blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 blaðiö UTAN UR HEIMI Ahyggjur vegna loftslagsbreytinga I nýrri skýrslu bresku hjálparsamtakanna Christian Aid segir að veðurfarsbreytingar í heiminum gætu á næstu 40 árum knúið að minnsta kosti miiljarð manna til að yfirgefa heimili sín. Samtökin óttast þær afleiðingar sem þetta getur haft i fátækustu ríkjum heims. JAPAN Kjósa um breytta stjórnarskrá Japansþing hefur samþykkt frumvarp sem miðar að því að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um þreytingar á stjórnar- skránni. Ríkisstjórnin vill að afnumin verði úr stjórnarskránni ákvæði um friðarstefnu þannig að Japanar geti orðiö virkari þátttakendur í alþjóðakerfinu. Málið er mjög umdeilt. Rice vill tryggja stuðning Rússa Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á leið til Rússlands til þess að reyna að draga úr þeirri spennu sem verið hefur á milli þjóðanna að undanförnu. Rice telur mikilvægt að stuðningur Rússa i deilunni við Irana vegna kjarnorkuáætlunar þeirra haldist. Pakistan: 41 látinn í óeirðum Óeirðir í borginni Karacchi i Pakistan um helgina kostuðu 41 mannslíf. Óeirðirnar hófust þegar sló í brýnu á milli stjórn- arsinna og stjórnarandstæðinga er fyrrverandi hæstaréttardóm- ari sem Pervez Musharraf rak í mars síðastliðnum hugðist ávarpa fjöldasamkomu. Dómarinn hafði vakið athygli fyrir sjálfstæð vinnubrögð og gagnrýni á stjórnkerfið. Ekki hef- ur verið lýst yfir neyðarástandi í borginni en allar samkomur hafa þó verið bannaðar og hermönnum sem vakta götur gefin heimild til þess að skjóta á þá sem stuðla að ofbeldi. Einbýlishús fjölskyldu í Norðlingaholti brann: Sluppu með skrekkinn ■ Glænýtt en óíbúðarhæft ■ Kviknaði í gaskútageymslu ■ Miklar eldsprengingar Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Hjón og tvö börn ásamt heimilis- hundinum sluppu með skrekkinn er eldur kom upp í húsi þeirra á sunnudagsmorguninn. Glænýtt hús þeirra við Þingvað í Norðlinga- holti skemmdist þó mikið, en eldur- inn kom upp í útiskúr sem er sam- byggður húsinu. í skúrnum voru meðal annars geymdir gaskútar og urðu miklar eldsprengingar þannig að logarnir teygðu sig langt upp fyrir þak hússins. „Maður er náttúrlega bara í sjokki,“ segir Óli Þór Barðdal geislafræðingur en hann varð fyrstur heimilisfólks eldsins var er hann vaknaði sökum reyklyktar. Eftir að hjónin voru vöknuð fór svo eldvarnarkerfið í gang. „Svefn- herbergið skagar yfir skúrinn og ég vakna við að reykur kemur inn um opinn svefnherbergisgluggann. Húsið er steypt þannig að enginn eldur komst inn í húsið. En það er að hluta viðarklætt og brann klæðningin vel.“ Fjölskyldan hrað- aði sér út, en skömmu eftir að út m fiM otiliw var komið sprakk svefnherbergis- gluggi sökum hita. Oli Þór segir að ekki sé hægt að búa f húsinu sökum reykskemmda og bæði húsgögn og fatnaður angi af reyk. „Við fluttum inn í desember, þannig að þetta er alveg ferlegt. Sem betur fer voru þetta þó plastgaskútar þannig að þeir sprungu ekki heldur bráðnuðu. En það urðu töluverðar eldsprengingar og myndaðist of- boðslegur eldur sem teygði sig langt upp fyrir húsið.“ Öli Þór, sem ekki vill gera mikið úr atvikinu, er ánægður með við- brögð bæði slökkviliðs og trygginga- félags fjölskyldunnar og segist ekki trúa öðru en að brunatryggingin bæti tjónið. „Slökkviliðið kom fljótlega á vettvang og var fjótt að slökkva eldinn. Þá eru menn mættir frá tryggingafélaginu til að aðstoða okkur og er ég mjög ánægður með þjónustuna frá þeim.“ FAMI Hillur fataskapar og stál innréttingar Leibandi ítaLs^tjýrirtæ^i í hönnun og framCeibsCu á ibnabar innréttingum Fataskapar með hillu, slá, krók og lás, tilboðsverð 11.524 kr. Hillukerfi: Hæð 2.2 m, bre dýpt 40 cm, tilboðsverð 21. Hamarshöfða 1. Sími 511 1122 VERSLUN Skoðið nýja FAMI bæklinginn á www.ri-verslun.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.