blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 2
blaóið 2 FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2007’:' New York Orlando Osló Palma París Stokkhólmur Þórshöfn M Glasgow 17 Hamborg .15 Helsinki 19 Kaupmannahöfn 6 London u Madrid 24 Montreal verð eða mikil 5 til 12 stig. : VERRIÐ í DAG vætusamt Vaxandi SA-átt með ÁMORGUN Slydduél Suðvestan 10-15 m/sog skúrir eða slydduél, en bjart- viðri norðaustanvert. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast sunnan- og austanlands. VIÐA UM HEIM Algarve Amsterdam Barcelona Berlin Chicago Dublin Frankfurt Á FÖRNUM VEGI Ertu búinn að setja sumardekk undir bílinn? Ólafur Kristjánsson: Nei, ég geri það örugglega fljótlega. Jóhann Pálsson: Nei. Gottskálk Jósepsson: Nei, ekki strax. Gylfi Gunnarsson: Nei, en það stendur til fljótlega. AndstaðaSWði el 60% kaupmáttaraukning á skattalækkanir Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „Síðustu sextán ár undir nær sam- felldri stjórnarforystu okkar sjálf- stæðismanna hafa verið þjóðinni farsæl. Við höfum náð að styrkja efnahagslegastöðuþjóðarinnarmeð þeim hætti að aðdáun hefur vakið víða um heim. Þau viðfangsefni sem við glímum nú við í efnahags- stjórninni hér á landi þættu flestum öðrum ríkjum öfundsverð,“ sagði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæð- isflokksins, í setningarræðu lands- fundar flokksins í Laugardalshöll í gær. Þá sagði hann kaupmátt ráð- stöfunartekna heimilanna hafa auk- ist um 6o% frá árinu 1995 og á sama tíma hafi skuldir ríkissjóðs verið greiddar niður þannig að hann megi heita skuldlaus. Geir telur aðgerðir til að auka frelsi hafa skilað góðum árangri. Hann hrósaði einnig ríkis- stjórninni fyrir að stuðla að fram- förum í skólakerfinu, ekki síst á háskólastiginu þar sem hann sagði vel búið að vísinda-, rannsókna- og nýsköpunarstarfsemi og benti á að fjöldi háskólanema hafi meira en tvöfaldast á tíu árum. Og hann telur tækifæri til að gera enn meira fyrir stúdenta. „Ég tel að svigrúm hafi skapast til að draga enn frekar úr skerðingu námslána vegna eigin tekjuöflunar námsmanna. Hafa þó risaskref verið tekin í því efni á undan- förnum árum.“ Forsætisráðherra vandaði stjórnarand- stöðunni ekki kveðjurnar. Hann sagði vinstri menn í stjórnarandstöðu ávallt hafa gagnrýnt aðgerðir sjálfstæðismanna til að auka viðskiptafrelsi og lækka skatta, og benti á að Steingrímur J. Sigfús- son, formaður VG, hefði í umræðu á Alþingi í október 2004, þegar frum- varp um stórfelldar skatalækkanir var til umfjöllunar, sagt það mikinn misskilning að telja að hægt væri að bæði lækka skatta og afla velfarð. Annað segir Geir hafa komið á dag- inn. Skattalækkanir sem Sjálfstæð- isflokkurinn lofaði á landsfundi 2003 séu að fullu komnar til fram- kvæmda, en engu að síður nægðu tekjur ríkissjóðs til að halda uppi öflugu velferðar- og samneyslustigi. Formaðurinn telur lítið vit í gagn- rýni stjórnarandstöðunnar á hag- stjórn ríkisstjónarinnar. Vissulega hafi verið þensla í íslensku hagkerfi og verðbólga undan- farin misseri. En það segði þó aðeins hálfa söguna. „Það sem mestu máli skiptir, og stjórnar- andstaðan kýs vitanlega að nefna ekki, er að kostnaður vegna verðbólgu og vaxta er auðvitað tekinn með í reikning- inn þegar kaupmáttur ráðstöf- unartekna er reiknaður, og það er algjörlega óumdeilt að ráðstöf- unartekjur heimilanna hafa aukist meira en dæmi eru um.“ Geir spurði hvort virkilega sé hægt að kalla 60 prósenta kaupmáttaraukningu almennings frá árinu 1995, fulla at- vinnu og 4,5 prósenta hagvöxt á ári hagstjórnarmistök. Og hann svar- aði: „Nei, góðir fundarmenn. Stóru hagstjórnarmistökin yrðu þau, að Vinstri grænir og Samfylking tækju hér við stjórn efnahagsmála." Vopnafjörður: Sjómaður fannst látinn Trillusjómaðurinn frá Vopna- firði sem leitað hafði verið að frá því í fyrrakvöld fannst látinn á tólfta tímanum í gærmorgun um sex og hálfa sjómílu norðan við þann stað sem talið er að hann hafi fallið útbyrðis. Bátur manns- ins fannst mannlaus uppi í fjöru við norðanverðan Kollamúla í fyrrakvöld. Ekkert neyðarkall hafði borist frá bátnum og reglulegar sendingar bárust frá honum í sjálfvirku tilkynninga- skyldunni. Leit hófst eftir að skipstjóraf á svæðinu fóru að spyrjast fyrir um hann. Um 100 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni sem fór fram bæði á sjó og landi. Þyrla, flugvél og varð- skip Landhelgisgæslunnar voru einnig við leit ®k íleiri skipa. íslandshr#fingin: Listarénn í móðu íslandshreyfingin hefur enn ekki kynnt framboðslista sína en nú mun stefnt að kynningu á mánudag. Fátt bendir nú til þess að Jón Bald- vin Hannibalsson gefi kost á sér á lista flokksins en hann hafði verið orðaður við 2. sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Annar Hannibalsson, Ólafur mun þó að lík- indum taka 2,jætið í öðru tveggja Reykj avf kurkjgrdæma. Kurr er í fylgjendum íslkidshreyfingarinnar samkvæmt heimildum Blaðsins vegna hringlandaháttar og tilefn- islausra tafa á skipan á listana, svo vitnað sé í orðalag sendinga til for- svarsmanna íslandshreyfingarinnar. r TTrrrrruxrj^m Lausn hjúkrunarvandans mikil vægasta verkefnið Grunnur aö nýju hjúkrunarheimili ÍMörkinni Hva... af hverju eru þeir alltaf að senda mér sama reikninginn? ■ Drög að ályktunum fyrir landsfund Samfylkingar: Málefni eldri borgara í forgang Mikilvægasta verkefni næstu ríkisstjórnar verður að leysa hjúkrunarvandann þannig að allir eldri borgarar sem þurfa geti fengið inni á hjúkrunarheimili. Þetta kemur fram í drögum að ályktunum sem lagðar verða fyrir landsfund Samfylkingarinnar sem hefst í dag. Samfylkingin hyggst setja mál- efní eldri borgara í forgang og er meðal annars lagt til að skattar á Hfeyrissjóðsgreiðslum verði lækkaðir úr 35,72 prósentum í 10 prósent og að frítekjumark vegna aldraðra verði hækkað í 100 þús- und krónur. Samfylkingin vill ráðast í stórátak í samgöngumálum og meðal annars endurvekja strand- siglingar. Afnám launaleyndar, lækkun virðisaukaskatts á lyfjum, mótun utanríkisstefnu í ljósi þjóð- arhagsmuna og aðhald í rekstri ut- anríkisþjónustu auknar er meðal sem er að finna í drögunum iiiigiii vill jafnframt auka lagaheimildir iðn»Aristáðstaia - brotamönnum svo sem þeim sem revna að lokka til sín börn með að- uéu luyium.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.