blaðið - 22.03.2007, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007
blaðiö
INNLENT
KOSNtNGAR
I listabókstafur nýs framboðs
Það er nýju framboði Margrétar Sverrisdóttur til
hagsbóta að hafa fengið listabókstafinn I en ekki
I eins og sótt var um, samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu. Sé komman yfir l-inu til
dæmis ekki nógu löng er atkvæðaseðillinn ógildur.
LANDLÆKNIR
Fleiri karlar í ófrjósemisaðgerð
Árið 2005 fóru 274 konur og 285 karlar í ófrjósem-
isaðgerð, að því er kemur fram á fréttavef land-
læknisembættisins. Þetta er í fyrsta skipti sem
fleiri karlar en konur fara í slíka aðgerð. Munur
milli kynja hefur smám saman minnkað.
NÝTT SPÁLÍKAN
Samdrætti spáð í íbúðafjárfestingu
Ibúðafjárfestingar munu dragast saman næstu misseri,
samkvæmt nýju spálíkani um íbúðafjárfestingar. Ekki er
búist við því að fjárfesting taki við sér fyrr en raunverð fast-
eigna tekur að hækka aftur. Þetta kemur fram á heimasíðu
Samtaka atvinnulífsins.
eelálutertw^.tá
Fjölskyldan og sorgin
Fræðslufundur í Neskirkju í kvöld 22. inars kl. 20-22.
Fyrirlesari Hafliði Kristinsson fjölskylduráðgjafi
Allir velkommr!
NÝDÖGUN
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
bílar
föstudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
Jón Steinar Gunnlaugsson:
Taldi ekki hættu á
hagsmunaárekstri
■ Gegndi trúnaðarstarfi ■ Meta þarf vitneskju lögmannsins
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
,Mér sárnaði að maður sem gegndi
trúnaðarstarfi fyrir mig og ég taldi
mig geta treyst skyldi á sama tíma
standa að slíkum aðgerðum gegn fjöl-
skyldu minni.“ Þetta skrifar Ingibjörg
Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, í yfirlýsingu þar
sem hún segir Jón Steinar Gunnlaugs-
son hafa verið lögmann sinn þegar
hún frétti að hann hefði afhent lög-
reglu gögn og borið fram kæru Jóns
Geralds Sullenberger á hendur Jóni
Ásgeiri og samstarfsmönnum hans.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttardómari segir að verkinu sem
Ingibjörg og systir hennar höfðu
falið honum að aðstoða þær í hafi
verið lokið. „Á skrifstofunni var
ennþá í gangi minni háttar verkefni
fyrir hlutafélag í eigu Ingibjargar
sem annar lögfræðingur en ég sá að
mestu leyti um. Ég taldi ekki að þetta
gæti staðið því í vegi að ég tæki að
mér mál fyrir fyrirtæki Jóns Geralds
gegn Baugi þar sem hann krafðist ef-
nda á viðskiptaskuld."
I siðareglum lögmanna segir að
lögmaður megi ekki fara með hags-
muni tveggja eða fleiri skjólstæðinga
í sama máli þegar hagsmunir þeirra
eru andstæðir eða veruleg hætta er á
slíku. í siðareglunum segir jafnframt
að lögmaður skuli varast að taka að
sér nýjan skjólstæðing
ef hagsmunir hans og
þeirra skjólstæðinga
lögmannsins, sem
fyrir eru, fá ekki
samrýmst eða
hætta getur
verið á slíku.
„Lögmannafélag íslands hefur
engar upplýsingar um samnings-
sambandið til að geta tekið afstöðu
í þessu máli og það er ekki inni á
borði þess. Hins vegar eru skýr
ákvæði í siðareglum um hugsan-
lega hagsmunaárekstra. Það sem
við höfum séð í þessu tiltekna máli
eru í rauninni bara yfirlýsingar
beggja aðila,“ segir Ingimar Inga-
son, framkvæmdastjóri Lögmanna-
félags íslands.
Hann segir almennu regluna þá
að á meðan lögmaður sinni hags-
munum eins skjólstæðings geti
hann ekki gætt hagsmuna gagnað-
ila. „Það er alveg skýrt en í sumum
tilfellum gæti það komið til álita,
það er að segja þegar samningssam-
bandi er löngu lokið og ekki er um
skörun að ræða þannig að vitneskja
lögmannsins nýtist á engan hátt í
málinu fyrir hinn aðilann.“
Ingimar bendir á vinnuumhverfi
lögmanna á litlum stöðum úti á
landi. „Það væri víða ókleift fyrir
lögmann að starfa ef hann gæti
ekki gætt hagsmuna skjólstæðings
í einhverju máli sem hann hefði
hugsanlega verið að vinna gegn
fyrir annan skjólstæðing í öðru
máli. I þeim tilvikum verður alltaf
að meta hvaða vitneskju eða
þekkingu lögmaður býr yfir sem
hann gæti hugsanlega notað gegn
skjólstæðingi sínum. Ef hagsmun-
irnir eru alveg ólíkir og engin teng-
ing á milli þá horfir þetta öðruvísi
við. Sviðið sem þarf að skoða þegar
hugsanlegur hagsmunaárekstur
kemur upp er talsvert vítt. Lög-
menn eru vel á verði gagnvart
þessum þætti og eru vandir að virð-
ingu sinni hvað þetta varðar.“
Hreinn Loftsson:
Hvað hefur
Jón að fela?
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs,
ritar í yfiriýsingu að hann hafi haft milli-
göngu um það á sínum tíma að Ingibjörg
S. Páimadóttir leitaði til Jóns Steinars
Gunnlaugssonar hæstaréttardómara. „f
símtali greindi ég Jóni Steinari meðal ann-
ars frá tengslum hennar við Jón Ásgeir Jó-
hannesson." Hreinn segir skýringar Jóns
Steinars, Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra
Morgunblaðsins, og Kjartans Gunnarsson-
ar, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins, á upphafi Baugsmálsins ótrú-
verðugar. Þetta var ekki aðeins spurning
um að Jón Gerald fengi lögmann heldur
hvaða hópur áhrifamanna aetlaði að beita
sér fyrir hann gegn „viðskiptaveldinu”
Baugi. Baktjaldamakkið er smám saman
að opinberast." Jón hafi pví orðið fyrir
þrýstingi um að taka mál Jóns Geralds
að sér. Yfiriýsingar Ingibjargar og Jóns
Steinars séu orð gegn orði. Vitnisburð-
ur Jóns H. B. Snorrasonar, fyrrverandi
saksóknara í Baugsmálinu, fyrir dómi
varpi Ijósi á aðdraganda málsins.
.Greindi hann þarfrá því að Jón Steinar
hefði komið gögnum til sín og þeir síðan
fundað um málið í nokkur skipti áður
en Jón Gerald Sullenberger
kom fyrst til skýrslugjaf-
ar. [...] Lýsing Jóns H.B.
Snorrasonar var gefin
af honum sem vitni
fyrirdómi og þegaraf
þeirri ástæðu ber að
taka fremur mark á
honum í þessu sam-
bandi en Jóni Stein-
ari Gunnlaugssyni.”
Ingibjörg, Jón Steinar og Hreinn
Hreinn segir í yfirlýsingu að orð
standi á móti orði í orðaskaki Ingib-
jargar og Jóns Steinars.