blaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 20
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
Poppóperustjarnan Josh Groban heldur tónleíka í Laugar-
dalshöllinni 16. maí. Með honum í för verður hans eigin
hrynsveit auk þess sem fram koma með honum bæði
sinfóníuhljómsveit og Gospelkór Reykjavíkur.
Bókaveisla í Perlunni
Hinn árlegi markaður Félags bókaútgefenda
stendur nú sem hæst í Perlunni. Það er af nógu
að taka og ættu allir bókaormar að geta gert þar
góð kauþ.
menning@bladid.net
Hroki og
hleypidómar
Fúría, leikfélag Kvennaskólans
í Reykjavík, frumsýnir Hroka og
hleypidóma eftir Jane Austen
þann 7. mars í Tjarnarbíó. Þetta
er fyrsta uppfærsla verksins hér á
landi. Sigrún Sól Ólafsdóttir gerði
leikgerðina og leikstýrir jafnframt
verkinu. öll tónlistin í sýningunni
er frumsamin af hljómsveit sem
skipuð er nokkrum nemendum
Kvennaskólans og setur hún
skemmtilegan svip á sýning-
una. Sýningin er litrík og fjörug
með dansi, söng og tilheyrandi
pilsaþyt. Tryggð er haldið við
söguþráðinn en þó koma fram ný
sjónarhorn á nokkra atburði sem
skerpa þá ádeilu sem er í verkinu.
Þjóðlagatónlist í
Norræna húsinu
Bára Grímsdóttir og Chris Foster
halda þjóðlagatónleika á alþjóð-
legum degi kvenna, 8. mars undir
yfirskriftinni Konan. Þau flytja
þjóðlög frá íslandi og Englandi,
syngja, leika á gítar, kjöltuhörpu
(kantele),
lang-
spil og
íslenska
fiðlu,
auk þess sem
myndasýning fylgirtón-
listinni. BáraGrímsdóttir, söng-
kona og tónskáld, hefur um langt
árabil verið flytjandi íslenskra
þjóðlaga og kvæðalaga. Hún
ólst upp við kveðskap og söng
foreldra sinna og afa og ömmu
í Grímstungu í Vatnsdal. Tónleik-
arnir verða haldnir í Norræna
húsinu og hefjast klukkan 20.
Húmor
og hugrekki
Jón Kristinn Cortez Hefur
stjórnað Þröstum i tíu ár
BlaÖið/Frikki
Hnallþórur og sönglög
að er kunnara en frá
þurfi að segja að karla-
kóramenning er ákaf-
lega sterk hér á landi
og fátt er íslenskara en
hljómmikill karlakór, syngjandi
gömul og góð ættjarðarlög. Karla-
kórinn Þrestir fagnaði 95 ára af-
mæli sínu á dögunum og var mikið
um dýrðir í Hásölum í Hafnarfirði
þar sem kórinn bauð vinum og vel-
unnurum upp á hnallþórur og hug-
ljúfa tóna.
„Þegar við fórum að ræða afmæl-
ið og tilhögun þess í haust þá ákváð-
um við strax að halda veglega köku-
veislu og bjóða þangað öllum þeim
sem stutt hafa dyggilega við bakið
á starfinu okkar i gegnum tíðina.
Þá fórum við að hugsa um hvernig
við ættum að láta vita af viðburð-
inum og upp kom sú hugmynd að
taka upp nokkur lög, setja á geisla-
disk og senda hann út ásamt boði
í afmælið. Þetta vatt svo upp á sig
og úr varð ellefu laga diskur,“ seg-
ir Jón Kristinn Cortez, stjórnandi
kórsins.
Félagará öllum aldri
Karlakórinn Þrestir var form-
lega stofnaður árið 1912 en á rætur
að rekja allt til ársins 1908. Það var
Friðrik Bjarnason, kennari og tón-
skáld, sem réðst í það verkefni að
stofna kór í bænum en hann var þá
nýfluttur til Hafnarfjarðar. Frið-
rik stjórnaði kórnum allt til ársins
1924 en kórinn hefur verið starf-
andi óslitið allt til dagsins í dag.
Að sögn Jóns Kristins eru félagar í
kórnum í kringum sextíu. „Kórfé-
lagar eru á öllum aldri, þeir yngstu
rétt um tvítugt og þeir elstu komn-
ir á áttræðisaldur. En í karlakórum
eru nú yfirleitt menn sem búnir
eru að stofna heimili og farnir að
hafa tíma til að sinna sínum hugð-
arefnum. Við æfum tvisvar í viku
og syngjum við hin ýmsu tilefni;
brúðkaup, afmæli og jarðarfarir
svo dæmi sé nefnt.“
Sjóndeildarhringurinn víkkaður
Kórinn fékk til liðs við sig nokkra
af helstu listamönnum þjóðarinn-
ar til þess að gera plötuna sem
glæsilegasta úr garði. Þau Margrét
Eir og Óskar Pétursson taka lagið
með kórnum aukþess sem Hjörleif-
ur Valsson fiðluleikari og Sigurður
FJosason saxófónleikari ljá þeim
krafta sína. Lögin á plötunni eru
ekki hefðbundin karlakóra-
tónlist heldur skemmti-
söngvar á borð við
Amazing Grace, Ra-
móna og Ég fann
þig. „Við erum
að víkka sjón-
deildarhring-
inn. Það er jú
þannig með
alla tónlist að
fólki finnst
ákaflega gam-
an að heyra
það sem það
þekkir. Við
tökum þessu
sem hverju
öðru verk-
efni, vönd-
um til verka
líkt og með
aðra tón-
list sem
við syngjum," segir Jón Kristinn
sem hefur stjórnað kórnum í tíu
ár. „Þetta er skemmtilegt og krefj-
andi starf. Þetta er svolítið eins og
að vera kennari, ég fæ nýja félaga á
hverju ári og reyni að hafa fjöl-
breytnina í fyrirrúmi í laga-
valinu. Þetta er gefandi
og maður sér ekki eftir
þeim tima sem í þetta
fer.“
Einfaldar klisjur duga ekki
(Gerðubergi verður haldin
ráðstefna um barnabókmenntir
.þann 10. mars í minningu Astrid
Lindgren. Sérstakur gestur ráðstefn-
unnar er Helena Gomér sem er yfir-
maður barnadeildarinnar Rum för
Barn í Menningarhúsi Stokkhólms-
búa. Hún býr að mikilli reynslu
á sviði barnamenningar bæði úr
leikhús- og kvikmyndaheiminum
auk þess sem hún vann við að
koma á fót barnamenningarhúsinu
Junibacken sem tileinkað er Astrid
Lindgren oa sænskum barnabók-
menntum. I fyrirlestri sínum mun
hún miðla af reynslu sinni og síðan
mun Ragnheiður Gestsdóttir, fund-
arstjóri ráðstefnunnar og talsmaður
Samtaka um barnamenningar-
stofnun, leiða umræður. Dagskráin
hefst klukkan 10:30.
Karlahópur Femínistafélags Is-
lands stendur fyrir klámkvöldi í
kvöld, miðvikudaginn 7. mars, á
Barnum. Hætt er þó við því að þeir
sem vonast til þess að sjá brjóst og
bera bossa verði fyrir vonbrigðum
enda er markmiðið að ræða klám í
kynjuðu samhengi, fjalla um ímynd-
ir í klámi, klámiðnaðinn og neyslu
ungs fólks á klámi. Frummælendur
eru Gunnar Hersveinn heimspek-
ingur, Siggi Pönk hjúkrunarfræð-
ingur og Hjálmar G. Sigmarsson
mannfræðingur. „Það er búið að
standa til hjá okkur lengi að halda
slíkt kvöld en í ljósi þess sem átt hef-
ur sér stað á undanförnum vikum
þá fannst okkur tilvalið að efna til
þess núna,“ segir Hjálmar G. Sig-
marsson en hann heldur sjálfur er-
indi um rannsókn sem hann vann
ásamt Andreu Ólafsdóttur um upp-
lifun og viðhorf unglinga til kláms.
„Okkur langar til þess að nota
þetta tækifæri til þess að fá karla
til þess að sýna ábyrgð í umræð-
unni um klám. Því miður hafa þeir
sem hafa talað gegn klámi verið
að fá ákaflega harða og óréttmæta
gagnrýni og okkur langar til að fá
tækifæri til þess að skýra okkar sjón-
armið og efna til málefnalegrar um-
ræðu um þessi mál.“
Hjálmarsegist ekki kunna skýring-
ar á því hvers vegna femínistar sem
hafa látið til sín taka í umræðunni
fá svo harkalega gagnrýni. „Þetta er
auðvitað mjög viðkvæmt mál sem
flestir hafa sterkar skoðanir á. Við
viljum setja þetta í þjóðfélagslegt
samhengi líkt og femínistar sem
hafa verið áberandi í umræðunni
hafa verið að gera. Okkur finnst
sú umræða ekki hafa skilað sér al-
mennilega og oft fallið fyrir daufum
eyrum. Það þjónar engum tilgangi
að afgreiða þetta stóra mál með
einföldum klisjum og alhæfingum.
Við verðum að sýna ábyrgð og beita
skynsamlegum efnistökum," segir
Hjálmar og bætir við að nauðsynlegt
sé að leiðrétta þann misskilning að
þeir sem andæfi klámi séu einnig að
tala á móti kynlífi.
Húsið verður opnað klukkan 20
og eru allir sem vilja kynna sér um-
ræðuna hjartanlega velkomnir.
Þarft þú að losna
við aukakíló?
- kíktu inn á metasys.is
K
metasys.is