar tákna myndirnar og mynstrin eitthvað ákveðið, segja sögu og flytja í raun boðskap sem þeir skilja sem þekkja uppruna hlutanna. Eigandi verslunarinnar Gall- erís Kína er Dong Quing Guam sem búið hefur hér á landi í 15 ár. Aðspurð segist hún hafa komið til islands í upphafi til að breyta til. Hún opnaði verslunina Gallerí Kína í júlílok en nokkru áður hafði hún verið með sýningu í Kópavogi á kínverskum listmunum. „Þegar fólk skoðar vasana, pott- ana og skálarnar hér í versluninni geturþað séð íþeimbreytingarnar sem Kína, menning þess og listir, hefur gengið í gegnum. Skreyting- arnar hafa allar þýðingu og tákna t.d. kannski hamingju eða reiði og sumt hefur skírskotun til feng shui-hefðarinnar.“ Quing segir að í Evrópu hafi verið talað um fine chine sem táknaði postulín. Það kom frá Jing de Zheng og þaðan kemur enn besta kínverska postu- línið. 1 Gallerí Kína eru margir hlutirþaðankomnir. Postulínið er unnið á margvíslegan hátt. Sumir vasarnir minna svolítið á brennda leirvasa eins og við þekkjum þá, aðrir eru með grófri áferð og enn aðrir silkimjúkir viðkomu. Allt er postulínið skreytt og í ólíkum litum, en litirnir segja sögu og mynstrin einnig. Til dæmis mátti aðeins keisarinn eiga gula hluti hér fyrr á öldum þótt nú sé það breytt. Smáirogstórirhlutir Ýmsir smáhlutir sem henta vel til jólagjafa fást í Gallerí Kína, allir upprunnir þar eystra. Nefna má skartgripi, smámyndir mál- aðar á kínverskan pappír eða silki. Þarna fást tesett og meira að segja ekta kínverskt te sem er við hæfi að nota í kínversku tesettin. Margs konar kínverskur fatnaður er seídur í Gallerí Kína svo ástæða er til þess að líta inn og kynnast kínverskri menningu með nýjum hætti um leið og leitað er að fal- legri og óvenjulegri jólagjöf. -1.1..LA Islensku Jlugmaniýa úrin fást hjá Gilbert úrsmiQ Laugavegi 62 wwvv.jswatch.com Gl LBER' Laugavegi 62 - tel: 551*4100 RF.YKJAVIK Qtfðu dansandi DAXSSKOIJ Jóils FéUirscgtfBm Borgartúni 6 - sími 553 6645 Veittu vellíðan - gefóu gjafakort í NordicaSpa Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf. Við bjóðum upp á fyrsta flokks snyrtimeðferðir fyrir andlit og líkama og ýmsar tegundir af nuddi. Hægt er að kaupa gjafakort fyrir ákveðna upphæð, í tiltekna meðferð og ýmsa at ao spa pakka. Einnig er hæg einkaþjálfun eða námskei! þeim sem þú vilt gleðja. kaupa gjafakort í heilsuræktina - meðlimakort, Við aðstoðum þig við að finna réttu gjöfina handa Við leggjum áherslu á andlega og líkamlega vellíðan og er Nordica Spa heimur út af fyrir sig. Opnunartímar: Mán-fimmtd 6:00-21:00 Laugd 9:00-18:00 Föstudaga 6:00-20:00 Sunnd 10:00-16:00 Móttaka opin Þorláksmessu 9.00-23.00 Aðfangadag 9.00-13.00 Nordica Hofel Sú5urlandsbraut 2 * Sími 444 5090 nordicaspa@nordicaspa.ij www.nordicaspa.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.