blaðið - 09.01.2007, Page 12

blaðið - 09.01.2007, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 blaðið fólk folk@bladid.net HVAÐ FINNST ÞER? Muntu bjóða upp á lambakjöt í Ullarhúsinu? „Ja, á það ekki bara nokkuð vel við? Annars vil ég nota tækifærið og spyrja Gísla Martein hvort það gildi aðrar reglur um mig en aðra eigendur strippstaða? Ásgeir Þór Davíðsson Eigandi Goldfinger Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, keypti nýverið Ullarhúsið við Austurstræti. Hann segir að þar komi til greina að hafa nektardansstað þó svo ekkert sé enn ákveðið í þeim efnum. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt að borgarbúar séu fegnir að vera lausir við slíka staði. HEYRST HEFUR... Nú stendur yfir kosning fyrir Hlustendaverðlaun Fm 95.7 en hátiðin sjálf fer fram 23. janúar næstkomandi. Verðlaunin eru veittfyrir þaðbesta og markverðasta sem fram kom í tónlist á árinu 2006 en eitthvað virðast tilnefningarnar vera á eftir áætlun þar sem þrjár af til- nefndum plötum ársins eru frá árinu 2005 og sama má segja um tvö af þeim lögum sem tilnefnd eru til verðlauna. Útvarpsstöðin er kannski ekki þekkt fyrir mikla framúrstefnu og það kemur því ekki á óvart að hún skuli tilnefna sem nýliða ársins Ampop og Trabant. Báðar þessar hljómsveitir hafa fyrir löngu fest sig í sessi og eru búnar að starfa saman lengi og því langt frá því að hægt sé að kalla þær nýliða. Auglýsingaherferðir og markaðsátök virðast falla í grýttan jarðveg meðal þjóðarinnar og svo virðist sem fólk sé að standa upp og neita að láta slíkar brellur og herferðir yfir sig ganga. Fyrsta dæmið voru SMS-skeytin frá Dominos á að- fangadagskvöld sem eyðilögðu jólin fýrir mörgum. Bó-diskur- inn í álpappír móðgaði margan Hafnfirðinginn og markaðs- menn Alcan sitja nú uppi með heilu diskarekkana af tvöföldum Bó. Brauðkarfa sem viðskipta- vinir Kb banka fengu í jólagjöf vakti ekkert nema spurningar og vesen og nú er búið að gera háðsútúrsnúninga á auglýsinga- herferð Kaupþings. Síðasta her- ferðin sem skaut yfir markið er síðan herferð Ölgerðarinnar sem sýnir bossa og styrkir í leiðinni sleikkeppni stelpna á Netinu. Nú er bara spurning hvort auglýs- inga- og markaðsmenn fari að skoða aðrar og hugmyndaríkari leiðir til að koma fyrirtækjum og málefnum á framfæri. Krumpið komið til íslands Krump er heitasta dansæðið sem skekur heiminn um þessar mundir. Nýlega var sýnd áhugaverð heimild- armynd í Sjónvarpinu um krump og þeir sem fylgjast með veruleika- dansþættinum „So you think you can dance” hafa ekki farið varhluta af þessum nýja og hraða dansstíl. Til marks um vinsælda dansins er söngkonan Beyoncé er meðal þeirra sem eru byrjaðir að krumpa. Kynntist krumpinu í New York Sandra Erlingsdóttir dansari ætlaraðkennalslendingum krump og kennsla hefst í Kramhúsinu nú í vikunni. Sandra kynntist krumpinu þegar hún var búsett í New York. „Eg hef lagt stund á dans frá því að ég var lítil og hef dansað afró síð- astliðin 12 ár. I New York lagði ég stund á afró og lærði hjá nokkrum af þekktustu afrókennurum þar í borg. Ég komst fyrst í kynni við krump í New York og hef síðan verið að kynna mér það enn frekar.“ segir Sandra sem einnig hefur kennt hipp- hopp í Kramhúsinu. Dansinn undankomuleið Krump er ættað frá harðbýlasta hverfi Los Angeles-borgar, South Central, og í dansinum gætir áhrifa frá afródansi og hipphoppi. Dans- inn er mjög hraður og honum fylgja mikil átök enda er krumpdans aðferð til að losa sig við reiði og áhyggjur daglega lífsins með agr- essívum hreyfingum. „Krumpið kemur upphaflega frá clown-dansi sem er dansstíll sem varð til í South Central í kringum 1990.1 kringum clown-dans varð til sérstakur skóli og danshópur sem stofnaður var af Tommy the Clown og dansinn var einskonar undankomuleið fyrir ungt fólk frá lífi í klíkum og eitur- lyfjum," segir Sandra. Alþjóðlegt æði í uppsiglingu Krumpið kom fyrst fram í kringum20ooogupphafsmennþess voru allir í Clown-dansskólanum. „Þetta er fremur agressívur dans og í honum birtast margir dans- stílar eins og hipphopp og break. Það er í rauninni allt leyfilegt svo lengi sem krumpforminu er haldið á einhvern hátt. Upphaflega var krump dansað þannig að fólk fór inn í hring og spann og notaði dansinn sem aðferð til að losa sig við reiði og tjá tilfinningar. Nú er alþjóðlegt æði í uppsiglingu og byrjað að gera dansrútínur í anda krumpsins,“ segir Sandra. Sandra segist ekki vera í nokkrum vafa um að íslendingar geti tileinkað sér þennan dans og er sannfærð um það að hvítir menn geti líka krumpað. „Ég hvet alla til að koma og prófa, það er ekkert að óttast.” Sandra Erlingsdóttir ætlar að kenna íslendingum krump Er sannfærð um að hvítir menn geti líka krumpað og hvetur alla til að prófa. BlaÖiÖ/Frikki SU DOKU tainaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 7 5 6 9 2 1 3 9 5 3 2 5 4 7 1 6 7 1 8 9 2 8 5 7 6 1 8 9 v 4 7 9 3 8 1 4 6 2 5 4 8 2 5 3 6 7 9 1 5 1 6 7 9 2 3 4 8 1 4 7 9 5 8 2 3 6 2 5 9 1 6 3 4 8 7 3 6 8 4 2 7 1 5 9 6 2 1 3 8 5 9 7 4 8 3 4 6 7 9 5 1 2 9 7 5 2 4 1 8 6 3 eftir Jim Unger 3-23 © LaughingSlock Intemational Inc./dist. by United Media, 2004 Þú gleymdir afmæli kattarins, er það ekki? A förnum vegi Ætlar þú í heilsuátak nú á nýju ári? Ari Trausti Guðmundsson lausapenni Nei, ég er heilsuátaki allan árs- ins hring. Sigríður Anna Harðardóttir ríkisstarfsmaður Er maður ekki alltaf í heilsuátaki? Álfhildur Kristjánsdóttir, heimavinnandi húsmóðir Já, að sjálfsögðu. Ragnheiður Adolfsdóttir bókasafnsfræðingur Ekki annað en bara það sem ég er í dagsdaglega. Iðunn Brynjarsdóttir nemi Nei, ég er svo mikið í íþróttum að ég held ég þurfi þess ekki.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.