blaðið - 22.03.2007, Page 22

blaðið - 22.03.2007, Page 22
blaðið 30 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 Tölvur & tækni Ekki alltaf leikjatölva PlayStation-leikjatölva var upprunalega hönnuð sem geisladrif fyrir Super Nintendo árið 1986. Hins vegar slitnaði upp úr samningaviðræðum milli Sony og Nintendo árið 1989 og Nintendo ákvað að halda sig við leikjahylkin. Sony hannaði þá leikjatölvu með geisladrifi sem kom út árið 1994 í Japan sem síðan varð vinsælasta leikjatölva allra tíma. Kílóbæt BÚLLAN EKKI OPNUÐ STRAX PlaySt- ation-netverslunin, þar sem hægt verður að sækja leiki og leikjaprufur fyrir PlayStation3, verður ekki komin í loftið fyrir Islandsmarkað þegar sala á tölvunum hefst 23. mars. Vonir standa til að búðin verði opnuð innan tveggja til fjög- urra vikna. ENGINN BARNASKAPUR Reuters greindi frá því fyrir skömmu að samkvæmt nýlegri rannsókn eiga 37 prósent fullorðinna Bandaríkjamanna einhvers konar leikja- tölvu. Þess ber að geta að af þessum 37 prósentum voru 71 prósent þeirra gift og 66 prósent áttu börn. Að auki eiga 16 prósent fullorðinna Bandaríkjamanna vasaleikja- tölvu. SVARTUR ER NÝI SVARTUR Microsoft mun setja á markað nýja uppfærða Xbox360, sem verður kölluð Elite. Vélin er nú orðin svört, komin með 120gb harðan disk og HDMI-tengi. Hins vegar verður Elite- vélin aðeins gefin út í takmörkuðu upplagi, gömlu hvítu tölvurnar munu svo erfa uppfærsl- urnar seinna. DJÖFULLINN GRÆTUR EKKI LENGUR Leikjaserían The Devil May Cry hefur lengi verið ein sú vinsælasta á PlayStation. En Capcom-fyrirtækið tilkynnti nýlega að næsti leikur myndi koma út fyrir Xbox360 og seinna fyrir PC. Þetta er óneitanlega stór skellur fyrir Sony, en eigendur Xbox munu þó ábyggilega gleðjast. SJÓNVARP (RIGNINGUNNI Sanyo kynnti á CeBit-sýningunni heimsins fyrsta vatnshelda sjónvarp. Tækið er ekki af verri endanum enda kemur það með öllu því sem flottustu tækin úti í búð hafa. Ekki hefur verið tekið fram hví tækið þarf að vera vatnshelt, en núna er þó hægt að horfa á sjónvarp úti I rign- ingunni. GOÐSAGNAKENND ÚTGÁFA Eigendur Xbox360 bíða allir eftir Halo3 með eftir- væntingu. Bungie-fyrirtækið hefur ákveðið að gefa leikinn út í svokallaðri „Legendary Edition". Innifalið í pakkanum verður leik- urinn, heimildarmynd um gerð leiksins og endurgerð vídeós úr fyrstu tveimur leikjunum. Ekki verður pakk- inn ódýr, hann mun kosta tæpar 10.000 krónur í Banda- ríkjunum. Megabæt Skapari himins, jarðar og Sims? Siðferðispostular vestanhafs þreytast seint á því að bölsótast yfir skaðsemi tölvuleikja og er auðvelt að kenna tölvuleikjum um mikla morð- og glæpatíðni í Bandaríkjunum. Einn ötulasti andstæðingurtölvuleikja þessa dagana er sannkristni lögfræðing- urinn Jack Thompson. Eftir að hafa beint spjótum sínum að rapptónlist um árabil er hann nú kominn í stríð við Take Two-fyrirtækið og reynir allt hvað hann getur að hindra það að tölvuleikir á borð við Manhunt 2 og Grand Theft Auto IV líti dagsins Ijós í Bandaríkjunum. (nýlegu bréfi sem hann sendi til forsvarsmanna í fjölmiðla- og tölvuleikjageiranum lýsir hann því yfir að hann hyggist ganga frá Take Two-fyrirtækinu og endar á því að lofa Guð almátt- ugan, „skapara himins, jarðar og líka tölvuleikja“. Fyrst Guð er kominn í tölvuleikja- bransann er ekki nema von að fólk spyrji sig: Hvaða leik myndi Jesús spila? Kannski SimEarth en lík- lega ekki God of War. Jack Thompson Mistókst að útrýma rappinu og eltist nú við tölvuleiki. EKKERT FLYTIGJALD ! OG SÆKIR HANA AFTUR ESS AÐ GREIÐA SÉRSTAKT FLÝTIGJALD T. VIÐ HÖFUM ÁRALANGA REYNSLU AF 1, UPPFÆRSLUM OG VÍRUSHREINSUNUM OG JM JAFNT EINSTAKLINGA SEM FYRIRTÆKI. www.start.is - 544 2350 Bæjarlinú 1. Kópavogi business partner 11 TOLVUVC-RSLUN niiiniHi'" ir Wii Sports Fylgir með Wii og er ágætis kennsta á stjórntæki tölvunnar. Rýnt í Nintendo Wii: Er nóg að hún sé nýstárleg? Gígabæt Eftir Viggó Ingimar Jónasson viggo@bladid.net Af þeim þremur leikjatölvum sem keppast um hylli neytenda þessa stundina er Nintendo Wii-tölvan í algjörum sérflokki. IÁ meðan PlayStati- on3 og Xbox 360 rembast við að ná að kreista út sem raunverulegasta graf- ík fetar Wii aðrar brautir og treystir á að einföld spil- un, nýstárleg stjórntæki og krúttleg grafík muni skila góðum árangri. Þetta virð- ist vera að heppnast vel hjá Nintendo því núþegar hafa verið seldar um 6 milljónir eintaka afWii. Grafíklega séð er Wii engin bylting; vissulega er framför greinanleg _ frá Gamecube-vélinni en hún kemst þó ekki í hálfkvisti við keppinaut- ana. Fræg eru um- 4 mælin sem voru — höfð eftir ein- um merkum — manniíleikja- iðnaðinum á GDC-sýningunni þegar hann sagði að Wii væri lítið annað Wii en tvær Gamecube-tölvur festar sam- an með límbandi en þau ummæli eiga þó ekki við rök að styðjast. Helsti sölupunktur vélarinnar eru stjórntækin og nýstárleikinn. Wii Remote og Nunchuk-fylgifjarstýr- ingin gera það vissulega að verkum að fram er komin ný leið til að spila leiki. Fjarstýringarnar eru þráð- lausar og skynja hreyfingu í þrívíddarrými og eru mun næmari en til dæmis PS3-fjarstýring. Nin- tendo hefur einnig verið duglegt að kynna væntanlega fylgi- hluti, þar má nefna eftirlíkingu af hinum klassíska Nintendo-stýrip- inna og Wii Zapper sem er byssa sem hægt verður að nota i hinum ýmsu skotleikjum. Enn sem komið er hefur bara einn „framúrskarandi“ leikur litið dags- ins ljós fyrir Wii og það er hinn nýi Zelda-leikur, Twilight Princess. Leik- urinn sá ber þess greinileg merki að hann var upphaflega hannaður fyrir Gamecube og má því segja að besti Wii-leikurinn sé Gamecube-leik- ur. Leikjaúrvalið virðist við fyrstu sýn miða meira á fjölskyldufjör en harðkjarna spilafíkla sem þrá að- eins meiri fullorðinsleiki. Nintendo verður að reyna að koma til móts við eldri spilara, því tölvuleikir eru ekki bara fyrir börn og unglinga, og færa þeim leiki sem hafa meira kjöt á beinunum. Ef Nintendo nær að lokka til sín meiri fullorðinsleiki þá er fyrirtækið í góðum málum þvi tölvan er stórsniðuv. Niðurstaða: [\ Aö lokum stendur sú staöreynd vijj eftir að Wii er í algjörum sérflokki á leikjatölvumarkaönum. Tölvan er nýstárleg, flott í útliti og með sniðug stjórntæki. Eina vafaatriðið er bara, hvað tekur við þegar tölvan er ekki svo nýstárleg lengur? Kappakstur í drullu Nú þegar svo stutt er í að PlayStati- on3 komi á markað í Evrópu skiptir öllu máli að hafa frábæra leiki strax á fyrsta degi. Motorstorm er einn af þeim. Leikurinn er hraður, skítugur og frábærlega skemmtilegur; ef það á að likja honum við eitthvað þá væri það Burnout í drullu. Það er í raun enginn söguþráður til staðar í leiknum, hann spilast eins og hver annar bílaleikur, en brautirnar eru opnari og hægt að velja ótal margar leiðir. Hvort sem það er að keyra upp fjallshlíðina og hætta á að velta eða niður i drullupyttinn. Grafíkin í leiknum er hreint út sagt ótrúleg. Bílarnir þeyta ryki um sig, spóla upp drullu og skilja eftir sig hjólför í sandinum. Þetta er án efa fal- legasti bílaleikurinn á markaðnum í dag. Hljóðið er ekki af lakara taginu og þrátt fyrir að vera ekki fjölbreytt, þá heyrir maður vélarnar vera við það að þenja sig í sundur þegar bíllinn tekur á loft. Nóg er af tónlist í leiknum og má nefna hljómsveitir á borð við Queens of the Stone Age og Slipknot. SPILUN: 90% GRAFÍK: 95% Hl.JÓÐ: 90% ENDING: 85% |EllasR. Ragnarsson elli@blaclid.net =90% Motorstorm Playstation 3 En leikurinn er ekki gallalaus því fjölspilun er aðeins möguleg í gegnum Netið. Það er ekki hægt að grípa í stýripinna með vini sínum og keppa við hann. Þrátt fyrir það er hér toppleikur á ferð og skyldueign fyrir PS3-eig- endur.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.