blaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 8
Augiýsingastofa Guðrúnar Onnu
8 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007
blaöiö
NordicPhotos/AFP
Sími 5757 600 • Fax 5757 605 • Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík
fossberg@fossberg.is • www.fossberg.is
og eggjalaus
gerír gœfumuninn
VOGABÆR
Sími 424 6525 www.vogabaer.is
Opinská viðtöl sænska sjónvarpsins við Göran Persson:
Bildt þurfti
framfærslu
■ Bildt segir Persson vera lygara ■ Bush og Jong-ll vanmetnir leiötogar
Eftir Atla (sleifsson
atlii@bladid.net
Carl Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, sakar Göran Persson,
fyrrum forsætisráðherra, um lygar
á bloggsíðu sinni. Fram kemur í
nýjum heimildarþáttum sænska
sjónvarpsins um Persson að hann
hafi boðið Bildt starf sendiherra,
flugmálastjóra og boðist til að styðja
hann í embætti framkvæmdastjóra
Evrópska fjárfestingarbankans, þar
sem hann hafi vorkennt Bildt og að
hann þyrfti á framfærslu að halda
eftir að hafa látið af formannsemb-
ætti Hægri flokksins. Á bloggsíðu
Bildt segir hins vegar að orð Persson
í þáttunum séu hrein ósannindi.
Annar þáttur heimildarmyndar-
innar var sýndur í sænsku sjónvarpi
á þriðjudagskvöld. Þættirnir byggja
á opinskáum leynilegum viðtölum
sem Persson átti við fréttamann
sænska ríkissjónvarpsins í ellefu
ára forsætisráðherratíð sinni. Skil-
yrðið fyrir viðtölunum var að þau
yrðu ekki birt fyrr en eftir að hann
léti af starfi formanns sænska Jafn-
aðarmannaflokksins. Persson lét
af embætti forsætisráðherra eftir
ósigur í þingkosningum í september
síðastliðnum og tók Mona Sahlin
við embætti formanns flokksins á
aukalandsþingi um síðustu helgi.
Vanmetnir leiðtogar
í þætti þriðjudagsins var sérstök
áhersla lögð á feril Perssons í utan-
ríkismálum og þá sér í lagi þegar
Svíar voru í forsæti fyrir Evrópusam-
bandið árið 2001. Á leiðtogafundi í
Gautaborg árið 2001 hitti hann
George Bush Bandaríkjaforseta og
segir hann vera vanmetinn leiðtoga.
Svik fjármálaráðherrans
1 einu viðtalanna sem fréttamaður-
inn átti við Persson árið 1999 kemur
fram að hann hafi litið á afsögn
Kfiívmálaráðherrans Erik
>rink tveimur dögum
iður en leggja átti
fram fjárlög að vori,
sem svik og tilraun
til að fella Persson
semformannflokks-
PW ins. Að auki segir
f Perssonaðfjölmargir
innan ríkisstjórnar
hans, þar á meðal Mona
Sahlin, hafi vitað af væntan-
legri afsögn fjármálaráðherrans án
þess að láta hann vita. Sahlin sagðist
þó ekki kannast við það í viðtali við
sænska fjölmiðla í gær.
Ekki treystandi
Aðspurður um Gudrun Schyman,
fyrrverandi formann Vinstriflokks-
ins, segist Persson þykja lítið til
hennar koma, en ríkisstjórn Pers-
sons naut stuðnings Vinstriflokks-
ins á sínum tíma. „Hún kemur mér
fyrir sjónir sem klofin og óþroskuð
manneskja. Ég myndi ekki treysta
henni stæði þjóðin frammi fyrir
einhverju hættuástandi." Persson
minnist þess þegar Schyman mis-
sti stjórn á skapi sínu í matarboði
fyrir formenn flokkanna þegar
vændi var til umræðu í aðdraganda
forsætistíðar Svíþjóðar í ESB. „Þið
karlarnir eigið ekki að halda að þið
getið riðið konum úr öðrum heims-
hlutum með þessum hætti!“ á Schy-
man áð hafa sagt.
Síðari tveir heimildarþætt-
irnir um Persson verða sýndir í
sænska sjónvarpinu í kvöld og á
mánudaginn.
„Evrópubúar líta á Bush sem algert
núll og nix, en það eru stórkostleg
mistök. Bush er maður sem veit al-
veg nákvæmlega hvað hann vill.“
Þá ferðaðist Persson til
Kóreu þegar hann fór fý
sendinefnd ESB og hitt:
Kim Jong-Il, forseta lands-
ins. Forsætisráðherrann
fyrrverandi lýsir honum
sem „litlum karli á
háum klossum, sem ætti
þó alls ekki að vanmeta
sem stjórnmálamann".
Tómleikatilfinning
I þáttunum segist Persson
sjálfur hafa átt mikinn þátt i að
breyta stefnu sænskra stjórnvalda
í málefnum Mið-Austurlanda. „Við
höfðum tekið þátt í að einangra
Ísraelsríki í allt of langan tíma,“ en
Persson var fyrsti sænski forsætis-
ráðherrann til að heimsækja fsrael
í rúm þrjátíu ár. Hann gagnrýnir
Yasser Arafat, fyrrum leiðtoga Pal-
estínumanna, og segir hann í raun
hafa hjálpað Ariel Sharon að komast
til valda í ísrael.
f forsætistíð Svía í ESB segist
Persson hafa fundið fyrir mikilli
tómleikatilfinningu og þunglyndi.
Erfiðleikar höfðu komið upp í
hjónabandi hans, en hann skildi
við Anniku, konu sína til sjö ára, í
lok árs 2002. Persson ræðir einnig
slúðursögurnar sem blossuðu upp
á þeim tíma, um að hann hefði átt
í ástarsambandi við ráðherrana Ulr-
icu Messing, Margaretu Winberg
og Maj-Inger Klingvall. Hann segir
sögurnar hafa verið uppspuna frá
rótum og að pólitísk öfl hafi komið
þeim af stað til að skaða stjórnmála-
manninn Persson.
ÍSRAEL C
UTAN UR HEIMI
Allsherjarverkfall í landinu
Allsherjarverkfall hófst í (srael í gær sem olli miklum
truflunum í ýmsum þjónustu- og samgöngugeirum
landsins. Verkfalliö var vegna deilna við hið opinbera
um ógreidd laun verkafólks. Talið er að 400 þúsund
hafi lagt niður störf sín og er óljóst hve lengi.
somalia ; *
Sjö falla í átökum
Sjö féllu í hörðum átökum stjórnarhers Sómalíu og voþn-
aðra upþreisnarmanna í Mogadishu í gær. Fréttaritari BBC
segir að árásum á oþinbera starfsmenn og byggingar hafi
fjölgað verulega á síðustu vikum. Um 1.200 friðargæslu-
liðar á vegum Afríkusambandsins eru nú í Sómalíu.
Varaforseti vill ræða við uppreisnarmenn
Tareq al-Hashemi, varaforseti Iraks, segist vilja að (raks-
stjórn taki upþ viðræður við uppreisnarmenn í þeirri viðleitni
að koma á friði í landinu. „Ég tel einu leiðina vera þá að
ræða við alla, að fulltrúum al-Qaeda undanskildum. Upp-
reisnarmenn í landinu eru einungis hluti af samfélaginu.
F0SSBERG
1927&0
SERVERSLUN
FAGMANNSINS
®
oro
'2007
Kranzle
Háþrýstidæla
195TST
Vörunúmer KFIA412052
• Þrýstingur 10-180 bör
• Hámarksþrýstingur 190 bör
• Flæði vatns 7,5 l/mín
Verð: 114.995 kr.
Göran Persson Forsætisráðherr■
ann fyrrverandi lætur fjöimarga
fá það óþvegið íþáttunum, þar
á meðal Carl Bildt, Gudrun Schy-
man og Yasser Arafat.
■