blaðið - 19.06.2007, Qupperneq 1
Enginn sumarsmellur : I sögufrægu húsi
„Það er ekkert sumar í ár,“ segir i Þórunn Eyvindardóttir er fram-
l Höskuldur Höskuldsson hjá i kvæmdastjóri Skaftfells á
| Senu en hætt hefur verið við i Seyðisfirði sem er menningar-
1 að koma út plötunni Svona er i miðstöð myndlistar og til húsa
^ sumarið. Verða engir sumar- ; í sögufrægu húsi frá því um
m smelliríár? i aldamótin 1900.
Flutningabílstjórinn
Guðrún Kristín Einarsdóttir er
flutningabílstjóri og finnst það
mjög skemmtilegt starf. Hún
segir að léttara sé að keyra
stóra bíla en litla og það betur
; borgað starf.
SÉRBLAÐ »13-28
111. tölublað 3. árgangur
þriðjudagur
19. júní 2007
FRJALST, OHAÐ & OKE'
Heimasíða samtaka áhugafólks um spilafíkn fær þúsundir heimsókna:
Um 1000 á ári leita til
samtaka um spilafíkn
■ Aðstandendur leita til samtakanna ■ Spilafíklar með milljóna skuldir á bakinu
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Um 3000 manns, spilafíklar og aðstandendur, hafa
haft samband við SÁS, Samtök áhugafólks um spila-
fíkn, frá því að samtökin voru stofnuð fyrir rúmum
þremur árum. Stofnandi samtakanna, Júlíus Þór
Júlíusson, telur að spilafíklarnir séu margfalt fleiri.
Hann segir pókermótið sem haldið var á dögunum
það sama og að skvetta olíu á eld spilafíknarinnar.
„Unga fólkinu þykir þetta spennandi en það er
elcki hægt að líkja þessu við bridds eða skák eins og
gert var. Pókermótið var ekkert annað en að skvetta
olíu á eldinn."
í haust ætla samtökin að veita spilafíklum stuðn-
ing sem felst í ráðgjöf sálfræðings og úttekt á fjár-
hagsstöðunni áður en sjálf stuðningsviðtölin hefjast.
„Spilafíkillinn getur ekki komið í viðtöl með fleiri
milljóna króna skuld á bakinu og geggjaða aðstand-
endur. Fyrst verður að gera ættingjum og vinum,
sem gengist hafa við ábyrgð og standa frammi fyrir
gjaldþroti vegna spilafíkilsins, grein fyrir fjárhags-
stöðunni," segir Júlíus sem sjálfur hafði spilað í 15 ár
og skuldaði háar upphæðir þegar hann hætti fyrir
fjórum árum. Hann kveðst gæta sín á að koma ekki
að neinu sem tengist fjárhættuspili.
„Fyrsta árið setti ég mér auðvitað ýmis markmið,
eins og til dæmis að láta aðra sjá um mín fjármál.
Mér var hálfpartinn skammtaður peningur. Ég fór
ekki inn á staði þar sem voru spilakassar. Ég kaupi
hvorki lottómiða né happdrættismiða og ég læt
konuna mína sjá um að styrkja ýmis happdrætti í
kringum jólin.“
Heimsóknir á heimasíðu samtakanna eru orðnar
rúmlega 68 þúsund frá því að hún var sett upp í
maílok í fyrra. „Ýmsir eru auðvitað að skoða síðuna
en við verðum að taka mark á þessu. Þetta er engin
skemmtisíða og þetta hlýtur þess vegna að segja
sína sögu,“ leggur Júlíus áherslu á.
FRÉTTIR » 6
100 prósenta munur
á GSM-greiðslunum
Um 100 prósenta munur er á gjaldi fyrir
að leggja í bílastæði milli þeirra tveggja
fyrirtækja sem bjóða upp á greiöslu bíla-
stæðagjalda í gegnum farsíma. Gjaldið
er 59 krónur hjá Símstæðum en 30
krónur hjá Farsímagreiðslum.
FRÉTTIR » 2
Milljón fyrir setu á
þingi og í borginni
Árni Þór Sigurðsson fær rúmlega milljón
á mánuði í þingfararkaup og setu í borg-
arstjórn. Hann lækkar þó umtalsvert í
launum þegar hann hættir í borgarstjórn.
Blaðið skoðar laun þeirra sem bæði sitja
á þingi og í bæjarstjórnum landsins.
FRÉTTIR » 8
Fjölmenning á Fellaborg
Um helmingur barnanna á leikskólanum Fellaborg í Efra-Breiðholti er af erlendum uppruna og um 40 prósent starfsmannanna.
Aðstæðurnar í Fellaborg eru dæmi um þá gríðarlegu breytingu sem orðið hefur á skömmum tima á skólasamfélaginu í Reykjavík.
FRÉTTIR » 4
Lét stela slæmu
einkunnunum
Sextán ára nemandi í Berlín
er í haldi lögreglu eftir að hann
fékk tvo vini sína til að ráðast inn í
skólastofu í þeim tilgangi að stela
einkunnaskjölum, þar sem hann
hafði áhyggjur af því að þurfa að
endurtaka skólaárið vegna slælegs
námsárangurs.
„Nemandinn hélt í fullri alvöru að
hann gæti komist hjá því að endur-
taka skólaárið ef hann gæti fengið
einkunnaspjöldin til að hverfa," sagði
talsmaður lögreglunnar í gær.
Nemandinn sat þögull í skólastof-
unni þegar fjórtán og fimmtán ára
félagar hans réðust inn í stofuna,
kröfðust einkunnaskjalanna og
hótuðu kennaranum með stálröri.
Öðmm nemendum tókst þó að yfir-
buga drengina og voru þeir snöggir
að benda á að vinur þeirra hefði
1 skipulagt verknaðinn.
NEYTENDAVAKTIN
Verð á ís með dýfu TT
ísbúð Krónur
Brynja, Akureyri 220
ishöllin v/Melhaga 250
Bettís v/Borgarholtsbraut 260
Skalli v/Hraunbæ 260
isbúð Vesturbæjar v/Hagamel 270
fsbúðin Álfheimum 280
Verö á stórum ís í brauðformi m/dýfu UoDlvsinaar frá Nevtendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
gm usd 62,41 -0,14 ▼
GBP 123,66 0,08 ▲
5S dkk 11,24 0,15 ▲
• JPY 50 -0,28 ▼
m EUR 83,68 0,14 ▲
GENGISVÍSITALA 113,52 0,04 A.
ÚRVALSVÍSITALA 8.164,23 -0,20 ▼
VEÐRIÐ Í DAG
SÓ FADAGAR!
OÍÚTÚð
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15
Reykjavík: Mórkin 4, s: S33 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 4G2 3504 fcgilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954