blaðið - 22.03.2007, Síða 32
40 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007
blaöiö
Pétur og úlfurinn
Hljómsveitin Alræði öreiganna verður með útgáfutónleika annað
kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum og byrja herlegheitin klukkan
22.00. Sveitin flytur hið þekkta verk Pétur og úlfurinn í rokk-fusi
on útgáfu og er aðgangseyrir aðeins 500 krónur.
sjiisík
Það er fátt sem er jafn róandi og að
fletta góðri matreiðslubók eða horfa á
vel gerða matreiðsluþætti. Á amazon.
com er að finna ógrynni af góðum
bókum um matargerð frá öllum heims-
hornum og er um að gera að panta sér
nokkrar og prófa sig áfram.
Tilefnislausum
fimmtudagstónleikum
Lay Low og vinir snúa bökum saman
á Nasa i kvöld og er um að gera að
breyta aðeins til og fara í góðum fé-
| lagsskap á góða tónleika. Ásamt Lay
Low verða þar vinir hennar í Royal
Fortune og VilHelm sem hita upp.
ELSKUM...
Hollan mat. Það er
ótrúlegt en satt að
þegar maður tekur sig
til og borðar hollt þá
líður manni miklu, miklu
betur og það tekur bara
stuttan tíma að bera ár-
angur. Það er líka alger
þvæla að það sem er
hollt sé vont, það er alls
ekki svo, einmitt öfugt.
Kannski er þetta tákn
um að aldurinn sé að
færast yfir Orðlausa.
LANGAR...
Að veltlngahúsin
taki sig til og lækki
verðskrána í sam-
ræmi við skattalækk-
anir. Síðan langar okkur
líka að ríkisstjórnin taki
sig til og lækki skattinn
á léttvíni sem skili sér
svo aftur til veitingahúsa-
gesta. Þá væri loksins
hægt að fara út að
borða án þess að það
kosti skrilljón. Og sjáiði
til, veitingahúsaeigendur,
viðskiptin myndu aukast.
LÍKAR VIÐ...
Fólk sem er óhrætt
við að prófa eftthvað
nýtt. Hvort sem það er
að læra nýtt tungumál
eða bardagalist eða
flytja til nýs lands eða
skipta um vinnu. Þá er
það bara frábært þegar
fólk rífur sig úr viðjum
vanans og gerir eitthvað
nýtt
VITUM EKKI MEÐ...
Risa markaðsher-
ferðir sem sýna zero
hugmyndaauðgi og
zero flott útllt og
eru zero gáfulegar.
Nýjasta herferð kókris-
ans er ein sú hallærisleg-
asta sem sóst hefur, að
minnsta kosti íslenska
útgáfan. Hvað er málið
með að ef höfða eigi til
karlmanna þá þurfi það
að vera Ijótt og heimsku-
legt í svörtum litum og
með stafinn Z sem þykir
greinilega mjög karl-
mannlegur.
BLESS BLESS...
Kynningarmyndband
lcelandalr sem sýnt
er í flugvélum félags-
Ins og Þórunn Lár
lelkur aðalhlutverklð
í. Myndbandið fer yfir
strikið og er hallærislegt
og ekkert er eins óþægi-
legt í upphafi flugferðar
og að láta hella yfir sig
væmnum Island best í
heimi-áróöri sem veldur
þvílíkum aumingjahrolli
að maöur vill helst
hoppa út með eða án
fallhlífar.
ÞOLUM EKKI...
I
Herta fitu. Hún er víst
mjög óholl og líkaminn
þolir hana bara alls ekki.
Hert fita er í mörgum
matvælum eins og kexi
sem er miður því að
kex er gott.
Hallgrímur Ólafsson leikur Snepil,
hressa fjölmiðlamanninn „Gott að
vera á Akureyri og gaman að vinna
með leikstjóra eins og Kjartani, sem
eralgert sení."
Orðlaus mælir með...
Carmina Burana
Flugdrekahlauparanum
FCOD
Eitt af skemmtilegustu tónverkum samtímans,
Carmina Burana eftir Carl Orff, verður flutt af
Óperukórnum i Reykjavík á tvennum tónleikum í
Langholtskirkju sunnudaginn 25. mars klukkan
17.00 og klukkan 20.00. Fyrir þá sem vilja kíkja
á eitthvað annað en rokk eða popp þá lofar
þetta góðu enda magnað verk, öflugur kór og
góðir einsöngvarar.
Félag dúklagninga- og
veggfóörarameistara
Það er alltaf hægt að mæla með
góðum bókum og er þessi alveg
frábær. Saga sem lætur engan
ósnortinn og vekur upp mikinn
áhuga á Mið-Austurlöndum. Eins
er tilvalið að koma á laggirnar
bókaklúbbi með góðu fólki, þar
sem rætt er um góðar bækur og
jafnvel eldaðúr matur sem er
tengdur því umhverfi sem um-
rædd saga gerist i.
LÁTIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóörun
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
Matreiðslubókum
Eg leik hressa fjölmiðlamann-
inn Snepil sem labbar um
ævintýraskóginn og flytur
fréttirnar,“ segir leiklist-
arneminn Hallgrímur
Ólafsson við hressan blaðamann
Orðlauss.
Hallgrímur tekur þátt í upp-
færslu Leikfélags Akureyrar í sam-
vinnu við útskriftarnema leik-
listardeildar Listaháskólans á
nýju verki eftir Þorvald Þor-
steinsson, Lifið - notkun-
arreglur. Verkið verður
frumsýnt á morgun
og er um gleðileik að
ræða, ævintýri fyrir
fullorðna sem eins og
sönnu ævintýri sæmir
hefur mikilvægan boð-
skap fram að færa. Verk-
ið samdi Þorvaldur sér-
staklega með þennan hóp
Uiug^i^inUeiklistanremai^^
Megas og Magga Stina sja um
tónlistina Tónlistin í verkinu ermjög
falleg og gefur verkinu meiri vídd.
taka þátt í uppfærslunni auk fjögurra
leikara frá L.A. „Ég held að allir viti
' innst inni hverjar notkunarreglur
lífsins eru en við gleymum þeim
_ bara í öllum hraðanum með-
. ^ an á lífinu stendur,“ segir
Hallgrímur þegar hann
er spurður nánar um
þessar notkunar-
reglur sem leikrit-
ið fjallar um.
Tónlistina í
verkinu sem- fm iÆ^
enginn &K ,';*v<
annar en Megas og Magga Stína er tónlistarstjóri
og smíðaði hljóðheim fyrir verkið. „Tónlistin
hans Megasar er mjög falleg og gefur verkinu enn
meiri vídd,“ segir Hallgrímur sem tekur tvö sóló
í leikritinu.
Það er síðan Kjartan Ragnarsson
sem leikstýrir verkinu og Hallgrím-
ur segir að það hafi verið mikil for-
réttindi að fá að starfa með hon-
um, enda algert séní þar á ferð.
„Það er búið að vera fínt að vera
hér fyrir norðan og Leikfélagið
stendur í miklum blóma. Stemn-
ingin á æfingum hefur verið góð
og notalegt að hanga hérna öll sam-
an á hótelherbergi, bekkurinn," segir
Hallgrímur og bætir við að líka verði
notalegt að útskrifast og feta
brautina á eigin vegum. Lífið
notkunarreglur er síðasta
verkefnið sem leiklistar-
nemarnir leika á vegum
skólans og sýningar standa
fram í maí.