blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 28

blaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2007 Grænn, vænn og töff Nýjasti hugmyndabíllinn trá Hyundai, QarmaQ, er byggöur úr sérþróuðum og ■unnum plastefnum sem leysa af hólmi hefðbundin efni eins og stál, ál og gler. Bíllinn verður fyrir vikið umhverfisvænni og öruggari. Ekki skemmir fyrir að hann er hrikalega flottur. • 2 litra disilvél bílsíns uppfyllir Euro 5 staöal • Framendi bílsins er úr teygjanlegu plasti sem minnkar áverka þeirra sem verða fyrir bílnum • QarmaQ er að mestu leyti endurvinnanlegur Gumball boðið til Albaníu Öfugt við flest önnur lönd hefur Albanía gert Gumball 3000 rallinu sérlegt heimboð. Það voru Sameinuðu þjóðirnar sem höfðu milligöngu um boðið til að vekja athygli á landinu og styrkja stöðu þess innan Evrópu. Víða annars staðar vilja menn frekar losna við heimsóknir keppenda. • Rallið í ár er það níunda í röðinni • Keyrt verður frá London til Istanbul og aftur til baka • Kepp- endur eru ríka og fræga fólkið og tilgangurinn er fyrst og fremst að skemmta sér • Þátttökugjaldið er um 1,3 milljónir króna • Rallið heitir í höfuðið á kappakstri frá 1970 • Þá var tyggjókúluvél I verð- laun • f fyrra voru (slendingar meðal keppenda. Á því herrans ári 1976 hófst fram- leiðsla Golf GTI sportbílsins. Nú er komin út sérstök afmælisútgáfa, Ed- ition 30, sem er betur búin og kraft- meiri en grunngerðin. Því hvað gefur maður sportbíl í þrítugsafmælisgjöf annað en þrjátíu hestöfl í viðbót? Við jafnaldrarnir fórum út að keyra og langaði hvorugan heim aftur. Að utan Við fyrstu sýn er bíllinn bara venju- legur Golf, það sem unglingsstelpur myndu kannski kalla „lítill og sæt- ur“. GTI týpan er þó til dæmis með stærra grill, umlukið rauðri línu, og Edition 30 útgáfan bætir um betur með 18” felgum í stað 17”, samlitu vindskeiðasetti og topplúgu, svo eitt- hvað sé nefnt. Ennþá svolítið sætur, en líka töff. Að innan Afmælisútgáfan skartar sportsæt- um sem ldædd eru blöndu af leðri og sígildu GTI áklæði. Sætin eru ágætlega þægileg og halda vel við í beygjum. Farþegar sem eru yfir 70 kg kvörtuðu þó yfir að þau væru of mjó. Annars er innréttingin þokkaleg. Ég kunni mjög vel við stýrishjólið og skíðagatið í aftursætinu, en ekki eins vel við handvirka miðstöð (fyrir fjór- ar milljónir?) og skort á geymsluhólf- um. iPod tengi milli framsætanna er samt alltaf kostur. Golf hefur stækkað töluvert á síð- ustu árum og rúmar nú fjóra mjög vel og fimm sæmilega. Samt er viðun- andi farangursrými í honum. Akstur Það er eiginlega bara hægt að lýsa þessu á einn veg: 230 hestöfl + 300 Nm + tveggja kúplinga, sex þrepa DSG sjálfskipting með flipastýringu = óendanlega mikið fjör. Bíllinn er eldsnöggur á snúning, svarar mjög vel og skipting er, af því að mig skortir betri orð, algjör snilld. Tvær kúplingar gera það að verkum að næsti gír er alltaf tiltækur og að- eins tekur brot úr sekúndu að skipta. Fjöðrunin hæfir bílnum, mátulega stíf sportfjöðrun, og hann liggur mjög vel á vegi. Helst að stýrið mætti þyngjast meira á þjóðvegahraða. Einn stærsti kosturinn við bílinn er að þrátt fyrir að afl og hröðun sé eins mikið og raun ber vitni er hann það auðveldur í akstri að maður verð- ur aldrei hræddur við aflið. Það þýð- ir auðvitað að skynsemin verður að vera með í för svo ekki fari illa. Ég stóð mig aftur og aftur að því að bremsa bílinn niður, bara til að finna hröðunina upp í, hemm, 90 aftur en þess á milli er hann fínn á rúntinn, norður í land eða bara út í búð. Búnaður og öryggi Fyrir utan sex árekstrarpúða, stöð- ugleikakerfi og ABS-bremsur er bíll- inn hannaður með styrktarbitum í Verö í hærra lagi, hand Stýrð miöstöð, sport- E|„ar El, Magnússon Sætl prong yfir buk einareli@bladid.net Reynsluakstur ★★★★★ • 2,0 lítra, 4 strokka FSI vél meðforþjöppu • 230 hestöfl • 300 Nm • 6 þrepa DSG sjálfskipting með flipastýringu • 6,6 sek. í hundrað • Eyðsla í blönd- uðum akstri: 7,91/100 km • 6 árekstrarpúðar • ESP, ABS, TCS, EDL • Verð: 4.090.000 • Umboð: Hekla hurðum, aflögunarsvæði að framan og affan, forstrekkjara á öryggisbelti og ISOFIX barnastólafestingar. Hljómtækin eru þokkaleg, tengd við tíu hátalara, og loftkæling, akst- urstölva og skriðstillir gera aksturinn þægilegri og áhyggjulausari. Niðurstaða Golf GTI Edition 30 er alveg emj- andi skemmtilegur bíll. Tryllitæki með sakleysislegt yfirbragð, svolítið eins og litla, sæta stelpan sem lamdi þig í klessu í tíu ára bekk. Það er hins vegar spurning hvort 4.090.000 krónur séu mikið eða lítið fyrir bíl sem þennan. Þú getur fengið stærri, kraftmeiri bíl með vel bjóðan- lega aksturseiginleika fyrir minna. Það sem skiptir samt líka máli er að í þessu tilfelli gengur jafnan upp. Bíllinn passar sem sagt mjög vel við sjálfan sig, svo við notum nú torskilj- anleg hugtök. Og hver vill ekki eiga 30 ára afmælisútgáfu af jafn skemmtileg- um bíl og þessum? Ég var að minnsta kosti ekki ánægð- ur með að þurfa að skila honum eftir reynsluaksturinn. tll kbrni' imíði FfJALLABÍI Stál og stansar ehf. Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Simi; 51,7 5000. í Elliðaárdalnum rís nú 1050 fermetra húsnæði á vegum Forn- bílaklúbbs íslands. „Við erum að byggja félagsheimili og fornbíla- safn,“ segir Sævar Pétursson, formaður klúbbsins. Húsið hefur verið mörg ár í undir- búningi og það hefur gengið erfið- lega að fá lóð fyrir það. Við áttum að fá lóð við Húsdýragarðinn eftir að við seldum félagsheimilið f Veg- múla, en það gekk ekki og endaði á því að við fengum lóð við hliðina á Orkuveitunni í Elliðaárdalnum og erum bara mjög sátt við þessa staðsetningu.“ Fyrsta skóflustungan að húsinu var Endanlegt útlit Svona mun húsnæö- ið lita út þegar það er fullklárað. tekin í desember 2005. Það verður fullgert á næsta ári ef allt gengut eftir. „Annars verður klúbburinn þrjátíu ára núna í maí og þá verða ýmsar Uþpákomur, meðal annars sýning í nýju húsnæði hjá Ræsi,“ segir Sævar að lokum. Til heiðurs Earl? Orðrómur er á kreiki um að innan GM sé áhugi á að reisa El Camino, blendinginn af bíl og pallbíl sem sést til dæmis í þáttunum My name is Earl, frá dauðum. Meðfylgjandi teikning sýnir líklegt útlit bílsins sem yrði að öllum líkindum fram- leiddur í Ástraliu._ • Með hækkuðu eldsneytisveröi eru litlir pallbilar fýsilegur kostur fyrir fjölda fóiks • Nýr El Camino gæti verið byggður á sömu grunnplötu og Holden Zeta • Zeta fæst með V6 og V8 vélum • Su kraft- mesta er 350 hestöfl Bílasýning í stóra ephnu Á sunnudag lýkur hinni árlegu bílasýn- ingu í New York sem að þessu sinni hefur staðið frá 6. apríl. Hér að neðan er lítið sýnishorn þeirra þíla og hugmyndabila sem til sýnis voru, en hægt er að jgg; skoða meira á autoshowny.com A hraðferð: Eftir brottför hersins hefur verið sam- þykkt að nota hluta af aðstöðu hans undir akstursíþróttir. (sumar verður því driftað óspart á Miðnesheiði, auk þess sem mótorhjólamenn og aðrir fá eitthvað fyrir sinn snúð. Fjallaförum er bent á að stór hluti hálendisvega er lokaður um þessar mundir vegna aurbleytu. Ólöglegt er að ferðast um lokaða vegi, ólíkt þeim sem aðeins eru flokkaðir ófærir. Sæti Nafn Lið Stig (síðast) 1 Fernando Alonso McLaren 18 (10) 2 Kimi Raikkönen Ferrari 16 (6) 3 Lewis Hamilton McLaren 14 (8) 4 Nick Heidfeld BMW 10 (5) ' <3>

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.