blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 7
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007
SUMARIÐ • 21
Mitt annað heimili á sumrin
Sólrún Gunnarsdóttir er skemmti-
legur og reynslumikill hjólhýsaeig-
andi, en hún fékk sitt fyrsta hjólhýsi
fyrir 35 árum. Sólrún er því öllum
hnútum kunnug varðandi val á þægi-
legri gistiaðstöðu en hún hóf útilegu-
ferilinn í tjaldvagni, færði sig þaðan
yfir í fellihýsi en hefur nú keypt sitt
annað hjólhýsi. Hún segir að eftir
það muni hún ekki fara aftur í tjald-
vagninn. „Hjólhýsið er algjör lúxus,
í því er algerlega allt til alls. Ég hef
þegar verið 32 nætur í því í sumar,
en ég byrjaði snemma í vor að ferð-
ast um landið.” Útilegur hafa lengi
verið áhugamál Sólrúnar, en hún fer
með þetta annað heimili sitt hvert á
land sem er. „Hjólhýsið er sem sum-
arbústaður minn og annað heimili á
sumrin. Það er mjög vel búið, hefur
hita í gólfum, sturtu, klósett, baka-
rofn, leðursófa, mínútugrill, sjón-
varp og einfaldlega allt sem til þarf.”
Sólrún ferðast mest í hjólhýsinu
ásamt eiginmanni sínum en einnig
öðrum meðlimum fjölskyldunnar
því dætur hennar eru fellihýsa-
eigendur. „Það er ekkert vesen í
kringum hjólhýsið, einfalt mál að
krækja því á bílinn og lítið verk að
þrífa; ég get skúrað gólfin og hef
einnig litla ryksugu. Svo get ég skellt
hrygg í bakarofninn eða bakað í því
vöfflur á góðum degi.”
Hjólhýsið góða er tæpir 6 metrar
að lengd og 2,5 metrar á breidd en
lengst hefur Sólrún verið í því stans-
laust í 2 vikur. { hýsinu rúmast 4
fullorðnar manneskjur og 2 börn í
gistingu.
Sólrún hefur kynnt sér vel hvar
besta aðstaða landsins er fyrir hjól-
hýsaeigendur en mikilvægast segir
hún að á stæðunum sé aðgangur að
rafmagni og góð snyrtiaðstaða.
Aðspurð um dagskrána í sumar
kveðst hún ætla að vera í hjólhýsinu
eitthvað fram í júlí, skreppa þá utan
í hálfan mánuð en svo verður hún haust, en það fer talsvert eftir veðri
aftur í hjólhýsi sínu eitthvað fram á og vindum.
Glæsilegur garður Margar
fallegar myndir prýða bókina.
Handbók
garðeigandans
Það er alltaf gott að eiga góða
að þegar fólk vantar góðar hug-
myndir. Þegar kemur að garð-
hönnun er gott að geta gengið að
stórum og miklum hugmynda-
banka sem hægt er að fletta upp
í að vild. Handbók garðeigand-
ans sem BM Vallá hefur gefið út
annað hvert ár í meira en áratug
er hvalreki fyrir fólk sem stendur
í endurbótum á garðinum sínum
en veit ekki alveg hvernig er best
að haga hlutunum.
Gunnar Þór Ólafsson, forstöðu-
maður sölu og dreifingar hjá BM
Vallá, segir að í þessari bók séu
teknar saman allar nýjungarnar
hjá fyrirtækinu. „í þessari bók
erum við að sýna þær vörur sem
við höfum upp á að bjóða fyrir
garðeigendur. Á ári hverju tökum
við inn margar nýjar vörur og við
kynnum þær einnig í þessari bók.
Við erum meðal annars að kynna
til sögunnar nýjar hellutegundir
sem og nýtt efni fyrir veröndina,
flísar, hleðslusteina, steina sem
henta fyrir aksturssvæði og ýmis
garðskreytiefni, svo sem blóma-
ker og garðeiningar.“
Handbók garðeigandans er
enginn smábæklingur heldur er
um 99 síðna bók að ræða í hefð-
bundnu broti, þannig að hér er
á ferð virkilega eiguleg bók með
mörgum fallegum ljósmyndum.
„Grímur Bjarnason ljósmyndari
hefur tekið myndirnar í þessa
bók, líkt og árin á undan, en
bókin er mikið augnayndi sem
ljósmyndarit því það er mikið
lagt í ljósmyndirnar.“
Þessi bók er gefins og geta við-
skiptavinir BM Vallár sem og
aðrir áhugasamir nálgast bók-
ina á fjölmarga vegu. Bókina er
hægt að nálgast hjá söludeild BM
Vallár að Breiðhöfða 3 og einnig
er hægt að hringja til söludeild-
arinnar í síma 585 5050 og panta
bókina. Einnig getur fólk pantað
bókina á Netinu á heimasíðu BM
Vallár, www.bmvalla.is, eða með
því að hringja í 800 5050 sem er
sjálfvirkur símsvari.
Helstu kostir þeirra eru t.d.:
• Fallegt útlit
• Auðveldar í uppsettningu
• Margirlitir
• Traustarog endingargóðar
• Úr hágæðastáli
• Fjöldi aukahluta
• Áratuga reynsla é íslandi
Fást í byggingavöruverslunum
um allt land
m) Lindab
wnet
Có
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR
Gylfaflöt 9 112 Reykjavík Sími: 530 6000 Fax: 530 6021
www.limtrevirnet.is
AUGLÝSINCASTOFA