blaðið - 19.06.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007
blaöiö
INNLENT
MINKAVEIÐAR
Skytta skaut sig í fótinn
Skotveiöislys varð í í Hvalfjarðarsveit í síðustu viku þegar
minkaveiðimaður fékk skot i lærið, samkvæmt frétta-
vefnum mbl. Skot hljóp af misgáningi úr byssu mannsins
þar sem hann var við minkaveiðar. Að sögn lögreglunnar
á Akranesi voru meiðsl mannsins smávægileg.
DÓMSMÁL
Gæsluvarðhald framlengt
Karlmaður sem hefur verið ákærður fyrir fjölmörg auðgunar-
og fjármunabrot, fíkniefna- og umferðarlagabrota, auk
brota gegn valdstjórninni sætir gæsluvarðhaldi uns dómur
fellur í máli hans, þó ekki lengur en til 27. júní. I úrskurð-
inum segir að ákærði sé í mikilli óreglu og án atvinnu.
BYSSUMAÐUR
Ekki siysaskot í Hnífsdal
Rannsókn í máli byssumannsins í Hnífsdal miðar
ágætlega og er búist við að henni Ijúki á næstu
dögum samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum. Þann
8. júni yfirbugaði sérsveit Ríkislögreglustjóra mann-
inn á heimili sínu. Hann skaut í átt að eiginkonu sinni.
Táningur dæmdur:
Stakk með hnífi
í bak annars
Nítján ára karlmaður, Arnar
Valur Valsson, var í gær dæmdur
í fimm og hálfs árs fangelsi og
greiðslu 1,7 milljón króna skaða-
bætur í Hæstarétti fyrir tilraun
til manndráps með því að stinga
annan mann með hnífi í bakið
með þeim afleiðingum að hann
hlaut lífshættulega áverka.
Arnar Valur var jafnframt
dæmdur fyrir þjófnað og tilraun
til nytjastuldar. Hæstiréttur
þyngdi með þessu fimm ára dóm
sem Arnar Valur hlaut í Héraðs-
dómi Reykjaness.
Árásin átti sér stað í maímán-
uði á síðasta ári fyrir utan hús í
Hafnarfirði og játaði Arnar Valur
í öllum tilvikum þá háttsemi sem
honum var gefið að sök. 1 dómi
Hæstaréttar segir að þó að að-
dragandi árásarinnar hefði verið
skammur yrði ekki litið fram hjá
þeim ásetningi sem bjó að baki för
Arnars Vals á fund fórnarlambsins,
vopnaður hættulegum hníf.
NEYTENDASAMTÖKIN
Neytendasamtökin auglýsa eftir
skrifstofuhúsnæði undir starfsemi sína á
höfuðborgarsvæðinu.
Leitað er að húsnæði með góðu
aðgengi fyrir fatlaða.
Það þarf að rýma um 8 vinnustöðvar
og góða fundaraðstöðu.
Húsnæðið þarf að vera laust í nóvember nk.
Upplýsingar veitir Þuríður Hjartardóttir,
th@ns.is, sími 5451208.
SKÚTUVOGUR 4 | I04 REYKJAVIK | SÍMI 581 2I2I | www.rbv.is
Fjölmenningarleikskóli Börnin
á Fellaborg koma frá ýmsum
löndum. Sú staðreynd breytir leik-
skólastarfinu að vissu leyti.
Börnin á leikskólanum Fellaborg
Helmingurinn af
erlendum uppruna
■ Gríðarleg breyting ■ Myndræn skilaboð ■ Telja alla græða
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Um helmingur barnanna á leikskól-
anum Fellaborg í Efra-Breiðholti er
af erlendum uppruna og um 40 pró-
sent starfsmannanna. Aðstæðurnar
í Fellaborg eru dæmi um þá gríðar-
legu breytingu sem orðið hefur á
skömmum tíma á skólasamfélaginu
í Reykjavík.
Á einum áratug hefur fjöldi nem-
enda í grunnskólum í Reykjavík með
annað móðurmál en íslensku þrefald-
ast og er nú um 4,5 prósent, að því
er kom fram í þjóðhátíðardagsræðu
Björns Inga Hrafnssonar, formanns
borgarráðs. f Austurbæjarskóla og
Fellaskóla eru 23 prósent nemenda
af erlendum uppruna. f Ieikskólum
í Efra-Breiðholti eru leikskólabörn
af erlendum uppruna 28 prósent, að
því er Björn greindi frá, og eru þau
flest þar.
„Hér eru 53 börn og um helmingur
þeirra er af erlendum uppruna,“
segir Sólveig Dögg Larsen, aðstoðar-
leikskólastjóri á Fellaborg. Erlendu
börnin eru frá Filippseyjum, þaðan
sem flest þeirra koma, Tæandi, Pól-
landi, Marokkó og Serbíu. Þessi fjöldi
erlendra barna breytir auðvitað leik-
skólastarfinu að vissu leyti, að sögn
Sólveigar.
„Við þurfum að kynna okkur
menningu þeirra og taka tillit til
hennar varðandi ýmis atriði. Sumir
erlendu foreldranna eru ekki vanir
útiveru barna á veturna auk þess
sem mataræðið er frábrugðið. Það
gætir einnig oft tungumálaörðug-
leika. Við þurfum að fá þjónustu
túlka í mörgum tilfellum og látum
þýða skilaboð til foreldranna en við
komum einnig skilaboðum til þeirra
á myndrænan hátt. Þá hengjum við
til dæmis upp myndir í fataherberg-
inu af matnum sem börnin borða og
eins myndir frá ferðalögum sem við
förum í,“ greinir Sólveig frá.
Hún segir starfsmenn einnig hafa
aflað sér aukinnar þekkingar á mál-
töku barna á öðru tungumáli en
móðurmálinu. „Þau eru rosalega
fljót að læra íslensku en við þurfum í
upphafi að einfalda samverustundir
með þeim og sýnum þeim þess
vegna myndir með sögunum sem
Læra af börnum
fráöðrum
menningarheimi
Sólveig Dögg Larsen
aðstoöarleikskólastjóri.
við segjum þeim og setjum orð á
athafnir.“
Aðspurð hvort þessi einföldun
komi niður á íslensku börnunum
kveðst Sólveig ekki hafa orðið vör
við það. „Þau læra af því að vera með
börnum frá öðrum menningarheimi.
Við höldum að allir græði á þessu.“
Erlendu starfsmennirnir á Fella-
borg eru frá Póllandi, Egyptalandi,
Serbíu og Englandi og tala allir ís-
lensku, að sögn Sólveigar.
Erlendu leikskólabörnin í Reykja-
vík eru af um 80 þjóðernum og tala
um 60 tungumál, samkvæmt upplýs-
ingum frá menntasviði Reykjavíkur-
borgar. Verið er að smíða vef um fjöl-
menningu í leikskólum sem koma á
til móts við starfsfólk auk þess sem
gefnir hafa verið út bæklingar fyrir
erlenda foreldra.
Flokkur Sarkozy sigrar í frönsku þingkosningunum:
Royal og Hollande skilja
Franski sósíalistinn Segolene
Royal tilkynnti í gær að hún og
Francois Hollande, formaður Sósíal-
istaflokksins, hafi slitið samvistum
eftir 25 ára samband. Royal seg-
ist nú ætla að sækjast eftir því að
taka við formennsku í flokknum
af fyrrum sambýlismanni sínum á
flokksþingi næsta árs.
Royal og Hollande giftust aldrei,
en eiga saman fjögur börn. I nýrri
bók sem kemur út á morgun segir
Royal að Hollande hafi átt í ástarsam-
bandi við aðra konu og hún hafi beðið
hann um að flytja út, að sögn til þess
að sinna ástamálum sínum annars
staðar. Royal tekur þó fram að þau
hafi skilið í góðu og ræði enn saman.
Tilkynning Royal hefur skyggt
nokkuð á sigur UMP, flokks Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseta, í síðari
umferð frönsku þingkosninganna
sem fram fóru á sunnudaginn. Sig-
urinn var ekki jafn mikill og búist
var við í fyrstu, en Sarkozy segist
hafa fengið skýrt umboð frá frönsku
þjóðinni til þess að hrinda stefnu-
málum sínum í framkvæmd. UMP
hlaut 314 þingsæti af 577 í neðri de-
ild Frakklandsþings, en sósíalistar
185. Kjörsóknin var með minnsta
móti, eða rétt rúm sextíu prósent.