blaðið


blaðið - 15.05.2007, Qupperneq 2

blaðið - 15.05.2007, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 blaðið VEÐRIÐ í DAG Á MORGUN vIða um heim Skúrir í borginni Suðaustan og austan 3 til 8 með skúrum sunnan- og vestantil, annars bjartviðri. Hiti 1 tii 12 stig, hlýjast sunnan- og suðvestanlands, en vægt næturfrost í innsveitum. Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Dálítil rigning Austlæg átt, víða 5 til 10 metrar á sekúndu og dálítil rigning sunnan- og vestan- lands, annars þurrt að kalla. Hiti 3 til 9 stig. 21 17 25 23 29 12 12 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 12 New York 18 Orlando 15 Osló m Palma w París 17 Stokkhólmur 9 Þórshöfn 14 21 10 22 18 11 9 Á FÖRNUM VEGI Ertu sátt/ur við úrslit kosninganna? ■ Upplýsingar ekki aðgengilegar innflytjendum ■ Átak yfirvalda Nýja-Sjáland: Braust inn í fangelsi Seinheppinn innbrotsþjófur braustþáinní mannlausa lögreglustöð í bænum Matamata á Nýja-Sjálandi um helgina. Honum tókst í leiðinni að læsa sig inni í einum af fangaklefum stöðvarinnar. Dyrnar að klefanum lokuðust sjálfkrafa þegar þjófurinn fór inn í klefann og setti um leið í gang aðvörunarbjöllu. Innbrots- þjófinum tókst þó að bjótast út með því að brjóta gler í glugga, sem átti að vera óbrjótanlegt, og flýja. Bandaríkin: Hindra ekki hlýnun jaröar Bandaríkin vilja koma í veg fyrir að nokkur ákvæði rati inn í samkomulag um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum á fundi G8- ríkjanna í næsta mánuði. Þeirra á meðal eru markmið um að hlýnun jarðar verði minni en z gráður á Celsíus á þessari öld og að minnka útblástur gróðurhúsa- lofttegunda um helming. Þetta kemur fram í gögnum sem BBC hefur undir höndum. Flestir hinna þjóðhöfðingj- anna sem eiga aðild að fund- inum hafa lýst yfir vilja til þess að setja ströng markmið í loftslagsmálum. Fundurinn verður haldinn I Þýskalandi í byrjun júní. Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Fimmtungur þeirra sem voru kærðir vegna ölvunar við akstur á íslandi fyrstu fjóra mánuði ársins var með er- lent ríkisfang sem er tvöföldun miðað við árið 2005. Innan lögreglunnar, Umferðarstofu og Alþjóðahúss er að hefjast átak til að kynna nýjum lands- mönnum og ferðamönnum reglur um övlun við akstur og viðurlög við brotum gegn þeim. Er það hluti af stærra forvarnarverkefni sem miðar að því að gera upplýsingar aðgengi- legar fyrir fólk hér á landi sem ekki skilur íslensku. Fólk með erlent ríkis- fang er um 6 prósent þeirra sem búa hér á landi og útlendir ferðamenn á landinu umrædda mánuði voru lík- lega svipaður fjöldi. Það vantar aðgengilegar upplýsingar Eínar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss „Upplýsingar eru það sem skiptir máli í þessum efnum,“ segir Egill Bjarnason, yfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. Hann segir eina hugmynd sem upp hafi komið til að bregðast við þessu háa hlutfalli vera þá að koma kynningarefni á íslenskum umferðarlögum og við- urlögum við brotum gegn þeim á framfæri við nýja íslendinga og ferðamenn í gegnum bílaleigur og bílasölur. Það verði gert í samstarfi meðal annars við Umferðarstofu og Alþjóðahús. „Við ætlum að reyna að benda er- lendum ökumönnum á að það komi illa við budduna hjá fólki að vera tekið fyrir ölvun við akstur hér á landi og kannski verr heldur en fólk þekkir frá sínum heimalöndum," segir Birgir Hákonarson, fram- kvæmdastjóri umferðaröryggissviðs hjá Umferðarstofu. Samkvæmt reglu- gerð Umferðarstofu geta sektir fyrir að keyra undir áhrifum áfengis verið Guðmundur Kjartansson „Nei, flokkurinn minn tapaði." Guðrún Eiríksdóttir „Nei, hefði viljað sjá Framsókn með meira fylgi.“ á bilinu 70 til 140 þúsund krónur, ef um einstakt og fyrsta brot er að ræða. Einar Skúlason, framkvæmda- stjóri Alþjóðahúss, segir vandamálið vera hluta af stærra samhengi. „Það hefur vantað á allt of mörgum sviðum að upplýsingar séu þýddar og gerðar aðgengilegar þeim sem flytjast eða ferðast hingað til lands. Það á ekki síst við um upplýsingar er tengjast heilsu, svo sem upplýsingar og forvarnarþættir er varða áfengi og tóbak.“ Einar segir umrætt átak vera lið í að bæta úr þessu. Þá bendir Einar á að áðurnefnt hlutfall verði að skoða með tilliti til aldursdreifingar erlendra rík- isborgara hér á landi og þeirrar staðreyndar að ekki sé ljóst hversu mikið af brotunum megi rekja til ferðamanna. „Flestir útlendingar búsettir hér á landi eru á aldrinum 20 til 50 ára og í sumum árgöngum eru erlendir ríkisborgarar allt að 15 prósent þjóðarinnar. Ekki er ólíklegt að svo sé einmitt í þeim ár- göngum sem líklegastir eru til að keyra undir áhrifum." Frosti Baldursson „ Já, ég er sáttur við að Sjálfstæð- isflokkurinn baetti við sig fylgi.“ Einar Örn Björgvinsson „Nei, hefði viljað sjá stjórnina falla.“ Ölvunarakstur Fimmtungur þeirra sem kaerðir voru fyrir ölvun við akstur hér á iandi fyrstu mánuði ársins voru erlendir ríkisborgarar. Mynd/Mus Forvarnir og fræðsla umferðarmála: Fimmtungur ölvaðra ökumanna erlendir Öflugt starfsnám sem skilar árangri í fyrra komust færri að en vildu Upplýsingar og skráning á haustönn f síma 544 4500 og á www.ntv.is ntv. .15 Fangavörður og fangi hljóta dóm í Héraðsdómi Suðurlands: Smygluðu dópi á Hraunið Rúmlega tvítugur fyrrum fangavörður á Litla-Hrauni var í gær dæmdur í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir að hafa smyglað tæplega 34 grömmum af amfetamíni og um 241 grammi af kannabisefnum inn í fangelsið í ágúst síðastliðnum. Þá var 26 ára gamall fangi, Mikael Már Pálsson, dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að standa að skipulagningu smyglsins. Tveir mánuðir refsingar hans eru skilorðsbundnir. Mikael Már á langan sakaferil að baki. Hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í júní á síðasta ári fyrir marsgkonar brot. Meðal þess sem hann var dæmdur fyrir var að hafa fengið þrjá unga karlmenn til að flytja inn til íslands um 400 grömm af kókaíni frá Frankfurt í janúar 2006. Þeir voru handteknir við komuna til landsins. Mikael Már var síðan sjálfur stöðvaður í Leifsstöð rúmum mán- uði síðar eftir að fikniefnahundur tollgæslunnar hafði bent á ferða- tösku hans. Við leit í baki töskunnar fundust rúm 3,7 kíló af mjög sterku amfetamíni.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.