blaðið - 25.04.2007, Side 1

blaðið - 25.04.2007, Side 1
Þeysa um Bandaríkin Bk Vinirnir Ólafur Tryggvason og Valur Rafn taka þátt f kapp- akstri þvert yfir Bandaríkin í H? sumar er nefnist The Great American Run en þeir aka 600 ■■ hestafla Mustang. Alltaf að sofa Hlaut verðlaun Brynhildur Þórarinsdóttir hlaut Nor- rænu barnabókaverðlaunin fyrir ^ bækurnar Njálu, Eglu og Lax- Sk dælu en þar gerir hún íslend- ■ ingasögur aðgengilegar ■ fyrir börn og unglinga. Nylon-söngkonan Klara Ósk Elíasdóttir segir . að leyndardómur- m inn á bak við gott útlit sé að sofa w vel og borða vel. ORÐLAUS » 76. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 25. apríl 2007 FRJALST, OHAÐ & OKÍ KJÓSUM MED ÍSLANDSHREYFINGIN Ufíuuii LuuL 170 bíða fyrstu komu á barna- og unglingageðdeildina: Biðlistinn tvöfaldaðist á tveimur mánuðum ■ Horfur á enn lengri lista ■ Aukinn flótti fagfólks ■ Álag og lág laun Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net í febrúarbyrjun biðu rúmlega 8o börn eftir fyrstu komu á göngudeild barna- og unglingageðdeild- arinnar, BUGL, við Dalbraut. I dag bíða 170 börn eftir fyrstu komu á göngudeildina. Biðlistinn hefur tvöfaldast á rúmum tveimur mánuðum og við blasir að hann lengist. Meðalbiðtíminn er nær 18 mánuðir. „Ég sé ekkert framundan sem mun koma í veg fyrir að biðlistinn lengist," segir Ólafur Ó. Guð- mundsson, yfirlæknir á BUGL. Hann segir ekkert benda til að börnum með geðraskanir hafi farið fjölgandi, heldur hafi stjórnendur göngudeildar- teymis ekki treyst sér til að taka við nýjum málum þar sem ekki séu fyrir hendi nógu margir starfs- menn til að sinna þeim. í febrúarlok tók Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra fyrstu skóflustungu að byggingu nýs hús- næðis fyrir göngudeild BUGL. Fyrirhugað er að hús- næðið verði fullbúið í maí á næsta ári en með því fjölgar viðtals- og meðferðarherbergjum. „Barna- og unglingageðdeildin veitir faglega þjón- ustu og meðferðartækin eru fagfólkið. Aðstaðan var ófullnægjandi en nýtt húsnæði eitt og sér breytir ekki möguleikum okkar til meðferðar þegar með- ferðartækin vantar,“ bendir Ólafur á. Fagfólk hefur flúið BUGL og meiri horfur eru á að því fækki enn frekar en að því fjölgi, að því er Ólafur greinir frá. Stöður lækna, sálfræðinga, iðju- þjálfa og félagsráðgjafa eru lausar. „Launin eru lakari hér en þau laun sem bjóðast annars staðar. Starfinu hér fylgir jafnframt töluvert álag því að við erum með alvarlegustu tilfellin. Það er erfitt að manna stöðurnar þegar aðstæður eru svona. Ef það tekst er um að ræða ágætisfólk en það er nýút- skrifað og vantar reynslu." Ólafur kveðst vita ósköp lítið um laun þegar hann er spurður hvort hækkun launa geti lokkað reynt starfsfólk til BUGL. „Kannski þarf bara að ákveða hvort draga eigi starfsemina hér saman og láta ein- hverja aðra stofnun sinna starfseminni." Nú þegar hefur starfsemi á legudeildum BUGL verið dregin saman. „Þegar kerfið er of þanið má það ekki við þessu,“ segir yfirlæknirinn. Slæmar fréttir fyrir Superman Bláklædda ofurhetjan meö rauöu skikkjuna má nú heldur betur fara aö vara sig ef grunur vísindamanna reyn- ist réttur. Vísindamennirnir fundu á dögunum dularfullt efni sem þeir könnuöust ekki viö. Reyndist efnið vera kryptonít sem í myndasögunum er eina efnið sem vinnur gegn ofur- kröftum Superman. Vísindamaður sem rannsakaði efnið var mjög hissa er hann frétti aö formúla kryptoníts- ins væri sú sama og lýst er í nýjustu myndinni um ofurhetjuna, Superman Returns. Þar er blandan rist í stein sem Lex Luther, erkióvinur Super- man, stelur af safni. Útlit efnisins er þó ekki alveg eins og lýst er í ævintýr- unum. Því miður er þaö ekki grænt og þaö glóir ekki heldur. Þaö er hvítt en aö öllu öðru leyti samræmist þaö steininum sem inniheldur kryptonít. Níðingar á Netinu Barnahús hefur á síðustu 15 mánuðum rannsakaö 21 mál þar sem börn hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eöa áreitni vegna netnotkunar. I fæstum tilvikum eru málin kærö til lögreglu og níöingarnir nást sjaldnast. FRÉTTIR » 2 Kosið á Klörubar Islendingar kjósa nú utankjörfundar á Klörubar á Ensku ströndinni á Kanarí- eyjum. Klara á Klörubar er kjörstjóri. Hún lokar brátt barnum í síðasta sinn en hann er nú til sölu. FRÉTTIR » 6 Loks lífleg barátta Fjöldi manns lagði leið sína á kapþræðufund þeirra Bjarna Harðarsonar, annars manns á framboðslista Framsóknarflokks, og Árna Johnsen, annars manns á lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi. Hugmyndina að fundi þeirra í Litlu kaffistofunni átti Árni John- sen og þótti fundurinn hinn líflegasti og hvass á köflum. Bjarni hefur enda verið ófeiminn við að gagnrýna sjálfstæðismenn þótt flokkarnir séu í sömu sæng til 12. maí að minnsta kosti. NEYTENDAVAKTIN Verð á síma - Nokia 5140i Verslun: BT Elko Hátækni Vodafone Símabær Síminn Verð: 14.999 11.900 15.495 14.900 12.995 16.900 Verð í krónum í völdum verslunum Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA wm USD SALA 64,61 % -0,31 ▼ ÍSSIS GBP 128,72 -0,30 ▼ mwm uwm DKK 11,75 0,01 A • JPY 0,54 -0,30 ▼ — EUR 87,52 0,0 ♦ GENGISVÍSITALA 119,04 -0,13 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 7.804,43 -0,40 ▼ Samfylkingin / Okeypis tannvernd fyrir börnin Ágúst Ólafur Ágústsson, 2. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður Katrín Júlíusdóttir, 2. sæti í suðvesturkjördæmi

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.