blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 11

blaðið - 06.06.2007, Blaðsíða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 SUMARIÐ -25 Vélmenni sér um húsverkin Þegar sólin er hátt á lofti vill fólk fara út og vinna í garðinum eða bara slaka á í sumarbústaðnum. Á svoleiðis tímum er það ekki ofar- lega á óskalistanum að standa í hús- verkunum. Því væri það kjörið ef fólk gæti fengið einhvern til að þrífa heimilið fyrir sig en hingað til hefur fólk þurft að ráða sér heimilishjálp til þess. En nú, þökk sé gífurlegum tækniframförum, getur fólk farið að heiman á morgnana og treyst því að þegar það kemur heim að kvöldi dags sé búið að vinna húsverkin. Roomba er sjálfvirkur ryksugu- róbót sem þrífur gólfið án nokkurra mannlegra afskipta. Fólk getur kveikt á honum þegar það fer úr húsi og róbótinn vinnur sína vinnu vel og örugglega. Róbótinn er útbú- inn skynjara sem sér hvernig rýmið lítur út sem þrífa skal og þrífur eftir því. Skiptir engu þótt borð, stólar eða lampar séu á gólfinu, Roomba fer í alla króka og kima. Hann þrífur um 45 fermetra á 40 til 50 mínútum og skilar gólfinu 99,7 prósent hreinu samkvæmt fullyrðingum fram- leiðanda. Svo þegar gólfið er orðið hreint, slekkur róbótinn annað hvort á sér eða fer, af sjálfsdáðum, heim í hleðslustöðina. Rafmagns- hleðslan á Roombunni getur enst í allt að 120 mínútur þannig að róbót- inn fer létt með meðalstórar íbúðir á einni hleðslu. Vert er að geta þess að með Roombunni fylgir einnig fjar- stýring þannig að ef fólk langar til að sitja í hægindastólnum og stýra ryksugunni þaðan þá er það leikur einn og það sem meira er, það er furðugaman. Umboðsaðili Roomba á íslandi er Grímfell ehf. og segir Jón Ásgeir hjá Grímfelli að viðtökurnar hafi verið vonum framar. Eftir að fyrir- tækið tók formlega við umboðinu í ársbyrjun hafa um 360 ryksugur verið seldar. Jón segir að það hafi Fer út um allt Roomba er fær íflestan sjó og kemst víða. vakið furðu sína hversu lág bilana- tíðnin er hjá Roomba en af þessum 360 vélum sem seldar hafa verið hefur einungis ein bilað og sá við- skiptavinur hafi fengið nýja vél um hæl þar sem framleiðandi Roomba, iRobot, gerir þá kröfu að biluðum vélum sé skipt út. Þeir sem vilja kynna sér nánar hina miklu kosti Roomba-ryksug- unnar frá iRobot geta brugðið sér inn á heimasíðu Grímfells, www. roomba.is, eða þá mætt í verslunar- miðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði á morgun. Þar mun fara fram kynn- ing á hinni mögnuðu Roombu á milli klukkan 16 og 22. Roomban fæst hjá Grímfelli og einnig hjá Max, Byko og verslunum Ormsson. Oregla skapar skjól Það eru margir á þessum árstíma að gróð- ursetja við sumarhúsin sín. Þegar verið er að gróðursetja er gott að hafa nokkur atriði í huga varðandi framtíðarútlit svæðis- ins. Fram kemur í bókinni Barrtré á íslandi að sérstaklega þarf að gera sér grein fyrir mismunandi þörfum trjátegunda varðandi sólarljós. Barrtré eru ýmist Ijóselsk eða skuggaþolin. Eitt af helstu einkennum Ijós- elskra tegunda er hraður vöxtur á fyrstu árunum en skuggaþolnar tegundir vaxa oft- ast hægar í byrjun en taka svo hraustlega við sér við 15-25 ára aldur. Einnig er tekið fram í bókinni að þegar gróðursetja á barrtré þá er mikilvægt að vita hvernig skógareigandinn vill að skógurinn líti út í framtíðinni. Hvenær þarf að hefja fyrstu grisjun og hvort er um að ræða útivistarskóg eða nytjaskóg eða hvort er verið að gróðursetja til skjóls fyrir fólk og byggingar. Betra er að gróðursetja í minni skika, þegar gróðursett er í sumarhúsalandi. Setja eins og 10-30 skika saman og skilja svo eftir auð svæði í kring. Það borgar sig ekki að gróðursetja þéttar en með 1,8 metra á milli plantna. Ef gróðursett er óreglulega skapar það mun meira skjól og verður mjög fallegt ásýndar seinna meir. Plöntur skýla ekki hver annarri, heldur veldur óreglan sem þær skapa því að vindur lyftir sér yfir þær og þá myndast skjól niðri við jörð. Vindur velur sér ávallt auðveldustu leiðina sem hann kemst og er því lítið fyrir að troða sér í gegn ef hann hefur val um auðveld- ari leið. Ef fólk er að stíga sínu fyrstu skref í garð- rækt er um að gera að lesa sér til áöur en hafist er handa. Bókin Barrtré á Islandi er ágætis leiðarvísir fyrir fólk sem er að byrja að rækta tré. 863-/939 Vörn gegn brunaslysum • Tvöfalt brunaöryggi Termix hitastýring fyrir setlaugar frá Danfoss Rafeindastýring nemur hitastig í setlauginni Lokar fyrir innrennsli þegar öskuðu hitastigi er náð Ódýr og hagkvæm lausn Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður Auðveld i uppsetningu www.danfoss.is 9 9 STI STILLUM HITANN HÓFLEGA www.stillumhitann.is Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.