blaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2007 blaðið HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Fjögur innbrot í fyrrinótt INNLENT Brotist var inn á þrjú heimili í austurborginni og eitt í Breiðholti í fyrrinótt. (Breiðholti var lyfjum stolið, en í austurborginni hvarf á einum stað sparibaukur, ferðatölva og myndavél á öðrum en heimilistæki og fatnaður á þriðja heimilinu. PENINGAFÖLSUN Afgreiðslufólk verði á varðbergi Nokkrar tilraunir til að falsa seðla hafa verið tilkynntar til lögreglu að undanförnu, og hvetur hún afgreiðslufólk til að vera á varðbergi gagnvart fölsuðum peningaseðlum í umferð. Segir lögreglan að huga verði að gæðum pappírs- ins, vatnsmerki í seðlinum og segulrönd hans. ÞJÓÐHAGSSPÁ Atvinnuleysi eykst og verðbólga hjaðnar Atvinnuleysi mun aukast á árinu í kjölfar kólnunar í efnahagslífinu og verður 1,8 prósent að meðaltali. Jákvæðar afleiðingar kólnunarinnar eru þær að verðbólga verður aðeins 3,6 prósent að meðaltali á árinu, sem er rúmum þremur prósentustigum lægra en í fyrra. Þetta kemur fram i þjóðhagsspá sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér i gær. Mengun í göngum Breytt- ar eðHsfræði- legar aðstæður valda þvi að mengun fer yfir viðmiðun- armörk ígöng- unum. Kárahnjúkavirkjun: Göngum lokað sökum mengunar Vinnueftirlit ríkisins stöðvaði ( dag framkvæmdir í aðrennslis- göngum Kárahnjúkavirkjunar sökum mengunar, en mengun hefur farið yfir viðmiðunarmörk á nokkrum svæðum ganganna. Eftir að borun ganganna lauk kom í ljós að breyttar eðlisfræðilegar að- stæður valda því að mengun getur farið yfir viðmiðunarmörkin á afmörkuðum stöðum. Loftþrýst- ingur fyrir utan göngin og hiti inni í þeim veldur ástandinu að hluta, en einnig aukin umferð og vinna við frágang. í yfirlýsingu frá Impregilo segir að vandamálið sé nýtilkomið, að þegar hafi verið gripið til aðgerða til þess að draga úr loftmengun í göngunum og að þar séu loftgæði mæld með reglu- legu millibili. Þar segir einnig að göngin séu án tafar tæmd þegar mengun mælist yfir mörkum og að verið sé að skoða hvernig best sé að koma fleiri viftum fyrir í göngunum til að hreinsa loftið. Reykjanesbær Mikil þensla er í Reykjanesbæ og eftir- spurn eftir vinnandi fólki. ÍSLAM) HEF=UR BREYST A UMWFQRNLM AHLM ÍEHM AF RÍKUSTU ÞJÖEXJM HEMS. HEMJR ETTURLYFJA KEFUR UMIURNAST OG LfEJALLAMR FJQLMELA BREVST. LJTLAÍSLAMJ ER A BREYHNSASKEYEH. IsLEMHNGAR ER N?R BÖKAFMDKKLR ÞAR SEM FJÖLMffiLAHEMJR, VffiSKTPTAKEMJR OG UMHRHEMAR f SLANDS METAST f SKOWTLBGLM BÖKUM ÞAR SEM EKKBRT ER DRBGE) UMIAN. ÍSLBCBNSAR FAST f ÖLLLM BÓKABÖÐLM GERSTU ÁSKRII ANDI AF í SLEM3INGLM í SÍ MA 557 -3100 EÐA SENDU PÓST Á BAEKLF@3AfcKLR. IS OOO jur U T Q A F Bjartsýni á Suðurnesjum: Gengið vel að fylla í skarð varnarliðsins ■ Rúmlega 700 sagt upp ■ 50 enn án vinnu ■ Álver skapar 400 ný störf Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Þegar varnarliðið tilkynnti að það væri á förum voru menn allt annað en bjartsýnir varðandi atvinnumál í Reykjanesi. Við blasti að rúmlega 700 manns myndu missa vinnu; 6oo hjá varnarliðinu og um 150 í þjónustustörfum tengdum veru hersins. Verkalýðshreyfingin setti upp viðbragðsáætlun í samvinnu við bæjaryfirvöld. Uppsagnafrestur- inn var nýttur til atvinnuuppbygg- ingar, sjálfstyrkingar og þjónustu við fyrrum starfsmenn, og í dag eru aðeins um 50 af þeim rúmlega 700 sem misstu vinnuna án atvinnu. „Vel hefur tekist að finna störf og fólk hefur verið ótrúlega dug- legt að finna sér störf líka. Mestu munaði um að Flugmálastjórn réð fjölda starfsmanna aftur til vinnu við Keflavíkurflugvöll, samtals um 160 manns,“ segir Kristján G. Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. „Mikil þensla er á svæðinu og skortur á vinnuafli. í flugstöðina vantar tugi manna i vinnu, í öryggisgæslu og löggæslu og eins í almenn þjónustustörf. Þá hefur lengi vantað iðaðarmenn og sérþjálfaða byggingaverkamenn, þannig að það hefur verið flutt inn töluvert af vinnuafli." Álver til bóta Kristján segir Suðurnesjamenn mjög bjartsýna varðandi fram- haldið. „Þau tíðindi hafa verið að berast þessa dagana að álver í Helguvík kunni að vera á næsta leiti. Það er mjög góð innspýting fyrir atvinnulífið hér til framtíðar. Þótt þensla hafi verið á svæðinu er atvinnulífið viðkvæmt og lítið má út af bera. Við fögnum því öllum skrefum sem verða tekin í tengslum við tilkomu nýs álvers." Kristján segist gera ráð fyrir að ekki færri en 350 til 400 störf skapist til framtíðar með tilkomu álversins. Meðan bygging þess á sér stað muni myndast sprenging í eftirspurn eftir vinnuafli sem Flöggum bráðum í fulla stöng í gleði okkar yfir álversmálum Kristján G. Gunnarsson, Verkalýðsforingi í Keflavík. heimamenn muni ekki ráða við, og líklega verði brugðið á það ráð að flytja inn erlent vinnuafl. En til lengri tíma litið telur hann að ál- verið verði mannað með innlendu vinnuafli. Upphaflega voru Reykjanesbúar þó ekki sáttir við staðsetningu fyrirhugaðs álvers. „Okkur óaði aðeins við fyrstu staðsetningu á ál- verinu. Upphaflega átti að staðsetja það þannig að við héldum að við fengjum aldrei norðanátt aftur. Nú hafa menn skoðað staðsetningarnar mjög vel og komin er staðsetning sem okkur hugnast mun betur og gerir þetta ástættanlegra í alla staði. Við flöggum eflaust bráðum í fulla stöng í gleði okkar yfir álversmál- unum,“ segir Kristján. ,^Í20+a: 4.440 IGU 01 I. vinningur cu milljonir Ef Ofurtala vikunnar er ein af útdráttartölunum sex bætist Ofurtölupottur viö fyrsta vinninginn. V I K I N G A LOTT0 Alltáf á mi&vikudöBum! lotto.ls Auglýsingasíminn er 510 3744 lýlFTI

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.