blaðið - 15.05.2007, Page 12

blaðið - 15.05.2007, Page 12
blaðið blaöi Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árog dagurehf. Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Stjórnin hélt Þingkosningarnar um helgina voru, eins og flestir bjuggust við, gríðar- lega spennandi. Alveg frá því fyrstu tölur voru birtar var ljóst að stjórnar- samstarfið hékk á bláþræði. Þegar talningu var lokið kom í ljós að stjórnin hélt með minnsta mögulega meirihluta. Úrslitin komu í sjálfu sér ekki á óvart. Það er augljóst hverjir eru sigurvegarar þessara kosninga. Það eru Sjálf- stæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin - grænt framboð - flokkarnir sem eru lengst til hægri og lengst til vinstri á hinum pólitíska ás. Stjórnarflokk- arnir fengu mjög ólík skilaboð frá kjósendum á laugardaginn. Sjálfstæðis- flokkurinn jók við fylgi sitt og bætti við sig þremur þingmönnum á meðan Framsóknarflokkurinn galt afhroð. Féll úr tæpum átján prósentum i tæp tólf og missti fimm þingmenn. Það er erfitt fyrir sjálfstæðismenn að túlka þessa niðurstöðu öðruvísi en svo að það sé krafa kjósenda að flokkurinn muni leiða næstu ríkisstjórn. Fylgisaukning eftir áralanga setu í ríkisstjórn eru skýr skilaboð. Forystu- mönnum Framsóknarflokksins er hins vegar vandi á höndum. Flokkurinn fékk, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn, skýr skilaboð frá kjósendum. Skilaboðin voru bara ekki jafn jákvæð. Það verður afar erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að réttlæta áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Ráðherrar flokksins sögðu að ef fíokkurinn hlyti ekki viðunandi kosningu þá myndi hann ekki fara í ríkisstjórn. Nú er spurningin sú hvort sex prósent- ustiga tap milli kosninga og næstum helmingi minni þingflokkur sé viðun- andi staða. Svarið er í raun einfalt. Nei. Þrátt fyrir með afbrigðum laka útkomu Framsóknarflokksins þá eru blikur á lofti. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í Blaðinu i dag góðar líkur á að stjórnin haldi áfram að starfa saman á þessu kjörtím- bili. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, sem ekki náði kjöri í Reykjavík frekar en Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, segir áframhaldið alfarið velta á því hvort samkomulag næst um málefni. Vinstri grænir unnu kosningasigur. Það er engum blöðum um það að fletta. Flokkurinn næstum tvöfaldaði þingflokkinn hjá sér og er nú orðinn sá þriðji stærsti. Orðinn stærri en Framsóknarflokkurinn. Þó svo erfitt sé að fullyrða nokkuð um það þá er vel hugsanlegt að íslandshreyfingin hafi tekið fylgi frá Vinstri grænum. Það væri kaldhæðni örlaganna ef flokkurinn, sem barðist hatrammlega gegn stóriðjustefnu stjórnarinnar, hefur tryggt stjórn- arflokkunum meirihluta. Samfylkingin getur þokkalega vel við unað eftir þessar kosningar, en alls ekkert meira en það. Flokkurinn mældist mjög lágur í könnunum framan af en bætti sig á lokasprettinum. Niðurstaðan er samt sem áður fjögurra pró- sentustiga fylgistap og 18 manna þingflokkur en ekki 20. Frjálslyndi flokkurinn endaði með þvi að verja sína stöðu. Hann er nán- ast með sama fylgi og hann fékk fyrir fjórum árum. Forystumenn flokks- ins, sem fyrr í vetur höfðu gert sér vonir um að rjúfa tíu prósenta múrinn, geta samt þokkalega vel við unað. Það er samt ekkert annað í spilunum hjá floklcnum en stjórnarandstaða næstu fjögur ár. Trausti Hafliðason Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf áauglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Harðviðarpallaefni, Massaranduba 25 x 145 mm, lengd: 215 - 430 sm 12 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2007 Eftir á að hyggja Þá er búið að kjósa. íslandshreyf- ingin fékk því miður ekki þing- menn kjörna en hefði fengið tvo menn kjörna ef mörkin hefðu ekki verið færð jafn hátt og raun ber vitni. Áður náðu flokkar tveimur mönnum á þing með 3 prósenta fylgi. Þessu hefur verið breytt með lögum þannig að nú þarf að ná 5 prósentum á landsvísu til að ná inn manni. Þetta er óeðlilega hár þrösk- uldur sem flokkarnir sem fýrir eru hafa reist til að verja sitt vígi, ef svo má að orði komast. Svona há mörk þekkjast ekki á hinum Norðurlönd- unum. Sem dæmi má nefna að mörkin eru 2 prósent í Danmörku. Annar þröskuldur er sá, að það er afar erfitt fyrir hugsjónafólk sem þarf að greiða kosningabaráttuna úr eigin vasa, að keppa á auglýs- ingamarkaði við flokka sem hafa skammtað sér hundruð milljóna úr ríkissjóði til kosningabaráttunnar. Það er sannarlega ójafn leikur. Gaf íslandshreyfingin ríkisstjórninni líf? Það er fráleitt, sem sumir hafa viljað halda fram, að Islandshreyf- ingin hafi gefið ríkisstjórninni líf með framboði sínu. Ætla má, miðað við stöðu íslandshreyfingar hægra megin á miðju stjórnmálanna, að framboð hennar hafi frekar komið í veg fyrir að þeir 6000 kjósendur sem kusu Islandshreyfinguna, kysu stjórnarflokkana. Reyndar höfðu ör- fáir þeirra kosið Vinstri græna áður, en það var eingöngu vegna þess að ekki bauðst flokkur hægra megin við miðju sem lét sig umhverfismálin miklu varða. Það er verulegt áhyggju- Klippt & skorið efni hversu miklu skoðanakannanir ráða um framvindu stjórnmálanna hér á landi. Ef flokkar mælast elcki vel i skoðanakönnunum fælir það fylgi frá. Þá er hamrað á því að fólk eigi ekki að kasta atkvæðum sínum á glæ. í öðrum löndum tíðkast að banna skoðanakannanir í viku til tíu daga fyrir kosningar vegna þess að þær eru skoðanamyndandi. Það hlýtur að verða skýlaus krafa að framkvæmd lýðræðis sé ekki með þeim hætti að það viðgangist að birta skoðanakannanir fram á kjördag. Margrét Sverrisdóttir Framsókn hrifsar völdin þrátt fyrir afhroð Nú er beðið í ofvæni eftir þvi hvernig stjórnarmyndun verður. Alltaf skal Framsókn enda í lykil- stöðu. Þrátt fyrir að Framsóknar- flokkurinn hafi goldið afhroð og formaðurinn ekki náð kjöri á þing, heldur ríkisstjórnin. Allir helstu forkólfar Framsóknar voru búnir að lýsa því yfir dagana fyrir kosn- ingar að þeir færu ekki í stjórn ef úrslitin yrðu í samræmi við skoð- anakannanir sem sýndu að stór- tap var í uppsiglingu. En þegar á hólminn er komið snúa þau öll við blaðinu og eru alveg til í að hanga á völdunum eins og hundur á roði með eins manns mun. Þetta er erfið staða fyrir Geir Haarde, því ef hann afþakkar samstarfið við Framsókn, þá getur Framsókn farið í samstarf með R-lista flokkunum og skilið Sjálfstæðisflokk eftir úti í kuldanum. Framsókn er alltaf opin í báða enda. En Framsóknarflokkurinn má sann- arlega vara sig, því íslenskir kjós- endur eru löngu búnir að fá nóg af því að hafna flokknum í kosningum en sjá hann hrifsa öll völd þrátt fyrir það. í borginni gerðist þetta síðast, þar sem Framsókn fékk minnstan stuðning kjósenda, aðeins 6 prósent atkvæða og einn mann kjörinn, en hefur helmingsvöld í borginni þrátt fyrir það! Horft til framtíðar Islandshreyfingin er fullmótaður stjórnmálaflokkur sem mun láta sig þjóðfélagsmál varða héðan í frá sem hingað til. Ég vil að lokum færa þeim kjósendum sem studdu íslandshreyfinguna bestu þakkir og einnig því frábæra fólki sem ég hef kynnst í starfi Islandshreyfing- arinnar fyrir ótrúlega óeigingjarnt starf og vænti góðs samstarfs áfram. íslandshreyfingin á mikið hlutverk fyrir höndum við að standa vörð um náttúru íslands og öflugt atvinnu- og efnahagslíf í landinu, bæði á sveitarstjórnarvettvangi sem og á landsvísu. Höfundur er varaformaður Islandshreyfingarinnar orsteinn Pálsson, ritstjóri Frétta- blaðsins, er á því að rétta staðan sé sú að Sjálfstæðisflokkur og Samfylk- ing myndi nýja ríkisstjórn. Hann segir í blað- inu í gær: „Álitamálið um hvort hyggilegt er að halda núverandi stjórnarsamstarfi áfram snýst ekki um nauman meirihluta. Viðreisnar- stjórnin sýndi að það er ekki vandi. Hitt er raun- veruleg spurning hvort allir þingmenn og forystumenn Framsóknar- flokksins hafa gert upp við sig hvert flokkur- inn á að stefna." Og í lokin segir Þorsteinn: „Komi til nýrrar stjórnarmyndunar sýnist því vera nærtækast fyrir Sjálfstæðisflokk og Sam- fylkingu að semja." Jónas Kristjánsson ritstjóri erekki sátturvið áframhaldandi stjómarsamstarf ef dæma má skrif á heimasíðu hans, jonas.is. Þar segir hann: „Þegar búið var að telja upp úr kössunum, missti fólkið völd og traust. Forstjórar stjórnmálaflokk- anna gripu aftur máttinn og dýrðina. Þeir passa að láta kjósendur ekki vita um efni brallsins, sem hófst í kjölfar kosninganna. Fjölmiðlarkom- ust að fundi Geirs og Jóns og fundi Ingibjargar og Steingríms. En ekkert lekur um, hver hyggst vinna með hverjum f næstu ríkisstjórn. Geir gefur í skyn, að hann muni vinna með Jóni, þótt þjóðin hafi hafnað Jóni. Hvað sem pólitískir stjórar segja um ágæti kjósenda fyrir kosningar, em þeir sam- mála um að hunza þá, þegar búið er að telja." Morgunblaðið er ekki sammála Jónasi því í forystugrein blaðsins er talað um áframhaldandi stjórnarsam- starf sem það eina rétta í stöðunni. Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf, Óbreytt samstarf. ( leiðaranum segir: „Samstarf þessara tveggja flokka hefur gengið vel. Þegar hér er komið sögu eru engin meiri háttar ágreiningsefni þeirra á milli og ekki fyrir- sjáanlegt að þau eigi eftir að koma upp, að minnsta kosti ekki í nálægri fram- tíð." Niðurlag leiðarans er á þennan veg: „Rökin fyrir því að ríkisstjórnin sitji áfram eru augljós." elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.