blaðið - 17.02.2007, Qupperneq 23
Atvinnuauglýsingar
Auglýsingasíminn er 510 3728
}
PÓSTURINN
Bréfberar
- holl og góð hreyfing
(slandspóstur óskar eftir bréfberum til starfa á Kjalarnesi.
Vinnutíminn er breytilegur eða eftir samkomulagi.
Við bjóðum upp á hressandi störf fyrir fólk á öllum aldri
við flokkun og útburð á pósti. Ef þú vilt stunda holla og
góða hreyfingu og fá greitt fyrir sæktu þá um.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 580 1000
og á netfanginu postur@postur.is
Einnig er hægt að sækja um starf á www.postur.is
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg
- Einn vinnustaður
Lögfræðingur
Laus er til umsóknar staða lögfræðings á
lögfræðiskrifstofu Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Um hlutastarf er að ræða.
Menntun og hæfni:
Umsækjandi þarf að hafa embættispróf í lögfræði.
Einnig þarf umsækjandi að sýna frumkvæði og
sjálfstæði í starfi og hæfni í mannlegum samskip-
tum. Reynsla af störfum í stjórnsýslu er æskileg.
Verksvið:
Lögfræðingur á lögfræðiskrifstofu Velferðarsviðs
sinnir margvíslegri ráðgjöf við yfirstjórn,aðra
stjórnendur og starfsmenn sviðsins á grundvelli
þeirra laga er gilda um velferðarþjónustu á vegum
sveitarfélaga. Auk þess hefur lögfræðingur umsjón
með samskiptum við aðrar opinberar stofnanir
varðandi ýmis álitaefni í daglegum rekstri auk þess
að sinna öðrum tilfallandi verkefnum hverju sinni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkur-
borgar og Stéttarfélags lögfræðinga. Umsóknar-
frestur er til 5. mars 2007.
Upplýsingar veitir Helga Benediktsdóttir,
lögfræðingur, í síma 411 9015/411 9000.
Umsóknir sendist til Velferðarsviðs Reykjavíkurbor-
gar,Tryggvagötu 17,101 Reykjavík.
Velferðarsvið fer með ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar, þ.m.t. barnavemd og félagsþjónustu. Það ber
ábyrgð á að framfylgt sé stefnumótun og áætlunargerð í velferðarmálum, eftirliti og mati á árangri, samhæfingu og
samþættingu í málaflokknum.Þróun á mati á gæðum velferðarþjónustu,tengslum rannsókna og þjónustu,nýsköpun
og þróun nýrra úrræða ívelferðarþjónustu. Að auki annastVelferðarsvið reksturýmissa úrræða.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hiut kynja istörfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig
skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Gagarín óskar eftir að ráða forritara. Við leitum að
tölvunar- eða verkfræðingi með reynslu af
hugbúnaðarþróun. Verkefnin eru þróun á
tæknilausnum Gagarín og sérlausnirýmiss konar.
Æskileg þekking: hlutbundin forritun, gagna-
grunnar og SQL, XML/XSLT og Flash forritun.
Frumkvæði og áhugi á að tileinka sér nýjungar er
skilyrði. Þarf að hafa áhuga á þróun á efni og
lausnum í margmiðlun.
Við leggjum áherslu á að fá til liðs við okkur
hæfileikaríkan einstakling sem er tilbúinn að
leggja fram þekkingu og reynslu á þessu sviði, sem
jafnframt er tilbúinn að læra nýja hluti og leita
nýrra lausna. Við leggjum áherslu á fagleg vinnu-
brögð, styrka verkefnastjórnun og frumleika og
skapandi hugsun í öllu okkar starfi. Sjá nánar um
fyrirtækiðá www.gagarin.is.
Umsóknir skal senda á gudny@gagarin.is
merkt„Forritari".
0
G A G A R I N
Gagarín ehf. sérhæfir sig i hönnun og
útfærslu lausna fyrir gagnvirka miðla og
ráðgjöf á þvi sviði. Margmiðlunarlausnir
fyrirtækisins hafa fengið viðurkenningar
á innlendum og erlendum vettvangi.
Óskum eftir að ráða sölufulltrúa í
verslun okkar. Um er að ræða lifandi
sölustarf hjá vaxandi fyrirtæki. Starfið
felur í sér mikil samskipti við viðskipta-
vini, tilboðsgerð, ráðgjöf og mælingar á
heimilum viðskiptavina o.fl..
Hæfniskröfur:
• Lipurð í mannlegum samskiptum og söluhæfileikar.
• Nákvæmni í vinnubrögðum.
• Stundvísi og helgun að starfi.
• Þekking á Office-hugbúnaðinum (Word, Excel..)
• Áhugi á innanhússhönnun.
Umsóknir og óskir um frekari
upplýsingar sendast á: jon@solar.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2007.
f