blaðið


blaðið - 22.03.2007, Qupperneq 20

blaðið - 22.03.2007, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 bla6i6 Ismn brotmn 1 HA Á mánudaginn verður opinn fundur um Norðurhafs- siglingar í alþjóðlegu og íslensku Ijósi haldinn í stofu L201 í Háskólanum á Akureyri. Fundurinn stendurfrá klukkan 12 til 14 og er öllum opinn. menning@bladid.net Skartgripir á Garðatorgi Á laugardaginn kl.14:00 verður opnuð sölusýning nemenda listnám.is á Garöatorgi í Garðabæ. Sýningin stendur til 3. apríl og verður opin alla daga frá klukkan 12.00 til 18.00. Sýnendur eru 15 talsins. Prokofiev í rokkbúningi Alræði öreiganna M limir hljómsveitarinna stilla saman strengi si fyrir útgáfutónieika i t leikhúskjallaranum i k Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladld.net í kvöld klukkan 22 hyggst hljóm- sveitin Alræði öreiganna halda tón- leika í Þjóðleikhúskjallaranum í til- efni af útkomu fyrstu plötu sinnar, en um er að ræða hið klassíska verk Pétur og úlfurinn eftir Prokofiev í sérstakri rokk-fusion-útgáfu. Með- limir hljómsveitarinnar eru fjórir talsins og spila á gítar, trommur, bassa og hljómborð. Gítarleikar- inn, Halldór Armand Ásgeirsson, fræddi Blaðið um hljómsveitina og þetta nýstárlega verk hennar. Spurður um tilurð á nafni hljóm- sveitarinnar, segir hann að það sé ekki til komið af pólitískum ástæð- um. „Okkur fannst þetta bara flott nafn og öðruvísi en það er enginn sérstakur boðskapur í því sem slíku,“ segir Halldór og hlær. Hljómsveitin var stofnuð í upphafi síðasta árs þó svo að fjór- menningarnir hafi byrjað að spila saman nokkru fyrr. „Stuttu eftir að við stofnuðum hljómsveitina Alræði öreiganna fengum við þá hugmynd að það gæti ef til vill ver- ið sniðugt að setja verkið Pétur og úlfurinn i nýja rokk-fusion útgáfu og það var okkar fyrsta verk. Það gekk furðuvel að pikka upp laglín- urnar og finna rétta tóninn og við fluttum þetta í fyrsta skipti á Björt- um dögum í Hafnarfirði í fyrra, en þeir eru eins konar menningarnótt þeirra Hafnfirðinga. Þar voru við- tökurnar framar vonum þannig að við ákváðum að næsta skref yrði að gefa þetta út. Og afraksturinn af því verður sem sagt kynntur á föstudaginn," segir Halldór, en þess má geta að meira og minna öll vinna við útgáfu plötunnar var í höndum hljómsveitarmeðlimanna sjálfra. Hann segir að þó svo að lögin séu komin i nýjan búning þekkist þau alveg í áheyrn. „Þau eru öll byggð á þessum frægu stefjum sem við leik- um okkur svolítið með og setjum stundum dálítið öðruvísi taktteg- undir undir. En breytingin hafði að minnsta kosti ekki þau áhrif okkur vitanlega að áheyrendum hefði ofboðið í Hafnarfirði í fyrra. Það er að segja, ef svo er, hefur við- komandi borið þann harm í hljóði.“ Verkið verður flutt í heild sinni í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld og hafa fjórmenningarnir fengið öflugan sögumann til þess að lesa á milli tónlistaratriða. „Svoleiðis er þetta líka á geisladisknum þannig að það er ekki bara tónlistin sem við gerum skil heldur er hægt að fylgjast með öllum söguþræðinum í þessu áhugaverða verki,“ segir gít- arleikarinn Halldór að lokum. Hljémsireitin Akæði öreigaima Garóar Thór á Murrayfield Garðar Thór Cortes tenór mun leggja Russell Watson og Kather- ine Jenkins lið á stórtónleikum í Murrayfield Stadium í Edinborg þann 12. maí næstkomandi. Mikil eftirvænting ríkir fyrir tónleikana meðal tónlistarunnenda og talað er um þá sem stærsta viðburð ársins á sviði klassískrar tónlistar í borginni. Að sögn Dean Lewis, aðstandanda tónleikanna, þykir mikill fengur (því að fá Garðar Thór í söngvaraliðið. Hvað með kjarnorkuver? Á morgun mun hljómsveitin Úlpa standa fyrir vakningarviðburði á Thorsplani í Hafnarfirði varðandi fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík eður ei, undir yfirskrift- inni EN HVAÐ MEÐ KJARNORKU- VER? Úlpa tilheyrir þeim hópi sem er á móti álverinu og með þessu framtaki vill hljómsveitin leggja sitt á vogarskálarnar, ná athygli og vekja Hafnfirðinga og alla landsmenn til vitundar um örlög og framtíð bæjarins og landsins í heild sinni. Fær hún til liðs við sig hina ýmsu listamenn og skörunga úr þjóðfélaginu til að koma fram þetta kvöld og vekja athygli á málstaðnum með skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá. Tónleikar til styrktar Ljósinu Tónleikar til styrktar Ljósinu Diddú verður meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum i Grensáskirkju. Mynd/Jlm Smnrl Tónlistarnám barna Félag tónlistarskólakennara og Félag leikskólakennara í Kennara- sambandi fslands standa fyrir málþingi á Hótel Sögu á morgun, föstudag, sem ber yfirskriftina: „Tónlistarnám barna á aldrinum eins til sex ára - markmið og tækifæri - snertifletir tónlistarskóla og leikskóla.“ Aðalfyrirlesari á málþinginu verður dr. Regina Pauls, háskólapró- fessor frá Þýskalandi. Erindi sitt nefnir hún: „Tónlistaruppeldi og sköpun eða skapandi hugsun sem þáttur í uppeldi og menntun leikskólabarna.“ Einnig fjallar hún um samvinnu tónlistarskóla og leikskóla. Málþingið fer fram í Sunnusal á Hótel Sögu og stendur frá klukkan 9.00 til 16.00. Þrennir tónleikar verða haldnir í lok þessa mánaðar í minningu Margrétar Jónsdóttur sem lést úr krabbameini íyrir rúmu ári, aðeins 24 ára gömul. Ágóðinn mun allur renna til Ljóssins sem er endurhæf- ingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstand- endur þeirra. Margrét hafði glímt við krabba- mein í fimm ár og gengið í gegn- um mikla erfiðleika. Hún hlaut mikinn stuðning frá Ljósinu, félagsskap sem nú er orðinn að samtökum. Ljósið er með heim- ilislegu yfirbragði og fólk kemur þangað að eigin frumkvæði og af frjálsum vilja. Markmið Ljóssins er að bæta lífsgæði á erfiðum tím- um, styrkja tengsl á milli manna, auka traust og aðstoð og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn hefur í för með sér. Boðið er upp á margt uppbyggjandi fyrir líkama og sál, þar á meðal er jóga, líkamsrækt, sjálfstyrktarnám- skeið og handverkshús. Þessi sam- vera fólks sem er að ganga í gegn- um svipaða erfiðleika er ómetanleg því þar geta þau miðlað af reynslu sinni og sótt stuðning hvert til ann- ars. Fyrir nánari upplýsingar um Ljósið og starfsemi þess má fara á www.ljosid.org. Fyrstu tónleikarnir verða haldn- ir í Grensáskirkju 28.mars. Þar koma fram kórarnir Vox Feminae og Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar Páímadóttur, en hún hefur um árabil verið einn fremsti kórstjóri okkar. Einsöngv- arar eru Diddú, Stefán Hilmarsson og Guðbjörg Magnúsdóttir. Guð- björg er efnileg söngkona sem hef- ur greinst með krabbamein og er hún einn rúmlega eitt hundrað fé- laga Ljóssins. Ljóst er að með þessa stórsöngvara og tæplega eitt hundr- að manna kór munu tónleikarnir vekja verðskuldaða athygli. Aðrir tónleikarnir verða haldnir á Nasa 28. mars. Þar koma fram Dr. Spock, Benny Crespo’s Gang, Innvortis og Rass. Tónleikar þess- ara þriggja hljómsveita eru stórvið- burður. Þriðju tónleikarnir verða haldnir 1 Fríkirkjunni í Reykjavík 29.mars. Þar koma fram Múm, Pétur Ben og Ölöf Arnalds. Saman munu þau skapa magnaða upplifun í einstöku andrúmslofti Fríkirkjunnar.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.