blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 3
blaðið MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 SUMARIÐ ■ 17 Gaman að hjóla saman Skemmtilegt er að hjóla frá Breiðholtinu og út í Gróttu á Seltjarnamesi. Hjólreiðastígar auðvelda ferðalagið Hjólreiðar eru skemmtilegar og þar að auki heilsusamlegar. Fólk á öllum aldri ætti að finna sér hentuga líkamsrækt með því að draga hjólið fram úr geymsl- unni því mikið átak hefur verið gert til að auðvelda hjólreiðar um borgina. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur boðað stór vistvæn skref og hyggst verða til fyrirmyndar í umhverfismálum. A næstunni munu borgarbúar finna fyrir þessu átaki, t.d. þegar göngu- og hjólreiðastígurinn frá Ægisíðu upp i Elliðaárdal verður breikkaður, upphitaður og vatnshönum þar fjölgað. Eftir því sem kemur fram á vef Reykjavíkurborgar www.rvk. is verður göngu- og hjólreiðastígum sinnt eins og götum borgarinnar allan ársins hring. Göngustígar sem tengja búsetusvæði eldri borgara og nálæg útivistarsvæði verða upp- hitaðir og bekkjum og handriðum verður komið fyrir. Merkingar göngu- og hjólreiðastíga munu taka mið af göngu og hjólreiðum sem samgöngumáta. Á vefnum er einnig að finna kort af göngu- og hjólastígum. Með uppbyggingu göngu- og hjólastígakerfis Reykjavíkur er íbúum og gestum gert kleift að ferðast hjólandi eða gangandi um borgina á öruggan, aðlaðandi og vistvænan máta. Víða eru göngu- brýr eða undirgöng undir um- ferðaræðar og stígar eru lagðir um vinsælar útivistarperlur eins og Ell- iðaárdalinn og Ægisíðu. Sex áningarstaðir eru nú við stíga- kerfið, þar sem vegfarendur geta kastað mæðinni og notið útsýnisins, skoðað göngu- og hjólastígakort fyrir höfuðborgarsvæðið og fengið sér nesti. Staðsetning áningarstaða er valin með tilliti til þess hvar þeir koma flestum til góða, en ekki síður hvernig tekið er á móti ferðamönnum sem koma hjólandi að borgarmörkum og þeim vísað af umferðaræðum inn á stígakerfi borgarinnar. Einn áningarstaður verður settur upp á árinu 2007, við Breiðholts- braut milli Fákssvæðis og Elliða- vatns, en gert er ráð fyrir því að setja árlega upp nýjan áningarstað næstu þrjú til fjögur árin. Áningar- staðirnir eru hannaðir af Kjartani Mogensen landslagsarkitekt. Weleda fyrir alla fjölskylduna Á síðastliðnum árum hefur um- ræðan um skaðsemi sólar orðið sífellt meira áberandi og því er mikilvægt að fólk hugi að sólar- vörninni, hvort sem fólk flata- magar á erlendri sólarströnd eða streðar í garðinum. Weleda-sólar- línan er unnin úr lífrænum jurtum sem innihalda ekki skaðleg aukefni. K r e m i n eru vatnsheld og veita bæði vörn gegn UVA-ogUVB- geislum sólar. Innihalds- efnin tit- andioxid og z i n k 0 x i d eru náttúru- leg efni sem verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar en skaða ekki húðina. Kremin inni- halda gulrótarextrakt, hnetusmjör, sesamolíu og jojobaolíu sem gefur húð- inni fallegan lit og mjúka áferð. Sólarvörn 20 er góð á and- lit og aðra viðkvæma staði á líkamanum og er því mjög góð fyrir börnin. Sólarvörn 15 er góð á líkam- ann og after sun-húðmjólkin er kælandi og frísk- andi áburður sem inniheldur aloe vera-gel, olífuolíu og shea butter sem hjálpar húðinni að viðhalda fal- legum lit og endurnýjast þannig að húðin helst áfram mjúk og falleg. Sól- arvörnin er með nota- legan sítrus- ilm sem fælir burtflugurog mý. Weleda eru lífrænar vörur án aukefna Sólarlínan var valin heilsuvara ársins 2003 á Biofaach, stærstu heilsusýningu í heimi. Weleda fæst í apótekum, heilsuverslunum, barna- verslunum og heilsuvöru- deildum stórmarkaða. Náttúruleg sólarvörn Mikilvægt er að vera vel varinn gegn skaðlegum geislum sólar. Edelweiss Sun Cream Mlncnl tan p»ot«wt*ó« 1.495,- er tíminn... SKINA RUND útisería gardína BlxHl,6 m, snúrulengd 6 m, ýmsir litir Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is STORÖN hægindastóll 80x63x103 cm, gegnheill akasíuviður 6.990,- 20/133x62x71 cm, gegnheill akasíuviður 8.690,- ÁPPLARÖ bekkur 117x62x80 cm, gegnheil akasíuviður 7.990,- f ' STORON stóll m/örmum 62x62x82 cm, gegnheill akasíuviður 5.990,- SOMMAR blómakanna 1,5 1 ýmsir litir 450,- SKINA útisería, krans 030 cm 1.995,- SOMMAR kökuhjálmur 035 cm SKINA L14,2 m perur prestabrá ýmsir litir 295,- PLATTA gólfklæðning 45x45 cm, gegnheill akasíuviður 450,-/stk. SOMMAR sogrör 200 stk. ýmsir litir 95,- SOMMAR strandpoki 45x45 cm SOMMAR hengi sprittkertastjaki H27 595,- SOMMAR ýmsirlitir 195,- SOMMAR ísskeið 025 H23 cm 95,- 65,- SOMMAR flugnaspaðar 2 stk.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.