blaðið - 06.06.2007, Qupperneq 8
22 * SUMARIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2007 blaðið
Einnig ætlað börnum
Dreifingarsími: 698 7999
Fæsti apótekum um land allt,
Þín verlsun Seljabraut,
Veiðiportinu og Vesturröst.
Innbyggt salerni
kr. 24.900
allt settið
■finÍBHÍBBRnWi 1 T 1 ásíyi s nwa
r.T.i
fT3T| psfýfj
1 Jij 1 f ,, 113 % \ | 1 r*s j
JABO HÚS
Ármúla 36 R. S 581 4070
www.bjalkabustadir.is
I I
Tökum öll þatt i sjalfsagðri
umhverfisvemd.
Hirðum umhverfið, hendum ekki verðmætum
Fíestar drykkjarvöruumbúðír eru skilagjaldskyídar.
Skilagjaldið fæst endurgreitt við móttöku
umbúða hjá Endurvinnsíunni hf
eða hjá umboðsmönnum hennar um iand
Skilagjaldið er 10 kr.
Að ýmsu að
huga í garðinum
Það getur oft verið erfitt að átta
sig á hvaða garðverk er nauðsynlegt
að gera yfir sumartímann. Valborg
Einarsdóttir, garðyrkjufræðingur
hjá Garðyrkjufélagi íslands, segir að
það sé að mörgu að huga. „Nú eru lík-
lega margir farnir að slá grasið í garð-
inum hjá sér. Það er mjög misjafnt
hve oft þarf að slá, það getur þurft
einu sinni í viku en jafnvel dugar að
slá einu sinni í mánuði sums staðar.
En það fer alveg eftir grastegund,
áburðargjöf og vökvun. 1 görðum
þar sem grasflatir eiga að vera mjög
fallegar þarf að slá mjög oft enda er
yfirleitt góð og regluleg áburðargjöf
á slíkum stöðum. En á stærri flötum
sem eru náttúrulegri þarf ekki að
slá eins reglulega. Oft er mosi vanda-
mál á grasflötum en hann er mestur
í byrjun sumars en minnkar oftast
þegar líður á sumarið. Fólk verður
því bara að sýna þolinmæði því mos-
inn hverfur oftast þegar grasið fer að
spretta."
Rétti tíminn til að huga
að matjurtunum
Valborg segir að nú sé ljómandi
góður tími til að gróðursetja mat-
jurtir. „Þegar ekki er lengur nætur-
frost er gott að fara að huga að mat-
jurtunum. Það er gríðarlega mikið
framboð af matjurtum og þær sem
eru seldar í búðum hér á landi henta
flestar íslenskum aðstæðum vel.
Hægt er að kaupa margar tegundir
af forræktuðu grænmeti svo sem
spergilkál, blómkál, hvítkál, græn-
kál, rófur, beðju, klettasalat, höfuð-
salat, hnúðkál og rósakál sem er sjálf-
sagt að notfæra sér, hafi maður ekki
aðstöðu til að sá fyrir því sjálfur.
dráttarbeisli
Ásetning á staðrium.
Víkurvagnar ehf • Dvergshöföa 27
^Sími 577 1090 • www.vikurvagnar.is
Það hefur líka færst mikið í vöxt
að fólk sé með ýmsar kryddjurtir
bæði út í garði eða bara í eldhúsglugg-
anum. Það getur verið mjög fallegt
að láta kryddjurtirnar inn á milli
sumarblómanna. Mjög auðvelt er að
rækta myntu og graslauk sem ætti
að vera til í hverjum garði eða jafnvel
bara í potti úti á svölum. Skjaldflétta
er mjög skrautlegt og fallegt sum-
arblóm og vinsæl í hengikörfur en
hún bragðast einnig mjög vel og er til-
valin í salatið eða bara ein og sér í for-
rétt með góðum fordrykk á meðan
beðið er eftir grillmatnum.“
Úrval sumarblóma gríðarlegt
Valborg segir að íslendingar miði
oft við að vera búnir að setja niður öll
sumarblóm fyrir 17. júní. Fólk getur í
raun valið blóm eftir litum og formi.
En úrvalið er alltaf að aukast og þau
sumarblóm sem fást hér á landi eru
farin að nálgast hundrað.
„Bæði stjúpur og fjólur henta ís-
lenskum aðstæðum mjög vel. En það
er um að gera að prófa sig áfram með
ýmsar tegundir og láta hugmynda-
flugið ráða. Brúðarstjarna og sóiboði
eru ótrúlega duglegar og vindþolnar
jurtir en þær þurfa sól, sérstaklega
sólboðinn. Það eru sífellt að koma
nýjar tegundir af sumarblómum og
úrvalið er gríðarlegt."
Valborg segir að það skipti einnig
máli hvort garðurinn er í suðri eða
norðri. Því ef garðurinn er í norðri
er þar af leiðandi minni sól og því
minna úrval af sumarblómum.
Fyrir garða sem vísa í norður henta
vel harðgerðari og skuggaþolnari
plöntur. Valborg segir að íslend-
ingar þurfi að vera duglegri við að
vökva. Það þurfi að gæta sérstak-
lega vel að því að vökva bæði gras
og plöntur, þá sérstaklega fyrripart
sumars. Jafnvel þó að það sé einhver
úrkoma þá er hún oft ekki nægjan-
leg fyrir plönturnar.
„Ég hef trú á að sumarið verði gott
hvað varðar gróðurinn. Þessi kulda-
kafli sem kom í lok maí virðist ekki
hafa haft mikil áhrif á gróðurinn,“
segir Valborg Einarsdóttir að lokum.