blaðið - 22.03.2007, Side 16
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007
folk@bladid.net
blaöiö
Mun jörðinni blæða út?
HVAÐ
Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur
FITnJNST Ngj nei, hún geriralltaf vel við sjálfa sig. Landgliðnun á
ÞER? Islandi er sönnun þess.“
Jaröskorpa er horfin á vissu svæði á hafsbotni. Fréttir af opnu sári jarðar
á mörg þúsund ferkílómetra svæði á Mið-Atlantshafshryggnum vekur
undrun meðal vísindamanna sem nýta tækifaeriö til einstakra rannsókna.
Ekki er talin hætta á ferð, því um náttúrulegt fyrirbrigði er að ræða en
ekki mannanna verk.
HEYRST HEFUR
BLOGGARINN...
STEFÁN JÓN HAFSTEIN hefur
lítið verið í sviðsljósinu síðan
R-listinn tapaði Reykjavikur-
borg. Nú vill hann færa rekstur
framhaldsskólanna til sveitarfélag-
anna og segir þá „svartan blett“ á
menntakerfinu. Hafa
gárungar gantast
með að sú yfirlýs-
ing jafngildi þeirri
fullyrðingu að
sjúkrahúsin séu
svartur
blettur
á heil-
brigð-
iskerf-
inu
LÝÐNUM er löngu ljós niðurskurð-
urinn sem gengur yfir RÚV þessa
dagana í tilefni ohf.-væðingar
stofnunarinnar. Hagræðing i
rekstri þýðir fækkun starfsmanna
og færri stjórnendur. Umtalsverðar
fjárhæðir hafa sparast við þetta
eins og búist var við. Þó benda
margir á að drjúgur hluti þess fjár
sem sparast við „hagræðinguna“
muni renna beint
i vasa Páls
Magnússonar,
sem fær víst
ríflega launa-
hækkun að
sögn innan-
búðarmanna...
É\
SAMKVÆMT nýrri könnun tíma-
ritsins Vísbendingar er Garðabær
besta sveitarfélag landsins. Seltjarn-
arnes er í öðru sæti og Reykjavík í
15. sæti. Menn hljóta þvi að spyrja
sig hvort orð Gunnars I. Birgis-
sonar um Kópavog séu úrelt en
Kópavogur lenti i
3-4 sæti. Það
er gott að
Tk búa i...
Garðabæ
Lítilmagnans Mjólka
„Alveg erþað merkilegt hvernig
Mjólka fær einu sinni enn áheyrn og
stórar fyrirsagnir fyrir að vera litla
góða fyrirtækiö sem ætlar að bjarga
neytendum. Nú vill Mjólka ekki
frjálsa verðlagningu á mjólkurvörum
sem að sjálfsögðu
yrði til að auka
frelsi í við-
skiptum og
gefa færi
á eðlilegri
sam-
keppni
Stóra vonda MS
Ekki aftur Eurovision
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þeir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur
Kristjánsson ferðast nú kringum
landið og spila fyrir landann. Þrátt
fyrir að vera þekktastir fyrir „þjóð-
sönginn" um Nínu eru þeim mörg
önnur lög til lista lögð og skemmst
er að minnast plötu sem þeir fé-
lagar gáfu út um jólin síðustu.
Nokkrar notalegar ábreiður. Sam-
starf þeirra nær þó lengra aftur en
margan grunar.
„Já, þetta eru um 19 ár, held ég.
Við sungum saman fyrst árið 1988
að mig minnir, í uppfærslu á Jesus
Christ Superstar. Þetta var svona
dinner-show sem haldið var í gamla
Klúbbnum í Borgartúninu sem hét
þá Evrópa. Ég söng hlutverk Jesú og
Stebbi söng Júdas, sem hann gerði
reyndar einnig árið 1995 i uppfærslu
Borgarleikhússins. Síðan sungum
við auðvitað lagið um Nínu og upp
frá því fórum við að syngja saman
tveir með gítar og tókum meðal ann-
ars Simon & Garfunkel-lög, enda
sameiginlegur áhugi á þeirri tón-
list. Á meðan unnum við auðvitað
hvor að sínum ferli, hann með Sál-
inni og ég í mínum sólóferli. Síðan
vatt þetta smátt og smátt upp á sig
og loks gáfum við út þessa fyrstu
plötu okkar um síðustu jól
Þeir Stebbi og Eyfi fagna 20 ára
samstarfsafmæli á næsta ári. Eyj-
ólfur segir þá hafa unnið að nýju
efni undanfarið.
„Já, við höfum verið að setjast
niður undanfarið til að semja. Það
má alveg búast við einhverju efni
frá okkur í náinni framtíð en hve-
nær nákvæmlega það verður skal
„Þetta er nú það skemmti-
legasta við að standa í
þessu tónleikastandi, að
ferðast um landið sitt og fá
hlýjar móttökur á hverjum
stað eins og raunin hefur
orðið. Ifið erum mjög
hrærðir yfir þessu“
ósagt látið. Þetta er bara svipað og
við höfum verið að gera, popptón-
list í sinni hreinustu og einföldustu
mynd.“
Eyjólfur er hreinræktaður Hafn-
firðingur. Þeir hafa þó aldrei haldið
þar tónleika saman en þar verður
breyting á.
„Þetta er alveg undarlegt. Það
verður oft þannig að þegar maður
er að fara í tónleikatúra þá gleymast
oft staðirnir í kringum höfuðborgar-
svæðið. Ég get þó glatt Gaflara með
því að á föstudaginn verðum við
með tónleika í menningarmiðstöð-
inni Hafnarborg klukkan níu. Ann-
ars verðum við á Ólafsfirði í kvöld í
félagsheimilinu við Tjarnarborg og
í Vestmannaeyjum 30. mars. Þetta
er nú það skemmtilegasta við að
standa í þessu tónleikastandi, að
ferðast um landið sitt og fá hlýjar
móttökur á hverjum stað eins og
raunin hefur orðið. Við erum mjög
hrærðir yfir þessu. Reyndar verður
þetta tvískipt hjá okkur, við tökum
núna í vor flesta staði fyrir utan
snjóflóðasvæðin eins og við köllum
þau, en síðan í haust munum við
klára þá staði sem eftir eru, Vest-
firðina og Austfirðina. Ætli það
verði ekki í ágúst-september.“
Eurovisionferill þeirra beggja
er með þeim allra glæsilegustu.
Kitlar ekkert að taka þátt í
keppninni?
„Nei, veistu ég held bara ekki. Ég
held ég tali fyrir hönd okkar beggja
þegar ég segi að þetta sé orðið gott
hjá okkur. Eini möguleikinn er
að liðsinna einhverjum með bak-
röddum og textum en annars held
ég að við séum búnir að leggja
okkar af mörkum. Það er sjálfsagt
að aðrir fái sénsinn bara, ég er al-
veg hættur að senda inn lög í þessa
annars ágætu keppni."
Ég hef um nokkurt skeið keypt vörur
frá Mjólku og hunsað vörur MS
vegna einokunaraðferða MS. Mér
fannst þessi skitlega framkoma MS
gegn Mjólku í sölu mjólkurdufts
þar sem þeir seldu Mjólku duftið á
hærra verði en til annarra kaupenda
algerlega fyrir neðan allt.“
Bjartmar Ingi Sigurðsson
bjartmar.blog.is
Einkavæðing lausnin
,Erekki Mjólkursamsalan úrelt íþeirri
mynd sem hún er rekin í dag, þ.e.
ríkisrekin í samkeppni við einka-
rekstur? Er ekki kominn tími til að
einkavæða á þessum vígstöðvum
þannig að samkeppni skapist á mark-
aði með mjólkurvörur? Það gildir
nákvæmlega það sama þarna eins
og með Símann."
Vilborg G. Hansen
viliagunn.blog.is
Su doku
6 3 9 4 2
7 2 6 8
8 2 5 7 9 4
1 4 2
3 9 1 4
5 6
8 4
5 3 1 6
3 9 6
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar.
6-12
O LaughingSlock Inlemational Inc./dtal. by Uniled Medla, 2004
HERMAN'
eftir Jim Unger
Ég veit ekki hver þetta er. Hann var
hérna þegar ég vaknaði í morgun.