blaðið - 25.04.2007, Page 18
3 0 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2007
blaöiö
íþróttir
ithrottir@bladid.net
ÞÚSUND KRÓNUR á ári eru sú meðalupphæð
sem stuðningsmenn félaga í neðri deildum í
Englandi eyða að jafnaði vegna áhuga síns.
1 Ferðalög, kaup á treflum og treyjum og miðar
á leiki eru inni í þessari tölu.
PRÓSENT kvenna yfir sjötugu stunda íþróttir
að einhverju marki sértil heilsubótar sam-
kvæmt nýlegri úttekt hérlendis. Er mikill
munur á þeim og körlum á sama aldri en 11
prósent karlanna iðka íþrótt reglulega.
Skeytm 1
Landsliðsmaðurinn
Michael Essien
hjá Chelsea
varhandtekinní
vikunni
en hann
reyndist
hafa fengið
sér nokkra gráa og ætlað
sér að aka heim á leið.
Var hann stöðvaður
rúmlega íimm um
morguninn af lögreglu
en látinn laus gegn tryggingu. Ekki
aðeins er kappinn döpur fyrirmynd
heldur er með endemum að ein
helsta stjarna Chelsea sé að drekka
langt fram á morgun í sömu
viku og lið hans keppir í undan-
úrslitum Meistaradeildarinnar.
Þjálfari Palermo,
Francesco Gu-
idolin, fékk
sparkið í gær en
lið hans hefur
algjörlega
brotnað sam-
an síðustu
vikurnar eftir
stórkostlegt
tímabil á síðustu leiktíð og fína
spretti í haust. Er nú hæpið að
félagið nái Evrópusæti en Pal-
ermo situr í sjötta sæti seríu A.
Allt á suðu-
punkti í
spænsku
deildinni og
Laporta,forseti
Barcelona, ákveður
að senda lið sitt til
Egyptalands til að etja
kappi við El-Ahly í vináttu- leik.
Ekki alveg þó því Barca fær dágóða
summu fyrir en gagnrýnendur líkja
þessu við stefnu Real Madrid þegar
stjörnufansinn var sem mestur
hjá því liði. Þá var allt falt og liðið
ferðaðist vítt og breitt fyrir peninga.
u
"ngstirnið Ro-
binho hjá Real
Madrid sem enn
hefur ekki sýnt neitt af
þeim hæfileikum sem
hann á að hafa ætlar
að hætta knattspyrnu
um þrítugt og fara að
kenna börnum. Skemmti-
leg framtíðarsýn hjá þessum
23. ára gamla Brasilíumanni.
Cristiano Ron-
aldo vann í
gær sín þriðju
verðlaun á stuttum
tíma þegar hann
var kosinn
leikmaður árs-
ins i Englandi
af stuðnings-
mönnum. Áður hafði hann hlotið
sams konar viðurkenningu frá
knattspyrnusambandinu enska.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Jose Mourinho þarf ekki að eyða
tíma í að stúdera leikmenn eða leik
Liverpool fyrir fyrri leik Chelsea og
Liverpool í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar sem fram fer í kvöld.
Það liggur alveg ljóst fyrir hver dag-
skipun Rafa verður; liggja aftarlega,
tveir pressa hverju sinni á væng-
menn þeirra bláklæddu og skyndi-
sóknir gegnum miðjuna þegar leik-
menn Chelsea verða óþolinmóðir.
Porto lék þennan leik gegn
Chelsea og hefði það ekki verið
fyrir arfaslakan markvörð liðs-
ins hefði plottið getað gengið
upp. Ekki þar fyrir að Rafa þurfi
að taka Porto sér til fyrirmyndar.
Rafa kann þá list
vel að blása liði
sínubaráttuandaí
brjóst og fætur en
Jose hefur mistek-
ist það í vetur og
sú áhersla á firna-
sterka vörn og skipulagðar breið-
fylkingar fram á völl með reglu-
legu millibili sem gerði Chelsea
að ógnvekjandi mótherjum áður
hefur vikið fyrir barnslegri von og
trú á að Didier Drogba setji eins og
eitt eða tvö. Sem hann hefur sem
betur fer gert fyrir liðið.
Gárungar benda á að Rafa sé
óútreiknanlegur. Hann hafi spilað
sóknarbolta á útivelli gegn Barc-
elona og dregið lið sitt til baka í
seinni leiknum á Anfield. Chelsea
spilar hins vegar
ekki eins og Barca
og framherjarnir
Shevchenko og
Drogba eru hættu-
legri en framlína
Barcelona. Þó er
vert að hafa í huga að Chelsea hefur
ekki skorað mark gegn Liverpool í
fjórum síðustu viðureignum þess-
ara liða í Meistaradeildinni. Oum-
deilanlega er Chelsea sterkara og
staða Chelsea í deildinni mun betri
en hjá Liverpool. Chelsea hefur
skorað fleiri mörk og fengið á sig
færri, en mikilvægara er þó að Li-
verpool hefur tapað átta leikjum á
leiktíðinni meðan þeir bláklæddu
hafa aðeins lotið þrívegis í gras. Eitt
þeirra skipta var einmitt á Anfield.
SÍÐUSTU LEIKIR
Úrvalsdeild
20. jan. ‘07 Liverpool - Chelsea 2-0
17. sep. ‘06 Chelsea - Liverpool 1 -0
13. ágú.'06 Chelsea - Liverpool 1-2
Meistaradeild
Liverpool - Barcelona 2-2
Liverpool - PSV 4-0
Chelsea - Porto 3-2
Chelsea - Valencia 3-2
Engin alvarleg meiðsl hrjá fót-
gönguliða Rafa hjá Liverpool fyrir
leikinn en Jose Mourinho verður
að búa sig til leiks án Michael
Essien sem er í banni. Þá eru Car-
valho og Ballack afar tæpir vegna
meiðsla.
CHELSEA
?1
fIV ERP00L
NHL-íshokkídeildin vestanhafs
Kanadamenn fara hallloka
Aðeins tvö kanadísk félög eru
eftir í átta liða úrslitakeppni
NHL-deildarinnar í íshokkí sem
hefst í kvöld.
Ottawa Senators og Vancou-
ver Canucks verja kanadíska
heiðurinn en gríðarleg rimma er
milli Kanada og Bandaríkjanna
í íshokkíinu sem er og hefur
lengi verið þjóðaríþrótt þeirra
fyrrnefndu. Aðeins Ottawa
er talið eiga nógu öflugt lið til
að gera alvarlega atlögu að
Stanley-bikarnum en til þess þurfa þeir að yfirstíga New Jersey De-
vils sem þekkja sigurgöngu vel og hafa unnið bikarinn nýlega.
Óvæntasta liðið til að komast í átta liða úrslitin er New York Ran-
gers sem urðu sjöttu í sínum riðli og mæta Buffalo. Vancouver fær
Anaheim og Detroit ætti að skauta nokkuð létt yfir San Jose.
NBA-deildin
Mitchell er maðurinn
Sam Mitchell, þjálfari Toronto
Raptors, var valinn þjálfari ársins í
NBA-deildinni í körfubolta af kollegum
sínum og blaðamönnum en lið hans
sigraði í 47 leikjum í deildinni og vann
Atlantshafsriðil sinn í vetur.
Mitchell hefur þjálfað Raptors síðan
2004 en var þar áður aðstoðarþjálfari
hjá sama liði. Hefur hann jafnt og
þétt aukið samheldni og keppnisskap
leikmanna sinna og árangurinn ekki
látið á sérstanda.
Hinn gamalreyndi Jerry Sloan hjá
Utah Jazz kom næstur og þriðji varð
Avery Johnson hjá Dallas.
Toronto var 0-1 undir eftir fyrstu
viðureign sína í úrslitakeppni NBA
gegn New Jersey þegar Blaðið fór í
prentun.