blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 blaðiö INNLENT BÍLSLYS í ÞRENGSLUM Stúlku enn haldið sofandi Stúlka liggur á gjörgæslunni í Fossvoginum eftir að hafa lent f bílslysi í Þrengslum um síðustu helgi. Að sögn yfirlæknis á gjörgæslunni er líðan stúlkunnar óbreytt og stöðug, en eins og sagt var frá í Blaðinu á þriðjudaginn hefur henni verið haldið sofandi. REYKJAVÍK Starfatorg fyrir eldri borgara Stefnt er að þvi að starfatorg fyrir eldri borgara í Reykjavík geti orðið að veruleika 1. september næstkomandi. (nýlegri rannsókn Capacent kemur fram að 25 prósent eldri borgara hafa áhuga á að vinna lengur. VERÐBÓLGUSPÁ GLITNIS Seðiabankinn nær markmiði sínu Glitnir spáir því að landsframleiðsla muni í ár dragast saman um 0,2 prósent miðað við óbreytt verðlag. Einnig spáir bankinn því að Seðlabankinn muni ná 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði sínu á árinu. Þetta kom fram í þjóðhagsspá Glitnis fyrir árin 2007-2010. Þá er því spá að á tímabilinu fari atvinnuleysi yfir 3 prósent. Átak sýslumanns: Helmingur kominn Um 6o af þeim 120 sem voru á lista yfir þá sem hafa hunsað boð- anir sýslumanns vegna fjárnáms höfðu komið til embættisins seinnipartinn í gær, samkvæmt Þuríði Árnadóttur, deildarstjóra fullnustudeildar. Allir þessir einstaklingar hafa komið til fullnustudeildar að tilstuðlan lögreglu og meirihlutinn í fylgd hennar. Lögreglan fékk listann með nöfnum einstaklinganna í lok febrúar en átak sýslumannsins í Reykjavík hófst 25. febrúar síð- astliðinn. Liggja fyrir nokkur þúsund kröfur um fjárnám sem ekki hefur tekist að ljúka þar sem einstaklingar hafa hunsað boðanir sýslumanns. Elstu kröf- urnar á þessum fyrsta lista eru frá árinu 2003. Noregur: Faöir Mette- Marit látinn Blaðamaðurinn Sven 0. Hoiby, faðir norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, lést úr lungnakrabba- meini í gær. Hoiby greindist með sjúkdóminn síðasta sumar og var sjötugur að aldri þegar hann lést. Samband krónprinsessunnar og föður hennar var stormasamt og dró verulega úr sambandi feðg- inanna eftir að hún giftist Hákoni krónprins árið 2001. Foreldrar Mette-Marit skildu þegar hún var ellefu ára gömul og ólst hún upp hjá móður sinni. Fréttir af Hoiby birtust reglulega á síðum slúðurblaðsins Se og Hor um árabil eftir að Mette-Ma- rit tók saman við krónprinsinn. Með augun á drykknum Helsta hættan er aó sve- fnlyfi sé laumað i drykki á skemmtistöðum. Varað við nauðgunarlyfi: Lyfið það sama og Rohypnol ■ Sala á lyfinu minnkað undanfarin ár ■ Lyfið gott fyrir þá sem þurfa Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Nauðgunarlyfið sem landlæknir hefur séð ástæðu til að vara við hefur nákvæmlega sömu verkanir og Rohypnol, enda um samheita- lyf að ræða. Rohypnol var skráð af markaði fyrir nokkrum árum. Lyfið hefur sljóvgandi áhrif á þann sem neytir þess og veldur minnisleysi. Nafn lyfsins verður ekki gefið upp en sala á því hefur minnkað ört undanfarin ár. Eins og sést á meðfylgjandi töflu er notkun þess langmest hjá þeim sem eru 60 ára og eldri en minnst í yngsta aldurs- flokknum, yngri en 35 ára. Enginn undir 15 ára aldri hefur leyst út lyfíð frá árinu 2004 og aðeins einn undir 20 ára aldri leysti út lyfið í fyrra. Gagnagrunnur veitir aðhald Matthias Halldórsson landlæknir segir að lyfið sé gott fyrir þá sem þurfa á þvi að halda. Eldra fólki, sem notar lyfið í mestum mæli, finnist oft erfitt að skipta út lyfjum sem virka vel og iðulega sé kvartað þegar lyf eru tekin af skrá. Hann segir að lyfið sé i langflestum tilfellum ekki gefið út sem fyrsta lyf auk þess sem lyfjgagna- grunnurinn veiti bæði aðhald og bæti eftirlit með þvi. í ljósi þess telur hann ekki þörf á að afskrá lyfið. Sú spurning hefur vaknað hvort hægt sé að bæta litarefnum út i lyfið svo hægt yrði að greina það sé því blandað út í drykki. „Það var talað um að setja litarefni út í lyfið. En aðstæður eru þannig á skemmti- stöðum að fólk spáir ekki mikið í það ef einhver litur er í glasi,“ segir Matthías. Blandað út í drykk! Þórunn Þórarinsdóttir, starfs- kona hjá Stígamótum, segir að öðru hvoru komi upp grunur um lyfja- nauðganir. Fórnarlömb nauðgana tali oft um undarlegt óminni, þrátt fyrir að muna ekki eftir að hafa drukkið nema hálfan bjór. Likt og með Rohypnol og sambæri- leg nauðgunarlyf er helsta hættan sú að lyfinu sé blandað út í drykki á veitingastöðum og skemmtunum. Er skemmst að minnast umræðunnar í kringum Eldborgarhátíðina þar sem upp komu tilfelli þar sem stúlkum var byrlað smjörsýru og nauðgað. Líkt og Rohypnol hefur svefnlyfið róandi verkun og tekur 20 mínútur fyrir lyfið að byrja að virka eftir að það er tekið inn. Algengar aukaverk- anir eru þreyta og sljóleiki. Sjaldgæf- ari aukaverkanir eru vöðvaslapp- leiki og örðugleikar við að stjórna hreyfingum. Of stórir skammtar geta valdið öndunarstöðvun og meðvitundarleysi. Notkun svefnlyfsins 6.299 2003-2006 Aldursdreifing einstaklinga sem leystu út lyfið a.m.k. einu sinni á árinu 3.597 5-34 ára 35-60 ára 60 + ára Ríkisskattstjóri: Fresturinn runninn út Frestur til að skila skattfram- tali rann út í gær og var búið að skila skattframtali rafrænt fyrir 59 þúsund kennitölur um hádegið í gær, samkvæmt Jóni H. Steingrímssyni, for- stöðumanni þjónustusviðs hjá ríkisskattstjóra. Um 1200 framtöl á pappír höfðu verið skráð inn í gær en á sama tíma í fyrra voru þau um 3 þúsund. Yfir níutíu prósent skiluðu rafrænt á síðasta ári og er von á jafnvel hærri prósentu á þessu ári. Um hádegið í gær var búið að sækja um frest til að skila skattskýrslu fyrir um 75 þúsund kennitölur. Hagstofa íslands: Kaupmáttur fólks eykst Launavísitala í febrúar er 312,3 stig og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands. Hefur vísi- talan hækkað um 9,8 prósent síðastliðna tólf mánuði. Frá febrúar 2006 til febrúar 2007 hefur neysluverð hækkað um 7,4 prósent en launavísitala í febrúar á síðasta ári var 284,4 stig. Þetta þýðir að kaupmáttur hefur aukist um 2,2 prósent, samkvæmt Tór Einarssyni, pró- fessor í hagfræði við Háskóla íslands. Kaupmáttur einstak- lings er því 2,2 prósent hærri en í febrúarmánuði á þessu ári. Er hér miðað við einstakling sem hefur óbreyttan vinnutíma og tekur laun sem hafa þróast í takt við launavísitöluna. heiLsuakademían kynnir Rope Yoga Heilsuakademían býður upp á Rope Yoga í Egilshöll. Rope Yoga er heildrænt heilsuræktarkerfi sem sameinar hug, tíkama og sál. í samanburði við hefðbundnar kviðæfingar, þá er Rope Yoga áhrifameira en flest önnur líkamsræktartæki sem eru á markaöinum í dag og henta ötlum aldurshópum. Þú f innur strax fyrir árangri eftir fyrstu æfinguna, án þess að þurfa að beita valdi eða að þrauka. Rope Yoga eykur einnig súrefnisflæði, blóðflæði og bætir meltingu. Næstu námskeið hefjast 2. apríl. Vortilboð 14.990 krfyrir 6 vikna námskeið Skráning hafin. heilsuakademían Hreyfing, heilbrigði. skemmtun www.heilsuakodemian.is - sími: 594 9666 BBC fjallar um íslensk virkjanamál: Grænn orkuvandi Islendinga Islendingar standa frammi fyrir grænum orkuvanda, samkvæmt grein blaðamannsins Richard Holl- ingham sem birtist á fréttavef BBC í gær. Þar segir Hollingham frá orðræðu andstæðra hópa á Islandi, þeirra sem vilja hagnast á endur- nýjanlegum orkugjöfum landsins og þeirra sem segja kostnaðinn of mikinn að fórna svo miklu land- svæði óspilltrar náttúru. Fréttamað- urinn ræðir um kosti og galla þess að virkja landið og hagnast á endur- nýjanlegri orku og að komandi þing- kosningar muni að miklu leyti snú- ast um virkjana- og stóriðjumál. Hollingham segir landið vera ein- stakt. „Þrátt fyrir napran vindinn og hörkulegan snjóinn er útsýnið ólíkt öllu öðru á jörðinni. Engin tré, Kárahnjúkastíf la Frétta maðurinn segir frá orð- ræðu andstæðra hópa. ekkert gras, engir litir.“ Greinin er skrifuð í tengslum við útvarpsþátt í röðinni „Crossing Continents" og verður á dagskrá BBC 4 klukkan 11.02 að íslenskum tíma í dag. Holl- ingham ræðir meðal annars við fréttamanninn Ómar Ragnarsson og Sigurð Arnalds, talsmann Kára- hnjúkavirkjunar, um þennan græna orkuvanda landsins.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.