blaðið - 07.06.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. JÓNÍ 2007
blaðið
INNLENT
HÉRAÐSDÓMUR
Sekt fyrir hass
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í 43 þúsund
króna sekt fyrir vörslu á tæpum sex grömmum af
hassi. Sakborningurinn reyndi að losa sig við hassið
með því að kasta því út um glugga á bifreið sinni,
rétt áður en lögregla stöðvaði manninn.
EIMSklP
Á nú allt hlutafé í Innovate
Eimskip hefur keypt allt hlutafé í Innovate Holdings í Bret-
landi. Fyrir átti Eimskip 55 prósenta hlut í félaginu. Innovate
er eitt stærsta fyrirtæki Bretlands á sviði hitastýrðra flutn-
inga og rekur 30 vörugeymslur á 11 stöðum á Bretlands-
eyjum. Kaupverð er jafnvirði fjögurra milljarða króna.
FERÐALÖG
Aukagjald fyrir golfsettið
Mörg flugfélög taka nú aukagjald fyrir golfsett í farangri.
SAS tekur 1.500 krónur fyrir settið í styttri ferðum innan
Evrópu en 3.500 í lengri ferðum. Hjá lcelandair er hægt
að skrá sig í klúbbinn lcelandair Golfers fyrir 5.900
krónur á ári og þarf þá ekki að greiða fyrir golfsettið.
Tyrkland:
Herinn sækir
inn í írak
Tyrkneskir fjölmiðlar hafa
greint frá því að tyrkneski
herinn hafi hafið mestu sókn
sína gegn kúrdískum upp-
reisnarmönnum í áraraðir í
suðausturhluta Tyrklands og
norðurhluta íraks í gær. Að sögn
taka fimmtíu þúsund hermenn
þátt í aðgerðinni, en Tyrkir
saka uppreisnarmenn Kúrda
um að undirbúa hryðjuverk
í Tyrklandi í höfuðstöðvum
sínum í norðurhluta íraks.
Bandaríkjastjórn og íraks-
stjórn hafa varað Tyrki við
að halda yfir landamærin til
íraks, en Tyrkir segjast sjálfir
verða að grípa í taumana ef
írösk yfirvöld koma ekki í veg
fyrir hryðjuverkastarfsemina.
Leikskólar Reykjavíkur:
Fyrsti
Hjallaskólinn
Hjallastefnan mun taka við
rekstri leikskólans Laufásborgar.
Leikskólasvið Reykjavíkur-
borgar hefur gert samning
þess efnis við Hjallastefnuna
að hún taki við rekstri leikskól-
ans og mun hann því verða
fyrsti Hjallskólinn í Reykjavík.
Samningurinn var samþykkt-
ur í leikskólaráði í gær.
Leikskólasvið Reykjavík-
urborgar mun samkvæmt
þjónustusamningi greiða Hjalla-
stefnunni rekstrarstyrk vegna
reykvískra barna frá x8 mán-
aða aldri. Kveðið er á um að
gjaldskrá leikskólans skuli vera
sem sambærilegust gjaldskrá
leikskólasviðs og aldrei hærri
en sem nemur 15 prósentum.
Brýnt að endurskoða bann við áfengisauglýsingum:
Lögin barn síns tíma
og sniðganga auðveld
■ Breyttir tímar ■ Þarf að skilgreina lögin á skýrari hátt ■ Auglýsingar hafa áhrif á ungmenni
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
„Við vinnum eftir þeim reglum
og lögum sem eru í gildi og
teljum okkur hafa verið að gera
það,“ segir Jón Erling Ragnars-
son, framkvæmdastjóri Mekka
Wines&Spirits, sem hefur umboð
fyrir Martini-vörumerkið á Is-
landi. Atli Gíslason, þingmaður
Vinstri grænna, sagði í Blaðinu í
gær að heilsíðuauglýsing á Mart-
ini-drykknum í síðasta tölublaði
Gestgjafans væri skýrt brot á 20.
grein áfengislaga. Þar sagðist hann
vera á þeirri skoðun að svipta eigi
þá sem gerast endurtekið brotlegir
við þessi lög leyfi til innflutnings.
Jón Erling telur þó að engar heim-
ildir séu fyrir slíku. „Við höfum
verið kallaðir fyrir hjá lögreglunni
vegna svona mála, en aldrei hlotið
neinn dóm. Ég kalla frekar eftir
vitrænni og heildrænni umræðu
um okkar markaðsumhverfi því
ég held að þessi lög séu barn síns
tíma. Tímarnir eru svo breyttir
að þetta gengur ekki upp eins og
þetta er í dag.“
Jón Erling segir lögin ótvírætt
skerða samkeppnisstöðu síns fyr-
irtækis þar sem bann við áfengis-
auglýsingum nær ekki til erlendra
miðla sem eru aðgengilegir á
Islandi. „Það þarf ekki annað en
að skoða annars vegar blað sem
er prentað á Islandi og hins vegar
blað sem er prentað á ensku en
eiga að höfða til svipaðs markhóps.
Þar er ljóst að við sitjum ekki við
sama borð og aðrir.“
Árni Einarsson, framkvæmda-
stjóri Fræðslumistöðvar í fíkni-
vörnum, vill sjá harðari viðurlög
við endurteknum brotum sem
þessum. „Að okkar viti þá er ákaf-
lega skýrt að áfengisauglýsingar
eru bannaðar. Ef þessir aðilar eru
ekki tilbúnir að láta sér segjast þá
held ég að þeir séu svolítið að kalla
yfir sig vandræði með því að stíga
þennan dans.“
Hann er þó sammála Jóni Erlingi
í því að það mætti endurskoða
lögin. „Mér finnst fullt tilefni til
þess að menn setjist yfir þau og
skilgreini lögin á skýrari hátt. Það
þarf ekkert að vera ágreiningur
um að gera slíkt með það að mark-
Áfengislögin úrelt Framkvæmda-
stjori Fræðslumiðstöðvar í fikni-
vörnum og innflytjandi áfengis eru
sammála um að endurskoða eigi
áfengislögin si'o þau séu skýrari og
þjóni tilgangi sfnum betur.
AFENGISLOGIN
■ 1.gr.
Tilgangur laga þessara er að vinna gegn
misnotkun áfengis.
■ 20. gr.
Hvers konar auglýsingar á áfengi og
einstökum áfengistegundum eru bannaðar.
Enn fremur er bannað aö sýna neyslu eða
hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýs-
ingum eða upplýsingum um annars konar
vöru eða þjónustu.
■ 27.gr.
Brot gegn lögum þessum eða reglum
settum samkvæmt þeim varða sektum eða
fangelsi allt að sex árum.
miði að farið sé eftir lögunum. En
ég held að engum detti í hug að af-
nema auglýsingabannið. Það er þá
afmarkaður hópur manna, enda
Wnnum eftir
þeim lögum og
reglum sem eru
ígildi
Jón Erling Ragnarsson,
framkvæmdastjóri
Mekka Wines&Spirits
eru það ekki bara stjórnvöld hér á
landi sem vilja hafa reglur og tak-
marka áfengisauglýsingar. Svona
er þetta allt í kringum okkur. I
Frakklandi má til dæmis ekki vera
með lífsstílsauglýsingar, leiknar
auglýsingar í sjónvarpi, líkt og við
sjáum hér heldur má vera með aug-
lýsingar sem eru nær því að vera al-
mennar neytendaupplýsingar.“
Árni telur það ótvírætt að ís-
lensku auglýsingarnar hafi mikil
Dettur engum i
Itug að afnema
auglýsingabann
Árni Einarsson,
framkvæmdastjóri
Fræðslumistöðvar i
fíknivörnum
áhrif á börn. „Allar rannsóknir
sem hafa verið gerðar með það að
markmiði að skoða áhrif þeirra
sýna að börn eru ákaflega við-
kvæm fyrir þessum auglýsingum.
Og þau sitja ekki með Times og
Newsweek og blaða í gegnum þau.
Þessar leiknu auglýsingar sem eru
í gangi fara svolítið inn á þá línu
sem börn og unglingar hafa gaman
af. Þau eru mjög fljót að læra á takt-
ana, fígúrurnar og frasana.“
€>
GtRJR BÓCAN HÁI BflRl
4 OSTBORCARAR
MEÐ FRÖNSKUM
SÓSU OG SALATI
2395,- --
10 KJUKUNGABITAR
MEÐ FRÖNSKUM
SÓSU OG SALATI
--------- 2995,-
‘njúkUngostadurinn
★ Suöurveri ★
Orkuveita Reykjavíkur
Orkuverð áfram
leyndarmál
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
vísaði frá tillögu þess efnis að
leynd yrði aflétt af raforkuverði
með öllum atkvæðum gegn
tveimur á fundi sínum í gær.
Það var Svandís Svavarsdóttir,
fulltrúi Vinstri grænna í stjórn-
inni, sem lagði fram tillöguna.
,Það er í hæsta máta óeðlilegt að
leyna eigendur Orkuveitu Reykja-
víkur upplýsingum um raforku-
verð til stóriðju,“ segir í greinar-
gerð sem Svandís lagði fram. Þar
sagði einnig að tímabært væri að
íslensk orkufyrirtæki í almanna-
eigu hættu að meðhöndla orku-
sölusamninga við erlend stóriðju-
fyrirtæki sem leyniplögg.