blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 blaðið
veidikortid.is
^
Æ.Z7vatnasvæði
fyrir aðeins 5000 krónur!
Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á Ni í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Premium
Tréstigar
Sumarhúsastigar á lager
Fura - Beyki - Eik
Breiddir 55-65-70-82-90cm
Handlistar - trépíralar
handriði 28.900-
Cottage með beygju 82.000-
'radiEco lokiið þrep 107.800-
16 • SUMARIÐ
Eyöir meindýrum
nánast allan sólarhringinn
Smári Sveinsson meindýraeyðir
stendur í stórræðum þessa dagana
þegar hin ýmsu kvikindi fara á stjá
eftir langan vetur. Smári kippir sér
ekki upp við það að úða eitri í massa-
vís á skordýr eða veiða rottur í
gildrur en hann er eigandi fyrirtæk-
isins Varnir og Eftirlit sem sérhæfir
sig i eyðingu hinna ýmsu dýra sem
valda usla og óþægindum meðal
mannfólks.
„Hjá Umhverfisstofnun er hægt að
fá réttindi sem meindýraeyðir með
setu í ákveðnum fyrirlestrum. Ég
ferðast þó reglulega víða um heim
og tek þátt í ráðstefnum, hlusta á fyr-
irlestra ásamt því að vera meðlimur
í alls kyns samtökum sem snúa að
meindýraeyðingu.” Annars snýr
starf Smára að því að meðhöndla
hvers konar aðskotadýr en einnig
fólk sem hefur lent illa í þeim. „Ég
hef lent í útkalli þar sem fólk hefur
verið bitið illa af ýmsum dýrum,
pöddur hafa fundist í matvælum
eða rottur eru hreinlega hlaupandi
yfir eldhúsgólfið.”
Um þessar mundir eru þó flest til-
fellin vegna fuglsins stara og þá aðal-
lega þeirra flóa sem í fjöðrum hans
búa. „Flóin leitar í fólk og bítur það
og stingur þannig að oft fylgir mik-
illkláði og lciðindi í kjölfarið.”
Með hækkandi sól segir Smári að
eftirspurn eftir meindýraeyðingu
aukist til munaþar sem hinýmsu dýr
fari á stjá eftir kaldan vetur. Hann á
við hinar ýmsu dýrategundir sem
eru á ferli nánast allan sólarhring-
inn. „Nú fer hinn hvimleiði roða-
maur að koma, en hann er þó ekki
skaðlegur. Síðan eru auðvitað alltaf
einhverjar býflugur til ama, sérstak-
lega þær sem setjast að á sólpöllum.
Annars eru geitungarnir seint á
ferðinni í ár, en þegar þeir láta sjá
sig þá stoppar síminn einfaldlega
ekki.” Aðspurður um góð húsráð
gegn aðskotadýrum nefnir Smári
það að framar öllu þurfi að hafa
ruslageymslur heimilisins vandlega
lokaðar og læstar. „Ef ætið er fjarri
eru meindýrin það líka.” Þegar talið
berst að villiköttum segir Smári að
eyðing þeirra sé ekki á hans könnu
heldur sé hún í höndum dýralækna
eða bæjarfélaga.
Smári vill ekki ræða um versta
tilfelli sem hann hefur orðið vitni
að í bransanum, þau séu orðin svo
mörg, en einnig kveðst hann ekki
vilja ræða skæð útköll af tillitssemi
við viðskiptavini sína. Um þessar
mundir vinnur Smári að því að setja
upp heimasíðuna www.meindyr.
is þar sem fólk getur nálgast upp-
lýsingar um helstu kvikindin sem
vilja gera sig heimakomin i híbýlum
landsmanna.
Stari
Fuglinn stari var áður fyrr flæk-
ingsfugl en um miðja síðustu öld fór
hann að vera staðfugl hér á landi.
Stari hefur eins og hrafninn, frændi
hans, gaman af skínandi eða gló-
andi hlutum og á það til að skreyta
hreiður sín með alls kyns glingri.
Starinn er friðaður hérlendis, mik-
ill söngfugl en einstakur tækifæris-
sinni. Á starann leggjast andstyggi-
legar flær sem þarf meindýraeyði til
að útrýma.
Veggjalús
Veggjalúsin er af fagfólki nefnd
skæð blóðsuga og leggst hún á
fólk. Gjarnan tekur hún sér ból-
festu í rúmum manna og nærist
á blóði þeirra að næturlagi, helst
milli klukkan 04 og 07. Talið er að
veggjalúsin hafi borist hingað með
norskum hvalföngurum seint á 19.
öld og afar brýnt er að ráðast gegn
henni áður en hún nær að dreifa
sér.
Silfurskotta
Almennt er litið á silfurskottur
sem meindýr, þó þær hafi ekki skað-
leg áhrif á heilsu manna. Silfurskot-
turnar eru ljósfælnar oglifa í myrkri
og raka, oft í eldhúsum eða baðher-
bergjum og nærast á matarleifum
af ýmsum gerðum. Skotturnar geta
orðið allt að fimm ára gamlar en
nafn sitt draga þær af silfurgráum
lit sínum.
Brúnrotta
Brúnrottan étur nánast allt sem
að kjafti kemur og fúlsar alla jafna
ekki við hræjum. Brúnrottan kemur
frá norðanverðri Austur-Asíu þaðan
sem hún barst til Rússlands, Suður-
Asíu og loks til Evrópu. Brúnrottan
getur orðið allt að 30 cm á lengd og
halinn allt að 20 cm langur. Fætur
rottu þessarar eru mjög lágir og
vottar fyrir sundfitum á milli tánna.
Hún er algeng í þéttbýli og finnst
víða.