blaðið - 17.02.2007, Page 27
blaöiö
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2007 21'
Lay Low á
tónleikum
Fyrstu tónleikartónlistarveisl-
unnar „Tónar við hafið“ verða
á Þorlákshöfn með tónleikum
Lovísu Elísabetar Sigrúnar-
dóttur, eða Lay Low, í Versölum
næstkomandi miðvikudagskvöld
klukkan 21. Salurinn er í Ráðhús-
inu í Þorlákshöfn og þykir róm-
góður og einstaklega hentugur til
tónleikahalds. Menningarnefnd
Sveitarfélagsins Ölfus efndi í
fyrsta skipti til tónlistarveislunnar
árið 2004 og er markmiðið að
bjóða upp á fjölbreytilega dag-
skrá tónlistarfólks af Suðurlandi
og annars staðar að.
Óperudagar
Evrópu
Þessa helgi halda óperuhús um
alla Evrópu upp á fjögurra alda
óperuhefð undir yfirskriftinni
Óperudagar Evrópu. Samtök evr-
ópskra óperuhúsa ætla að halda
ráðstefnu í París þessa helgi þar
sem áhorfendur, óperulistamenn,
óperustjórar, fulltrúar fjölmiðla
og ungt áhugafólk um óperur frá
allri Evrópu taka þátt í viðburðum
og umræðum um stöðu óperu-
listarinnar í samfélaginu. Á sama
tíma bjóða óperuhús víðsvegar
um Evrópu upp á fjölbreytta
dagskrá.
í tilefni af Óperudögum Evrópu
býður Islenska óperan upp á
fjölbreytta dagskrá um helgina.
Meðal þess sem þoðið er upp á
í dag er Óperusöngur í Sund-
höll Reykjavíkur klukkan 11.30
og kostar einn sundmiða inn.
Klukkan 17 verða afmælistón-
leikar Árnesingakórsins þar sem
aðgangseyrir er 2500 krónur og
í dag og á morgun klukkan 15
verða tónleikar að nafni Raddir
framtíðarinnar. Þar gefst tækifæri
til að heyra í ungum, efnilegum
óperusöngvurum sem eru að
stíga sín fyrstu skref á ferlinum,
og aðgangur er ókeypis.
Émilie Simon í
Háskólabíói
Miðasala á tónleika frönsku söng-
konunnar Émilie Simon hefst á
midi.is á mánudaginn næstkom-
andi, en tónleikarnir verða þann
4.mars í Háskólabíói. Tónleik-
arnir eru haldnir í tengslum við
frönsku menningarhátíðina
Franskt vor á (slandi.
Söngkonan unga nýtur mikilla
vinsælda í Frakklandi og þegar
frumraun hennar kom út var
henni strax líkt við ekki ómerkari
tónlistarkonu en Björk okkar Guð-
mundsdóttur.
List í Lækjargötu
Anima opnar nýtt gallerí á ann-
arri hæð í Iðuhúsinu við Lækjargötu
klukkan 17 í dag. Um er að ræða við-
bót við Gallerí Animu sem hefur ver-
ið starfrækt í eitt ár í Ingólfsstræti
8. Aðstandendur nýja gallerísins við
Lækjargötu eru Hólmfríður Jóhann-
esdóttir söngkona og Kristinn Már
Pálmason myndlistarmaður.
Að sögn Kristins er þetta nýja gall-
erí með nokkuð óvenjulegu sniði.
„Þetta er 100 fermetra salur og við
ákváðum að hafa ekki framhlið á gall-
eríinu þannig að það yrði opið og tæki
á móti hverjum þeim sem kæmi upp á
efri hæðina. Þannig færum við listina
meira út til fólksins en höldum um
leið I sérkenni gallerís,“ segir hann.
Spurður um hvers konar list sé i
boði, segir Kristinn, að þau Hólmfríð-
ur leggi töluverða áherslu á málverk
og ljósmyndir. „Við höfum ekki beint
viljað gefa út opinbera yfirlýsingu
um stefnu en það eru samt ákveðn-
ir kontrastar ríkjandi, annars vegar
raunsæi og hins vegar rómantík."
Opnunarathöfn verður í dag klukk-
an 17 og eru allir velkomnir. „Svo verð-
ur það opið frá 10-22 alla daga vikunn-
ar og það er óvenjulegt fyrir svona
gallerí. Fólk getur þvi skoðað listaverk
langt fram á kvöld og jafnvel kíkt við
i kvöldgöngunni eða kaffihúsaferð-
inni,“ segir Kristinn að lokum.
ilbúinn fyrir
útivistarfólkið!
Suzuki Swi
þús.
Afborgun á mánuði*
kr. 19.676
M
$ SUZUKI
...er lífsstfll!