blaðið


blaðið - 22.03.2007, Qupperneq 12

blaðið - 22.03.2007, Qupperneq 12
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 blaöi Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. SigurðurG.Guðjónsson Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elín Albertsdóttir Störf þingsins Það er orðin lenska hérlendis að rétt fyrir lok þings þá fari þingstörfin í uppnám vegna fjölda þeirra mála sem bíða afgreiðslu. Málin eru hrein- lega látin hrúgast upp og á laugardaginn þegar þingið hætti störfum voru 94 mál óafgreidd. Þar á meðal voru nokkur mjög stór mál eins og til dæmis stjórnarfrumvarp um nýtingu auðlinda í jörðu. Þessi lenska eða öllu heldur þessi vinnubrögð geta vart talist boðleg í vestrænu lýræðisþjóðfélagi. Skömmu fyrir þinglok og reyndar eftir þau líka gengu ásakanir á víxl milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar. Umræðan varð ómálefnaleg og gekk orðið út á að slá ryki í augu kjósenda. Stjórnar- flokkarnir sökuðu stjórnarandstöðuna um að hafa komið í veg fyrir að ákveðin mál næðu í gegn með hótunum um málþóf. Stjórnarandstaðan kvartaði aftur á móti undan seinagangi stjórnarflokkanna með fram- lagningu frumvarpa og sagði í hæsta máta eðilegt að verja góðum tima í að ræða stór mál. Það er sérkennilegt, og stenst reyndar varla skoðun, að ríkisstjórnar- flokkarnir saki stjórnarandstöðuna um að stöðva ákveðin mál með hót- unum um málþóf. Ef það er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar að koma málum í gegn þá gerir hún það. Stjórnarflokkarnir hafa meirihluta á Alþingi og þeim er því í lófa lagið að koma sínum málum í gegnum þingið. Það eina sem þeir þurfa að gera er að koma sínum málum fyrr á dagskrá. Dæmi um þetta er frumvarpið um Ríkisútvarpið sem stjórnar- flokkarnir náðu í gegn í vetur þrátt fyrir mikla andstöðu á þinginu og sjötíu klukkustunda umræður. Orðræða stjórnmálamanna síðustu daga og ekki síst vinnubrögð eru ekki til að auka traust og virðingu almennings fyrir störfum þingsins. Skemmst er að minnast könnunar sem Capacent gerði í síðasta mánuði. Niðurstöðurnar, sem voru birtar í byrjun þessa mánaðar, leiddu í ljós að einungis 29 prósent landsmanna bera traust til Alþingis. Þetta hlut- fall hefur ekki verið lægra síðan Capacent, áður Gallup, hóf að spyrja út í traust fólks á stofnunum hins opinbera árið 1993.1 fyrra sögðust 43 prósent landsmanna bera traust til Alþingis, það er fjórtán prósentum meira en nú. Kannski að þingmenn ættu að leiða hugann að niðurstöðum síðustu könnunar og spyrja sjálfa sig gagnrýnna spurninga. Var til dæmis nauð- synlegt að ljúka þingstörfum átta vikum fyrir kosningar? Hefði ekki verið eðlilegt að halda þeim áfram að minnsta kosti fram að páskum? Þá hefðu flokkarnir samt sem áður haft fimm vikur til að undirbúa sig fyrir átökin 12. maí. Trausti Hafliðason Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík AÖalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Skemmtileg fermingargjöf Remo siagverkshljóðfæri í miklu úrvali eJ^=> HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ 12 blaAió MaLí HVfleB V'iTÍ.EfóH! TAPHí.'TI.FjiG'W NEEní Utt TlAtN.fO ev ó-nePnþur. í Sjálfskaparvíti Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, kvartaði yfir því í sjónvarpsþætti á dögunum að hún kæmi nú orðið ekki í fjölmiðla- viðtal öðruvísi en að vera stöðugt spurð út í slæma útkomu flokks síns í skoðanakönnunum. Ég verð að játa að ég hef vissa samúð með þessum ummælum hennar, enda hefur mér lengi fundist fjölmiðlar alltof uppteknir af skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga en sýna mál- efnum og stefnumálum flokka og frambjóðenda of litla athygli. Ég geri mér auðvitað grein fýrir því að niðurstöður skoðanakannana geta sem slíkar falið í sér áhugaverðar og spennandi fréttir, en það er hins vegar fullmikið af þvi góða þegar flestir umræðuþættir um stjórnmál eru meira og minna farnir að snúast um þessar kannanir og túlkanir á niðurstöðum þeirra. Fjölmiðlamenn verða auðvitað að finna eitthvert með- alhóf í þessum efnum og gæta þess að stjórnmálamennirnir fái tækifæri til að kynna hugmyndir sínar og stefnu- mál fyrir kjósendum. Markið ítrekað sett of hátt Samfylkingin getur hins vegar að hluta tií sjálfri sér um kennt. Flokk- urinn var stofnaður fyrir sjö árum í þeim tilgangi að sameina íslenska jafnaðarmenn og félagshyggjufólk. Markmiðið var að búa til einn stóran flokk vinstra megin við miðju, þar sem sameinuðust þeir íjölmörgu flokkar og flokksbrot, sem þá höfðu lengi borist á banaspjótum á þeim enda hins pólitíska litrófs. Það var yf- irlýst markmið að flokkurinn yrði að minnsta kosti 40% flokkur, raunveru- legt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn og helst stærri. Hástemmdar yfirlýs- ingar af þessu tagi hafa verið endur- teknar hvað eftir annað á stuttum líf- tíma flokksins. Fyrir hverjar einustu kosningar hafa forystumennirnir komið fram og boðað að nú væri tími Samfylkingarinnar kominn - nú loksins yrði stóri jafnaðarmanna- Birgir Ármannsson flokkurinn að veruleika og tæki við sem leiðandi afl í íslenskum stjórn- málum. Oftar en ekki hafa þeir fýr- irfram gefið út tölulega mælikvarða um væntanlegan árangur sinn, sem síðan hefur aldrei staðist. Sama hefur raunar verið uppi á teningnum í innanflokkskosningum eins og for- mannskjörinu fræga vorið 2005. Þá gekk öll kosningabarátta núverandi formanns út á að með kjöri hennar myndu allar vonir og draumar flokks- manna um mikla sigra í framtíðinni rætast. Þannig hefur Samfylkingin sjálf búið til þessar miklu væntingar og með því óvart ýtt undir óánægju og vantraust í garð forystumanna sinna. Samfylkingarmenn hafa sjálfir sett sér markmið af þessu tagi og þurfa því ekki að vera hissa á því að fjöl- miðlamenn spyrji hvað valdi því að þau verði ekki að veruleika. Dýpri tilvistarkreppa En tilvistarvandi Samfylkingar- innar á sér auðvitað dýpri rætur. Ég held að vandinn hafi lengi falist í því að flokkurinn og forysta hans var lengi of upptekinn af því að gera öllum til hæfis, styggja engan og vera öllum allt. Þannig átti greinilega að höfða til allra þeirra hópa, sem stóðu að stofnun flokksins á sínum tíma og gæta þess að missa engan fyrir borð. Úr varð stefna sem stuðaði frekar fáa en höfðaði ekkert sérstak- lega til neins. Á síðustu misserum, þegar Samfylkingin hefur horft upp á gríðarlegan uppgang Vinstrihreyf- ingarinnar - græns framboðs, hafa viðbrögðin verið á þá leið að reyna að sýnast grænni en VG og jafnvel rauð- ari á köflum - en sú hertækni hefur ekki skilað neinum árangri heldur einungis orðið til þess að margir kjós- endur nálægt miðjunni hafa orðið viðskila við flokkinn. Af því ætti Samfylkingin að draga þann lærdóm að það þýði lítið að keppa við Stein- grím J., Ogmund og félaga á þeirra eigin forsendum. Þeir eru prýðilegur valkostur fyrir þá sem vilja leiða harða vinstri stefnu til öndvegis í ís- lenskum stjórnmálum. Hvort sú leið er gæfuleg fyrir land og þjóð er síðan allt önnur saga. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavfk. Klippt & skoríð Forsvarsmenn Nátt- úruverndarsamtaka íslands virðast aðeins hafa farið fram úr sér þegar þeir túlkuðu niðurstöðu Capacentískoð- anakönnun um hvalveiðar á heimasíðu sinni. Þar var ritað fram eftir degi að mikil óánægja væri með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að leyfa hvalveiðar ( atvinnuskyni. Síðar um daginn hafði fyrir- sögninni verið breytt og stóð þá að 40 prósent aðspurðra væru óánægð með ákvörðun sjávar- útvegsráðherra. Má því ætla að einhver hafi fett fingur út í afstöðuna. Klippari spyr, hvað er mikil óánægja og hvað lítil? Samkvæmt töl- unum eru ívið fleiri ánægðir með ákvörðunina, eða 42 prósent. Greiningardeild Glitnis segir frá því að 365 hafi selt stærsta eiganda félagsins, Baugi, 17% hlut í Daybreak (móðurfélag Wyndham Press Group). 365 átti fyrir 36% hlut og selur því tæpan helming af eignarhlut sínum á 1,2 ma.kr. (9,1 m.GBP). Enginn hagnaður verður af sölunni þar sem hluturinn er seldur á bók- færðu virði félagsins. Eins og tilkynnt var í árs- uppgjöri 365 lækkaði bókfært virði Daybreak mikið vegna varúðarniðurfærsluav að upphæð 2,5 ma.kr. 365 fær einungis 250 m.kr. greiddar í reiðufé vegna sölunnar. Pað er ekki víst að venjulegt fólk skilji þessa frétt, enda virðist sami maður vera að selja og kaupa án þess að græða krónuil! Mörður Árnason gerir launa- hækkun Páls Magnússonar, sem fjallað var um í Fréttablaðinu, að umtalsefni á heimasíðu sinni. Þar segir: „Hins vegar hlýtur maður að spyrja: Hvað sparast? Ef yfir- mennirnir ætla allir á forstjóra- og ráðherra- laun eykst launakostnaður við yfirbygging- una langt umfram sparnaðinn við að segja upp þessum þremur-fjórum sem eiga að hverfa á braut eða til annarra starfa (batter- íinu (og þá varla launaðir miklu verr en nú?). Er þetta hagræðingin mikla sem ohf.-ið átti að leiðatil?" gag@bladid.net, elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.