blaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 36
36
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2007
helciin
helgin@bladid.net
Laddi 6-Tugur
Grínsýningin 6-Tugur veröur frumsýnd í
Borgarleikhúsinu í kvöld en hún er haldin í
tilefni sextugsafmælis eins ástsælasta leik-
ara og skemmtikrafts þjóöarinnar Ladda.
Lifi Alafoss
Varmársamtökin halda baráttu- og styrktartónleika undir yfirskriftinni Lifi
Álafoss! i BaseCamp Verinu á morgun sunnudag kl. 20. Fram koma Sigur
Rós, Bogomil Font og Flís, Pétur Ben, Amiina og Benni Hemm Hemm.
Miðaverð er 3200 krónur og er hægt að fá miða á vefsvæðinu midi.is.
blaðiö
UMHELGINA
Stóra stundin í kvöld
Framlag (slendinga til Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva (Eurovision) verður valið
í BaseCamp Verinu að Seljavegi
2 í kvöld. Keppnin verður send
út í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu og getur fólk greitt sínu
lagi atkvæði sitt í símakosningu
að keppni lokinni.
Trönurnar fljúga
Sovéska kvikmyndin „Trönurnar
fljúga“ í leikstjórn Kalatozovs
verður sýnd í MÍR-salnum Hverf-
isgötu 105 á morgun sunnudag
kl.15. Þetta er saga um ást sem
jafnvel stríð fær ekki eyðilagt.
í aðalhlutverkum eru Batalov
og Samojlova. Aðgangur er
ókeypis.
Háskóladagurinn
Allir háskólar landsins verða
með kynningu á starfsemi sinni
á Háskóladeginum sem hald-
inn verður á þremur stöðum í
Reykjavík í dag kl. 11-16. í Borg-
arleikhúsinu verða Háskólinn
á Akureyri, Háskólinn á Bifröst,
Háskólinn í Reykjavík, Hólaskóli
- Háskólinn á Hólum, Landbún-
aðarháskóli íslands og Lista-
háskófi Islands. í Háskólabíói
verður Háskóli íslands með sína
kynningu og Kennaraháskólinn
verður með kynningu í húsnæði
sínu við Stakkahlíð.
Merkileg söguleg heimild
Myndirnar á árlegri sýningu
Blaðaljósmyndarafélags
Islands eru merkilegar sögu-
legar heimildir um atburði
árs. Bhöiö/Eyþór
Myndir ársins í Gerðarsafni
Sagan í myndum
tíð ríkir
m i k i 1
tilhlökk-
un fyrir
á r 1 e g a
sýningu
Blaðaljós-
m y n d -
arafélags íslands, enda gefur hún
skemmtilegan þverskurð af at-
burðum nýliðins árs og fólkinu
sem mótaði söguna eða baðaði
sig í sviðsljósinu. Sýningin verður
opnuð í dag kl.15 og við sama til-
efni verður tilkynnt hvaða myndir
hlutu verðlaun í ýmsum flokkum.
Um 200 myndir eru á sýningunni
að þessu sinni og valdi dómnefnd
þær úr nærri 2500 myndum sem
bárust í forvalið. Brynjar Gunn-
arsson sýningarstjóri segir að
þetta séu heldur fleiri myndir en
áður.
„Ég held að þær hafi verið í kring-
um 2000 í fyrra þannig að það er
alltaf að bætast við sem gerir starf
dómnefndar aðeins erfiðara," segir
Brynjar.
Hann er ekki frá því að fjöldi
mynda sem berst í forval sýningar-
innar sé til marks um grósku i stétt
blaðaljósmyndara.
„Við erum rosalega stoltir af þess-
ari sýningu og við höldum að hún
verði alltaf betri og betri með hverju
árinu,“ segir Brynjar.
„Ég held að það sé meira af góðum
myndum sem berast í forvalið og
þar af leiðandi i sýninguna sjálfa
en áður. Svo er nýliðun í faginu þó
nokkur líka. Miðlarnir eru náttúr-
lega orðnir fleiri og það er hellingur
af fólki í lausamennsku sem mynd-
ar fyrir hin og þessi tímarit," segir
hann.
Nýtur mikilla vinsælda
Sýning Blaðaljósmyndarafélags-
ins hefur verið vel sótt í gegnum
árin og segir Brynjar að um 10.000
manns sjái hana á ári hverju. „Það
er reyndar ekki alveg hægt að segja
til um það því að skólahópar og aðr-
ir fá frítt inn og þeir eru ekki taldir
með. Ég held samt án þess að hafa
mikið fyrir mér í því að þetta sé vin-
sælasta listasýningin á ári hverju,“
segir hann.
„Ljósmyndin ersú listgrein
sem er á hvaö hraöastrí
uppleiö í heiminum í dag
og þess vegna held ég aö
sýningin sé svona vinsæl.“
„Ljósmyndin er sú listgrein sem
er á hvað hraðastri uppleið í heimin-
um í dag og þess vegna held ég að
sýningin sé svona vinsæl. Það er
lika gaman að geta séð á einni sýn-
ingu allt það merkilegasta og mikil-
vægasta sem var að gerast á síðsta
ári,“ segir hann.
Eins og undanfarin ár verður
bókin Myndir ársins gefin út sam-
hliða sýningunni en þetta er í þriðja
skipti sem það er gert.
„Bókin er merkileg sjónræn og
söguleg heimild um það sem var að
gerast á síðasta ári. Hún er svolítið
eins og Öldin okkar nema við tök-
um bara fyrir eitt ár í einu,“ segir
Brynjar.
Kárahnjúkar frá ýmsum hliðum
Sú hefð hefur skapast í gegnum
árin að samhliða sýningu blaðaljós-
myndara er sett upp einkasýning
á verkum valinkunns ljósmyndara
á neðri hæð Gerðarsafns. Að þessu
sinni verður brugðið út af vananum
og nú verður þar samsýning nokk-
urra ljósmyndara á myndum frá
Kárahnjúkasvæðinu.
„Núna ákváðum við að fara þessa
leið af því að þetta er sá þáttur sem
er kannski búinn að vera einna mest
í fréttum í gegnum árin og má segja
að hafi náð hátindi í fyrra,“ segir
Brynjar og bætir við að bæði séu á
sýningunni gamlar og nýjar mynd-
ir af svæðinu.
„Þarna eru til dæmis myndir af
svæði sem er búið að sökkva núna
og aðrar teknar af sama stað síðar
þannig að maður sér muninn.
Við settum þessa sýningu upp
sem seríur þannig að hver ljósmynd-
ari er með eina eða fleiri seríu af
svæðinu. I hverri seríu sést persónu-
leg sýn ljósmyndarans greinilega og
þarna má bæði sjá myndir af verka-
mönnum við vinnu sem og ægifag-
urri náttúru,“ segir Brynjar Gunn-
arsson að lokum.
Eurovisiongleði á
Þeir sem ekki hafa fengið
nóg af Eurovision eftir úr-
slitakeppnina í kvöld geta
skellt sér á skemmtistaðinn
Nasa þar sem haldið verður
sérstakt Eurovision-partí.
Eursovision-farinn fyrrver-
andi Páll Óskar Hjám-
týsson þeytir skíf-
um og treður upp
og að sjálfsögðu
verður sérstök
áhersla lögð r
á Eurovision-
lög fyrri ára
auk klass-
Eurovision-partí Palla
Páll Óskar þeytir skífum
og treður sjálfur upp.,
iskra partislagara. Þá munu
keppendur í úrslitakeppn-
inni frá því fyrr um kvöldið
einnig fjölmenna á staðinn
og sigurvegarinn tekur sig-
urlagið.
Sérstakur gestur
kvöldsins verð-
i \ ur enginn ann-
ar en Mihai
Traistariu,
fulltrúi
Rúmeníu
í Söngva-
keppn-
inni í
Mihai frá Rúmeníu Fulltrúi
Rúmeniu í Eurovision i fyrra
kemur fram á Nasa i kvöld.
heimalandi sínu Rúmen-
íu, hefur gefið út átta
sólóplötur og hefur
ferðast víða um
Evrópu og sung-
ið frá því að
„Tornero" sló í
gegn.
Húsið verður
opnað kl. 23 og
kostar 1900 krónur
inn.
Nasa
fyrra, en hann sló sem
kunnugt er í gegn í
Grikklandi með lag-
inu „Tornero“.
Lagið hefur notið
mikilla vinsælda
víða um Evrópu,
þar á meðal hér
á landi og seldist
smáskífan með
því í stærra upplagi
en smáskífa sigurveg-
ara keppninnar í fyrra,
finnsku skrímslasveitar-
innar Lordi.
Mihai er stórstjarna í