blaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007
blaðiö
UTAN ÚR HEIMI
ÍRAK
Fjöldí látinna þrefaldast
Fjöldi (raka sem létust í otbeldisverkum á síðari
sex mánuðum ársins 2006 rúmlega þrefaldaðist
samanborið við fyrri hluta ársins samkvæmt
Washington Post. Sautján þúsund manns létust í
ofbeldisverkum á síðari hluta 2006.
Grunaður um morð
Lögreglan í Horsens í Danmörku handtók í gær 25 ára
karlmann sem er grunaður um að hafa skotið 23 ára
fyrrum sambýliskonu sína til bana á sunnudagskvöldið.
Maðurinn hafði losnað úr mánaðarlöngu gæsluvarðhaldi
á föstudaginn eftir að hafa áður reynt að myrða konuna.
Bush rökstyðji fjölgun
Nancy Pelosi, nýrforseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur
sagt að Bush Bandaríkjaforseti muni ekki fá auknar fjárveitingar til
stríðsreksturs í (rak án þess að veita fyrir því góö og gild rök. Talið
er að Bush muni brátt kynna nýja hernaðaráætlun sem gerir ráð
fyrir að tuttugu þúsund hermenn til viðbótar verði sendir til íraks.
w
MULTI-VIT
Náttúruleg fjölvitamín
meö steinefnum
Vtttn tuevctm fynrþarfir Isknding*
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
heilsa
-haföu þaö gott
írak:
Kærur
felldar niður
Allar kærur á hendur Saddam
Hussein, fyrrum íraksforseta,
voru felldar
niður í gær
þegar réttar-
höld vegna
Anfal-herferð-
ar Husseins
héldu áfram.
Talið er
að á annað
hundrað
þúsund Kúrda hafi verið myrtir í
herferðinni á níunda áratugnum.
Réttarhöld yfir sex samverka-
mönnum Husseins munu þó
halda áfram, en þeir eru allir
sakaðir um stríðsglæpi og glæpi
gegn mannkyni. Hussein var
hengdur þann 30. desember.
réttu Aporiu
Barnadansar - Samkvæmisdansar - Suður amerískir
Standard - Salsa - Línudansar - Dans ársins - Keppnispör - Brúðarpör
Erlendir gestakennarar - Einkatímar - Frábærir kennarar
Notalegt andrúmsloft
Ath. Kópavogsbær styrkir 6-12 ára böm til dansiðkunar
ia
Hvonn
- j
u
HK-húsið Digranesi
Kópavogsskóli
Húnabúð, Skeifunni 11
Innritun og
upplýsingar
kl. 10.00 -21.00
I sima
862 6168
Dansfélagið Hvönn - HK-húsinu Digranesi, 2.hæð - S. 862 6168 - www.islandia.is/danshusid
Vi& kennum þér
hafin
Hildur Ýr, Óli Geir, Helga, (sak, Arna, Oddur kennsla hefst 10. ja
Fyrsta fíokks
íslenskur harðfískur
C>
GULLFISKUR
Stækkun nauðsynieg Talsmenn Alcan *
segja stækkun álversins í Straumsvik \
nauðsynlega til þess að halda starfsem-
inni gangandi hér á landi og benda á að !áP
minni álverum sé lokað viða um veröld.
.diiÉSÍMllJ
■ ; i p
m
U J
%
/
Mynd/Rax'
•ii
mm
m
mm
Stækkun álversins í Straumsvík:
Hræðast að lenda á
lokunarlista álvera
■ Minni einingum lokað ■ Engar hótanir
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Við erum ekki að hóta neinu heldur
teljum við okkur sýna ábyrgð með
því að leggja spilin á borðið eins og
þau eru. I þessum iðnaði er mikil
samkeppni og þó að fyrirtækið
gangi vel í dag þá þarf að bæta hag-
kvæmni þess til lengri tíma litið,“
segir Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan. Ekki hefur
verið reiknaður saman hagnaður
síðasta árs hjá Alcan en Hrannar
segir hagnað 2005 vera á bilinu
þrír til fjórir milljarðar. Þrátt fyrir
það hafa talsmenn fyrirtækisins
gefið í skyn að ef stækkunin verði
felld flytji fyrirtækið úr landi í
framtíðinni. Á næstu mánuðum
munu íbúar Hafnarfjarðar kjósa
um fyrirhugaða stækkun álversins
í Straumsvík.
Fækka og stækka
Hrannar segir erfitt að segja til um
hvenær til brottflutnings kæmi, ef sú
staða kæmi upp. Hann segir fjölda ál-
vera lokað á hverju ári og það fari eftir
stærð þeirra í hvaða röð. „Listi yfir ál-
verin styttist neðan frá og minni ein-
ingum er lokað. Að hluta til er verk-
smiðjan okkar lítil og kemur að því
að tækni okkar mun ekki standast
samanburð við aðra,“ segir Hrannar.
„Okkar spá er sú að án stækkunar og
brey tinga muni ekki borga sig að reka
þessa einingu eftir ákveðinn tíma.
Framtíðin er sú að fyrirtækjum á ál-
markaði mun fækka á meðan hvert
þeirra mun stækka."
f fyrsta lagi í mars
Að sögn Steinunnar Þorsteins-
dóttur, upplýsingafulltrúa Hafnar-
fjarðarbæjar, hefur ekki enn verið
tekin ákvörðun um hvort kosningin
verður samhliða þingkosningum í
vor. Á fimmtudag verða reglur um
íbúakosningu lagðar fyrir bæjarráð
og á aukafundi skipulags- og bygg-
ingarsviðs í næstu viku verður lagt
fram deiliskipulag fyrir stækkun
álversins. Athugasemdafrestur
skipulagsins er sex til átta vikur og
því verður ekki hægt að samþykkja
það endanlega fyrr en í fyrsta lagi
í byrjun mars. Að því loknu getur
Usti yfirálverin
styttist neðan
frá og minni ein-
ingum er lokað
Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi
kosningin farið fram en þá er farið
að styttast verulega í kosningarnar.
Ofar á lista
Aðspurður segir Hrannar að ekki
hafi verið reiknað hver kostnaður
fyrirtækisins yrði ef pakkað yrði
saman og starfsemin lögð niður hér.
„Þegar til lengri tíma er litið er það
staðreynd að líftími fyrirtækisins hér
á landi styttist ef stækkunin verður
ekki samþykkt. Það þarf engan sér-
fræðing til að sjá að hagkvæmnin
verður mun meiri í stærri einingu og
sú þróun hefur átt sér stað á undan-
förnum árum,“ segir Hrannar. „Þessi
stækkun núna ætti að tryggja veru
okkar hér í ansi marga áratugi og við
myndum komast ofar á lokunarlista
álvera. Eftir hana myndi álverið flokk-
ast sem ríflega meðalstórt álver.“
Ólögmæt starfsmannaleiga:
Starfsemin verður stöðvuð
„Búið er að veita fyrirtækinu
áminningu. Næstu skref hjá okkur
eru að óska eftir lögregluaðstoð og
þá verður starfsemi fyrirtækisins
stöðvuð,“ segir Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnumálastofnunar. Fyrir-
tækið Geymir ehf. var kært til Vinnu-
málastofnunar fyrir ólögmæta starf-
semi þar sem það leigði út erlenda
starfsmenn til annarra fyrirtækja.
Geymir ehf. hefur ekki til þess heim-
ildir og er ekki á skrá yfir löglegar
starfsmannaleigur. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Kristinn Helgi
Eiríksson, hefur ekki gefið nein svör
þegar leitað var eftir þeim og Gissur
undrast sinnuleysið.
„Við höfum ekki fengið nein við-
brögð frá talsmönnum fyrirtækis-
ins. Búið er að tryggja að áminn-
ingarbréf hafi borist og það er allt
á hreinu. Við erum að undirbúa
málið til að afhenda það lögregl-
unni,“ segir Gissur. ,j)000i
Lögreglan í málið Vinnumálastofnun und-
irbýr að afhenda iögregiunni málefni ólög-
mætrar starfsmannaleigu sem leigt hefur
út starfsmenn án heimilda. Engin svör hafa
borist frá talsmönnum fyrirtækisins.
Blaðið 23. desember